Ægir - 01.08.2010, Page 26
26
N Ý T I N G F I S K A F U R Ð A
Sjávarleður á Sauðárkróki eina sútunarverksmiðjan
í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði:
Fiskleður hefur heillað hönnuði
heimsþekktra vörumerkja
„Við fengum mjög góðar við-
tökur og það er ánægjulegt,“
segir Gunnsteinn Björnsson,
framkvæmdastjóri Sjávarleð-
urs á Sauðárkróki, en nú ný-
lega tók fyrirtækið þátt í leð-
ursýningu í París, Le Cuir a
Paris, þar sem það kynnti nýj-
ungar í fiskleðri. Nú í október
var ferðinni svo heitið til
Bolonga á Ítalíu þar sem fram
fór ein stærsta sýning á leðri
og fylgihlutum í heiminum. Á
sýningunum er haust- og vetr-
artískan veturinn 2011-12
kynnt. „Okkar framlag til vetr-
artískunnar næsta vetur er
meiri leðurtilfinning, skapandi
leikur með áferðir og við
kynnum fjórar einfaldar lín-
ur,“ segir Gunnsteinn. Sjávar-
leður er eina sútunarverk-
smiðjan í Evrópu sem fram-
leiðir leður úr fiskroði.
Fyrirtækið Sjávarleður
stendur á gömlum grunni og
má rekja upphafið til félags-
ins Loðskinns sem starfað
hefur á Sauðárkróki frá árinu
1969. Gunnsteinn, eiginkona
hans, Sigríður og fyrirtækið
Norðurströnd á Dalvík eiga
og reka Sjávarleður, en það
var stofnað í lok árs 1994 og
hóf starfsemi, sem sprotafyrir-
tæki í tengslum við Loðskinn
í byrjun árs 1995. Fyrstu árin
fóru í þróunarstarf en hjólin
fóru að snúast þegar menn
fundið réttu aðferðina til að
súta fiskroðið.
Gunnsteinn segir að mark-
aðsstarf hafi skilað árangri.
„Þetta er jafnt og þétt upp á
við, sígandi lukka eftir því
sem árin líða.“ Bróðurpartur
framleiðslunnar er seldur til
útlanda, eða allt að 95%, en
Gunnsteinn segir að íslenski
markaðurinn hafi tekið vel
við sér eftir að kreppan skall
á og hönnuðir og handverks-
fólk horfi nú í auknum mæli
til fiskroðsins sem hráefnis í
sínar vörur.
Vörumerkið er þekkt inn-
an tískuheimsins og er Gunn-
steinn bjartsýnn á framtíðina,
en fiskleður hefur heillað
hönnuði heimsþekktra vöru-
merkja eins og Prada, Dior
og Nike.
Gestastofa sútarans fékk góð-
ar viðtökur
Síðastliðið sumar opnaði fyr-
irtækið Gestastofu sútarans
og opnuðu þar með ferða-
mönnum og almenningi að-
gang að súturnarverksmiðj-
unni. Í gestastofunni getur
fólk kynnt sér afurðir sútun-
arverksmiðjunnar og hvernig
roð er sútað svo úr verður úr-
vals fiskleður. Í boði er að
kaupa leður og skinn beint
frá sútara sem og að kaupa
hönnun og handverk af ýmsu
tagi. „Þetta gekk alveg ljóm-
andi vel í sumar, hingað lá
stöðugur straumur fólks sem
sýndi okkur mikinn áhuga og
fyrir það erum við þakklát,“
segir Gunnsteinn, en um
5000 manns lögðu leið sína á
Gestastofu sútarans á liðnu
sumri. Þá er ótalinn gríðarleg-
ur fjöldi sem leit við hjá fyrir-
tækinu á Fiskidögum á Dal-
vík í ágúst, þar sem starfsemi
þess var kynnt.
Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdatjóri Sjávarleðurs á Sauðárkróki, ræðir við áhugasama gesti á leðursýningunni í París á
dögunum.
Sjávarleður tók nýlega þátt í leðursýningu í París, Le Cuir a Paris, þar sem það
kynnti spennandi nýjungar í fiskleðri og viðtökur voru góðar. Sjávarleður er eina
sútunarverksmiðjan í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði.