Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2010, Blaðsíða 14

Ægir - 01.08.2010, Blaðsíða 14
14 R A N N S Ó K N I R Undanfarin tvö ár hefur verið starfrækt verkefnið „Verðmæti og öryggi íslensks fiskimjöls – greining eitraðra og hættu- lausra efnaforma arsens í fiskimjöli“, sem styrkt var af AVS rannsóknarsjóði í sjávar- útvegi. Markmið verkefnisins var að þróa efnagreiningarað- ferðir sem geta greint bæði eitruð og hættulaus efnaform arsens í fiskimjöli. Þær að- ferðir sem eru notaðar í dag snúa flestar að greiningu á heildarmagni arsens en það gefur ranga mynd af þeirri hættu sem stafar af arseni í fiskimjöli. Arsen er frumefni sem finnst bæði í ólífrænum og lífrænum efnasamböndum og getur verið eitrað mönnum og dýrum. Sjávarfang inni- heldur oft háan styrk arsens og því er mikilvægt fyrir mjölframleiðendur að fylgjast með arseninnihaldi mjölsins, en strangar reglur eru um há- mark leyfilegs magns arsens í fóðurhráefnum. Verkefnið hefur hins vegar leitt í ljós að þau efnaform arsens sem eru til staðar í fiskimjöli eru að stórum hluta talin vera skað- laus. Arsen má finna í skorpu jarðar og er í tuttugasta sæti yfir algengustu efni jarð- skorpunnar, en styrkurinn fer eftir jarðlagsgerð. Einnig má finna arsen í vatni, seti, lofti og í lífríkinu. Arsen berst í líf- ríkið bæði með náttúrulegum leiðum, eins og veðrun bergs, en einnig vegna ýmissar starf- semi manna, svo sem námu- vinnslu og iðnaðar. Einnig hefur arsen verið notað til að fúaverja við og sem skordýra- eitur. Menn komast helst í tæri við arsen í gegnum mat og vatn. Arsen í sjó og vatni er mest svokallað ólífrænt ar- sen sem er eitrað mönnum og dýrum og banvænt í nægi- lega stórum skömmtum. Þeg- ar lítið magn af ólífrænu ar- seni kemst inn í sjávarlífver- ur, fer í gang öflugt varnar- kerfi til að afeitra arsenið og líkami lífverunnar bindur líf- ræna hópa á arsenið sem veldur því að það verður óeitrað. Þess konar arsen kallast lífrænt arsen, og eru margar mismunandi gerðir (form, e. species) til af líf- rænu arseni. Í dag eru þekkt fleiri en 50 náttúruleg efna- form af arseni. Stærsti hluti arsens í sjávarfangi er bund- inn í lífræna forminu arseno- betaníð, sem er talið hættu- laust. Ólífrænt arsen (eitrað) er þó til staðar, en að jafnaði í lágum styrk. Eitt af markmiðum verk- efnisins var að rannsaka hvort árstíðamunur væri á styrk heildararsens (lífrænt og ólífrænt) í fiskimjöli. Heildar- arsen var greint með massa- greini (ICP-MS) að loknu nið- urbroti með sýru og vetnis- peroxíði með aðstoð ör- bylgju. Þrjár gerðir af fiski- mjöli voru skoðaðar; síldar- mjöl, loðnumjöl og kol- munnamjöl. Niðurstöður sýndu að kolmunnamjöl inni- heldur oft háan styrk heildar- arsens, á bilinu 8-17 mg/kg, en síldarmjöl og loðnumjöl innihalda iðulega lægri styrk heildararsens, á bilinu 2-6 mg/kg. Sýnin voru fengin úr hefðbundnum vinnslum, en þeim var safnað af miðum í kringum Ísland á mismunandi árstímum. Annað meginmarkmið verkefnisins var að þróa að- ferð til mælinga á mismun- andi efnaformum arsens. Ný- lega birt aðferð til að greina ólífrænt arsen var aðlöguð og þróuð áfram en hún byggist á útdrætti með basískri alkó- hóllausn. Ólífrænt arsen var síðan greint með hágæða vökvaskilju tengdri við sér- hæfðan massagreini fyrir greiningar á frumefnum (HPLC-ICP-MS, High per- formance liquid chromatog- raphy – Inductively coupled plasma mass spectrometer). Enn er þörf á að bæta aðferð- ina við útdrátt á ólífrænu ar- seni úr mjölinu en mælingar á fiskimjöli með þessari að- ferð gefa grófa mynd af magni ólífræns arsens (As(III) og As(V)). Helstu niðurstöður greininga á ólífrænu arseni sýndu að ólífrænt arsen er að jafnaði minna en 3% af heild- ararsensstyrk fiskimjölsins. Nokkur lífræn form af arseni fundust í mjölinu, en það form sem reyndist í hæstum styrk, í öllum gerðum fiski- mjöls, var arsenobetaníð (AB) sem talið er hættulaust. Önn- ur lífræn form sem fundust voru m.a. Trimethylarsine ox- ide (TMAO) sem fannst í litlu magni í loðnumjöli ásamt því að mjög lítið magn af trimet- hylarsonio propionate (TMAP), arsenocholine (AC) Tegund Fjöldi sýna Ólífrænt arsen (mg/kg) Heildararsen (mg/kg) Síldarmjöl 4 0,046 ± 0,024 3,9 ± 1,2 Loðnumjöl 4 0,083 ± 0,077 4,2 ± 0,9 Kolmunamjöl 4 0,054 ± 0,013 12,7 ± 3,3 Arsen í fiskimjöli - hættulaust, en ógnar verðmæti og sölu fiskimjöls Tafla 1. Magn ólífræns arsens og heildararsens í þremur gerðum af íslensku fiskimjöli. Síld, ein af þeim fisktegundum sem eru uppistaða í fiskimjöli.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.