Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2001, Síða 44

Ægir - 01.08.2001, Síða 44
44 F I S K V I N N S L A tímanum. Eldri hrygningar- þorskur hefur lélegan holdastuð- ul, þar sem hann hefur gengið mjög á næringarefni holdsins og um leið orðið horaður, þess vegna gefur þessi fiskur mjög lélega vinnslunýtingu. Þar sem vatns- innihald þorsks hefur aukist mik- ið og þurrefnisinnihaldið á sama tíma minnkað, þá hefur þetta í för með sér mikla minnkun í verkun- arnýtingu í saltfiskvinnslu. Þar sem þessi stóri fiskur hentar best fyrir saltfiskvinnslu þá er nokkuð ljóst að hann er ekki gott hráefni á þessum árstíma vegna vatns- innihaldsins og einnig vegna þess að vöðvarnir hafa lélega vatns- bindieiginleika, sem koma fram í afurðagæðum. Los af völdum náttúru- legra eiginleika Vitneskja um hversu mikið los er í fiskholdi hefur mikla þýðingu fyrir fiskvinnsluna. Miðað við nú- verandi vinnslufyrirkomulag og mælitækni kemur los í fiskholdi fyrst fram þegar fiskurinn er unn- inn. Vinnsluhæfni fisks má t.d. skipta í þrjá flokka eftir losi: Hæft í vélflökun, hæft í handflökun en ekki vélflökun, og einungis hæft í marning. Losið hefur einnig af- gerandi áhrif á hversu verðmætar afurðir má framleiða úr fiskinum og er fiskur, sem er mjög laus í sér, yfirleitt ónothæfur í lausfrysta bita og flök. Ekki hafa farið fram nægjanleg- ar rannsóknir á losi hérlendis til þess að hægt sé að greina los í fiski eftir bæði veiðisvæðum og árs- tíma. Reynsla manna af vinnslu þorsks hér við land sýnir þó að þorskhold virðist lausara í sér um eða eftir hrygningartímabilið. Einnig virðist fiskur, sem veiddur er snemmsumars, oft vera laus í sér og fiskur sem er í miklu æti hefur einnig oft greinst með mik- ið los. Talið er að stærri þorskur sé ekki eins laus í sér og minni þorskur. Fram hefur komið í at- hugunum á dauðastirðnun að hærra hitastig í fiskholdi á meðan á dauðastirðnun stendur leiði til aukningar á losi, en allt hnjask sem fiskurinn verður fyrir við meðhöndlun hefur einnig áhrif á losið. Einnig er vitað að þegar fiskhold fer að skemmast vegna gerlamyndunar verður það lausara í sér. Á Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins hafa farið fram rann- sóknir sem miða að því að skýra losmyndun. Aukið los og lægra sýrustig (pH gildi) virðist fara saman og ber þessu einnig saman við er- lendar rannsóknir. Sýrustig fisk- holdsins stýrist aðallega af mjólkur- sýrumyndun í fiskholdinu, sem aftur tengist næringar- og ætis- ástandi fisksins, hversu mikið hann erfiðar fyrir dauða og hve langan tíma veiðarnar taka. Rann- sóknir á losi eru viðamiklar, því eins og fram hefur komið getur los bæði orsakast af náttúrulegum eiginleikum fisksins og umhverf- isins, sem og geymslu og meðferð aflans. Hér hefur einungis verið talað um los í þorski, en komið hefur í ljós að fisktegundir eru misviðkvæmar fyrir losi. Oft gerist það á vorin eða snemma sumars að sýrustigið í þorskholdinu lækkar. Lækkunin hefur verið tengd því að eftir hrygninguna gengur fiskurinn meira í æti og meira af mjólkur- sýru getur myndast í vöðvunum. Þessi lækkun hefur verið talin ein aðalorsökin fyrir losi í fiskholdi á þessum árstíma. 79 80 81 82 83 84 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Ekki kyn?roska Fyrsta hrygning Hrygnt oft Vatnsinnihald (%) Nóv. Des. Jan. Feb. Mar. Apríl Maí Júní Júlí Ág. Sep. Okt. 38 40 42 44 46 48 50 65 70 75 80 M. v. veitt M.v.mótteki C - stuðull Mynd 4. Áhrif holdastuðuls (C - stuðull) á flakanýtingu. Mynd 5. Vatnsinnihald er breytilegt eftir árstímum og aldri þorsks. .n itt . ót kið Ekki kynþroska rsta hrygning r gnt oft - stuðull

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.