Ægir - 01.08.2010, Síða 25
25
öðru móti en því að ganga í ESB. Þetta
hefur nú þegar verið gert að nokkru
leyti með því að íslensk útflutningsfyrir-
tæki eru farin að gera upp í evrum og
það hefur slegið á óstöðugleikann sem
fylgir íslenska gjaldmiðlinum. Við erum
með hagkerfi sem byggir á óstöðugri og
veikri mynt og það er því margt á sig
leggjandi til að breyta því. E.t.v. er það
hægt án þess að ganga í ESB. Sjávarút-
vegurinn hefur vissulega litið á þessi mál
út frá sínum bæjardyrum. Þetta er enn
mjög mikilvæg atvinnugrein sem stendur
fyrir um 40% útflutningsverðmæta lands-
manna. Það væri hins vegar ekki gott
fyrir sjávarútveginn að Ísland gerðist að-
ili að ESB og menn greinir út af fyrir sig
ekki á um það. Jafnvel hörðustu stuðn-
ingsmenn aðildar viðurkenna það en
þeir segja hins vegar að sjávarútvegurinn
muni ekki standa fyrir auknum vexti á
komandi árum. Það muni aðrar atvinnu-
greinar gera og því sé rétt að ganga í
ESB. Þarna erum við enn og aftur komin
að evrunni. Hagsmunirnir sem takast á
er annars vegar löngun manna í evruna
og hins vegar ótti manna við að fara
með sjávarútveginn inn í meingallað
sjávarútvegskerfi ESB. Það deilir enginn
um að kerfið er arfavitlaust og það hefur
verið gagnrýnt harðlega ytra af þarlend-
um sjávarútvegsmönnum að sjávarút-
vegskerfi ESB skuli ekki vera breytt og
Ísland hefur oftar en ekki verið nefnt
sem fyrirmynd í þeim efnum. Ég tel því
að öllum sé hollt að umræðan hér heima
sé víkkuð út og að hugað sé að fleiri
sjónarmiðum í því sambandi.“
- Er samt nokkuð að því að farið sé í
aðildarviðræður við ESB til að kanna
hvað hangi á spýtunni og hvað sé í boði?
„Það má vera að það sé praktísk og
óhjákvæmileg leið að fara í viðræður og
leiða þær til lykta en ég hef hins vegar
aldrei almennilega skilið að það þurfi að
fara í flóknar samningaviðræður til þess
að átta sig á því hvað hangi á spýtunni.
Að mínu viti liggur það ljóst fyrir hvað í
því felst að vera aðili að ESB og viðræð-
urnar munu fyrst og síðast snúast um
það hvernig Íslendingar geti lagað sig að
regluverki ESB. Ég hef stundum notað
þá líkingu að ef einhver vill gerast félagi
í Rotaryklúbbi þá gerist það ekki með
því að viðkomandi byrji á því að semja
um það hvort fundir eigi að vera á
fimmtudögum í stað miðvikudaga eða
hvort funda eigi frekar á Hótel Nordica
en Hótel Sögu. Annað hvort er sagt já
takk eða ekki. Síðan kemur það svo í
ljós þegar fram líða stundir hvort nýi
klúbbmeðlimurinn getur haft áhrif innan
klúbbsins eða ekki. Hvað varðar ESB þá
er þetta staða Íslands. 27 þjóðlönd með
300 til 400 milljón íbúum munu ekki
breyta sínu kerfi fyrir rúmlega 300 þús-
und manna þjóð. Ávinningurinn af aðild
eru aðgangur að Seðlabanka Evrópu og
evran en hana fengjum við ekki að taka
upp næstu árin á meðan við værum að
uppfylla þau skilyrði sem gerð eru. Við
fengjum hins vegar alla gallana um leið.
Ókostirnir eru verulegir og þá ekki síst
fyrir sjávarútveginn en stjórn hans myndi
færast til Brussel. Sjávarútvegur er ekki
rekinn sem eiginleg atvinnugrein innan
ESB, heldur miklu frekar sem eins konar
félagslegt vandamál á meðan Íslendingar
eru að reka sjávarútvegsfyrirtæki sem
eiga að skila eigendum sínum og þjóðar-
búinu arði. Til þess þó að gæta allrar
sanngirni er rétt að nefna að Íslendingar
sem aðilar að ESB myndu fá tækifæri til
að koma sjónarmiðum sínum á framfæri
og hugsanlega vinna þeim stuðning á
komandi árum. Burtséð frá þessu þá tel
ég reyndar að rétt sé að stefna að því að
hægt verði að uppfylla þau skilyrði sem
gerð eru varðandi upptöku evru, hvort
sem Ísland verður utan eða innan sam-
bandsins. Þetta eru heilbrigð skilyrði
sem fela í sér lágt vaxtastig, litla verð-
bólgu, lítið flökt á genginu og lítinn fjár-
lagahalla,“ segir Eggert Benedikt Guð-
mundsson.
Viðtal: Eiríkur St. Eiríksson.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Allt til netaveiða
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Æ G I S V I Ð T A L I Ð