Ægir - 01.08.2010, Síða 19
19
R A N N S Ó K N I R
svæði með togveiðum. Línu-
veiðar geta að auki brotið
niður kóral þótt að erfiðara
að meta skaðsemi hennar “
segir Stefán.
Fiskar sækja á kóralsvæðin
Árangurinn af leiðangri sum-
arsins var sá að stór kóral-
svæði fundust m.a. úti fyrir
Papagrunni, Hornafjarðar-
djúpi og Stokknesgrunni, en
annars staðar var útbreiðslan
blettótt. Stefán segir að í
Lónsdjúpi hafi tengsl kórala
við fiska verið könnuð sér-
staklega. Þéttleiki og sam-
setning fiska voru borin sam-
an við mismunandi kóral-
svæði og á svæðum þar sem
engan kóral var að finna.
„Fyrstu niðurstöður benda til
þess að fiskar eins og t.d.
karfi og keila sæki sérstak-
lega á svæði þar sem lands-
lagið á hafsbotni er fjölbreytt
líkt og gildir um kóralsvæð-
in,“ segir Stefán.
Þegar hafa nokkur kóral-
svæði verið friðuð, en Stefán
segir brýnt að kortleggja
svæðin svo halda megi áfram
að tryggja verndun þeirra.
„Það er almennur skilningur,
m.a. hjá sjómönnum, að það
þurfi að vernda þessi svæði.
Sjómenn hafa verið hjálpsam-
ir að benda á líklega fundar-
staði kórala og jafnvel lagt til
svæðalokanir. Miklar líkur
eru á að kóralsvæði séu mik-
ilvæg fyrir lífríkið í hafinu og
hafi því mikið verndargildi.
Því miður hefur mörgum
svæðum verið raskað gegn-
um árin og við viljum koma í
veg fyrir að fleiri svæði hljóti
sömu örlög,“ segir Stefán.
Leiðangursmenn í rannsóknum á búsvæðum kórals. Stefán Áki Ragnarsson, leiðangursstjóri, segir að markmiðið með rann-
sóknunum sé að kortleggja búsvæði kórala hér við land sem og meta ástand þeirra og þýðingu fyrir fiska.
Miðhellu 4 • 221 Hafnarfirði • S: 414 8080 • www.naust.is
Íslenskt
hugvit
R a f d r i f i ð
v í r a s t ý r i
Hentar öllum vindutegundum,
er einfalt í niðursetningu,
bætir röðun, eykur endingu
og er bæði fyrir Dynex og vír.
- Nútíminn er rafdrifinn!
Eykur endingu