Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 16
16
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
Auk þess að verka saltfisk þurrkar GPG hryggi og
hausa sem til falla fyrir Nígeríumarkað. Starfsmönn-
um hefur verið að fjölga á undanförnum misserum og
eru þeir nú um 25 talsins og munar um minna fyrir
byggðarlag eins og Húsavík sem hefur átt við tölu-
verðar þrengingar í atvinnumálum að stríða. Gunn-
laugur K. Hreinsson á helmingshlut í GPG og hann
stýrir fyrirtækinu. Ægir hitti Gunnlaug að máli á
framkvæmdastjórakontórnum á hafnarsvæðinu á
Húsavík.
„Ég er fæddur og uppalinn Húsvíkingur. Reyndar
flutti ég í burtu í nokkur ár, var meðal annars í um
sex ár á Þórshöfn þar sem ég starfaði hjá Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar. En ég ákvað síðan að koma aftur
heim og aðdragandinn að því var sá að Sigurður Ol-
geirsson, útgerðarmaður Geira Péturs ÞH, keypti
bræður sína út úr fyrirtækinu Korra og vildi í kjölfar-
ið efla landvinnsluna. Sigurður ræddi við mig og
bauð mér að kaupa helmingshlut í fyrirtækinu. Ég
ákvað að slá til og úr varð að snemma árs 1997 stofn-
uðum við Sigurður GPG. Á þessum tíma var tölu-
verður uppgangur í rækjuveiðum og -vinnslu og til
að byrja með horfðum við til þess að fara í hana. En í
ljósi þess að á Húsavík var fyrir öflug rækjuvinnsla
hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur töldum við rækjuna
ekki vænlegan kost. Verð á saltfiski var frekar lágt á
þessum tíma en þrátt fyrir það töldum við eftir mikla
yfirlegu að við skyldum efla þá saltfiskverkun sem
fyrir var, en hafa útflutning á ferskum fiskflökum
sem einskonar hliðarbúgrein.
Vöxturinn varð strax meiri en við gerðum ráð fyrir
og fljótlega sáum við að nauðsynlegt væri að stækka
húsnæðið til þess að geta verið búnir undir ákveðna
hráefnistoppa sem alltaf myndast. Í október 1997
ákváðum við að byggja 400 fermetra viðbyggingu
fyrir pökkun og kælingu og reis hún á þrem mánuð-
um,“ segir Gunnlaugur.
Athyglisverður uppgangur hjá fiskverkunarfyrirtækinu GPG ehf. á Húsavík:
Við vinnum þegar
þarf að vinna
- segir Gunnlaugur K. Hreinsson, framkvæmdastjóri GPG
Það er engin lognmolla svífandi yfir vötnum hjá fiskvinnslufyrirtækinu
GPG ehf. á Húsavík. Á þeim bænum er lífið í orðsins fyllstu merkingu
saltfiskur. GPG hefur náð mjög góðum árangri í saltfiskvinnslu og staða
fyrirtækisins er sterk á saltfiskmörkuðum í Suður-Evrópu.
Gunnlaugur K. Hreinsson getur ekki annað en verið sáttur við stöðu mála, enda er salt-
fiskurinn að gefa vel af sér um þessar mundir.