Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2010, Blaðsíða 27

Ægir - 01.08.2010, Blaðsíða 27
27 V E I Ð A R F Æ R I O G V E I Ð I T Æ K N I „Þetta er fyrsta sumarið sem þessi Furuno FSV-84 millitíðn- isónar er notaður hér við Ís- landsstrendur en áður höfðum við fengið fregnir af sigur- göngu hans víða um heim. Og reynslan hér í makrílveiðunum staðfesti hversu öflugt tækið er og notendurnir voru mjög sælir með það,“ segir Lárus Grímsson, sölumaður hjá Brimrún. Nýi millitíðnisónar- innar frá Furuno var um borð í Vilhelm Þorsteinssyni, Bjarna Ólafssyni og Berki og var reynslan samhljóða. „Sem gamall skipstjóri þekki ég það að tækjabúnað- ur getur verið misjafn og ekki alltaf skilað því sem hann er sagður gera. Reynslan af Furuno sónarnum var hins vegar sú hann stóð fyllilega undir okkar væntingum og skipstjórnarmannanna. Skipin virtust nota mun skemmri tíma á miðunum en ég þekkti frá mínum fyrri skipstjórnar- árum. Tíminn er nefnilega þáttur sem öllu skiptir í mak- rílnum því hann er sér í lagi viðkvæmt hráefni á átutíman- um og þess vegna hafa skip- in skamman tíma til að at- hafna sig á miðunum áður en haldið er í land með aflann til vinnslu. Ég fylgdist grannt með þessum skipum í sumar og sá greinilega að saman- burðurinn var hagstæður miðað við önnur skip í flot- anum,“ segir Lárus. Millitíðnisónar er sérstak- lega gerður til að sjá fisk með minni sundmaga, líkt og makríllinn er en Lárus segir tækið einnig nýtast við vissar aðstæður í loðnu- og síld- veiðum. „Hér áður fyrr var takturinn í veiðunum allt annar og þá höfðum við ekki þörf fyrir millitíðnisónar. Þá vorum við eingöngu í loðnu- og síldveiðum að haust- og vetrarlagi. Við veiddum mikið á djúpmiðum og leituðum að stórum torfum sem sáust langt að á sónurunum. En nú hefur þetta alfarið snúist við og veiðarnar eru ekki síst að sumarlagi og makríllinn kom- inn til sögunnar sem veiðist oft og einatt í yfirborðinu. Að ég tali nú ekki um síldveið- arnar í sunnanverðum Breið- arfirði þar sem veitt er uppi í fjöruborði og helst ekki á dýpra vatni en 6-20 faðma dýpi. Við þessar aðstæður tel mér fyllilega óhætt að segja að þessi sónar frá okkur hjálpi verulega til við að ná árangri í þeim veiðiskap,“ segir Lárus en meðal þess sem tækið hefur uppá að bjóða er sjálfvirkur truflana- deyfir sem eyðir óæskilegum endurvörpum og truflunum jafnvel við erfiðustu aðstæð- ur. Tækið hefur fjölda fram- setningarmöguleika, s.s. fulla skönnun, fulla skönnun + sneiðmynd, dýptarmælis- mynd, uppsafnaða mynd og „slant mode“, sem er 180° sneiðmynd þar sem mjög góð greining á þéttleika fiskitorfa fæst líkt og var í CSH-73 són- arnum frá Furuno. Nýtt MaxSea kerfi En það er fleira spennandi að gerast hjá Brimrún þessa dag- ana því á markað er kominn nýr MaxSea Navnet leiðarita- hugbúnaður. Lárus segir að hann veiti mikla möguleika til framsetningar upplýsinga, s.s. skýr og góð kort, yfirliggjandi veðurspár, þrívíddarmynd af sjávarbotninum, öflugir sam- skiptamöguleikar við Inter- netið og margt fleira. „Hér má segja að um sé að ræða endurgerð á MaxSea, byggða á öllu því besta sem var í eldra kerfinu en með mörgum góðum nýjungum,“ segir Lárus en Furuno er tæp- lega helmingseigendi í Max- Sea þannig að þessir fram- leiðendur eru mjög tengdir. „Notendum MaxSea stendur til boða hagstæð leið til að skipta yfir í nýja búnaðinn en ég hvet alla til að koma hing- að til okkar og sjá virkni MaxSea með eigin augum. Ný tækni er alltaf áhugaverð en umfram allt skilar hún okkur árangri og það er okk- ar markmið,“ segir Lárus Grímsson hjá Brimrún. Lárus Grímsson, sölumaður hjá Brimrún. Skjámynd úr Furuno FSV-84. Hér má sjá torfuna, skipið og hvernig búið er að kasta nótinni umhverfis torfuna. Í neðri hlutanum sést afstaða torfunnar miðað við skip og botn. Nýr Furuno millitíðnisónar reyndist vel við makrílveiðarnar í sumar: Meiri árangur á miðunum á styttri tíma - segir Lárus Grímsson, sölumaður og skipstjóri

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.