Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Side 4
urt annað af höfuðskáldum hennar. Allar Andvökur eru í fárra
manna höndum, enn fœrri hafa haft elju til þess að brjóta
þær til mergjar, allra fæstir getað komizt svo að kjarnanum,
sem lesendum þessa úrvals ætti að vera vorkunnarlaust, þar
sem þeir i senn fá öll höfuðkvæði skáldsins skipulega flokk-
uð eftir yrkisefnum og hina skýru og snjöllu túlkun Sigurð-
ar Nordals sér til leiðbeiningar. Sigurður kveður svo að orði
á einum stað í ritgerð sinni: „Ég hef fyrir löngu sannfærzt
um, að þótt Stephan sé ekki mesta skáldið meðal íslenzkra
manna, er hann mesti maðurinn meðal íslenzkra skálda fyrr
og síðar.“ Og þann dóm mun ekki auðvelt að rengja að lestri
ritgerðarinnar loknum. Það felur í sér ómetanlegt andlegt verð-
mæti og jafnframt skírskotun til þess bezta hjá hverjum íslend-
ingi nútímans að fú nána þekkingu á verkum þessa manns, sem
var svo vitur, staðfastur, hreinskilinn og víðsýnn, óháður og
gagnheiðarlegur.
Þó að öll kvæðin í þessari bók séu áður til prentuð, mun
hún, eins og frá henni er gengið, verða þjóðinni mikil nýj-
ung, langmesta nýjungin í bókmenntum þessa árs.
Húsakostur og híbýlaprýði
er fullprentuð og kemur út um mánaðamótin. Við höfum ekki
komizt hjá þvi að hafa ritið miklu stærra en gert var ráð fyrir.
Það er í sama broti og „Vatnajökull" og svipað að stærð, með
118 Ijósmyndum og teikningum. Þetta verður þvi mjög glæsi-
legt verk og nýstárlegt. Er þar í allítarlegu ágripi rakin saga
byggingarlistarinnar og húsgagnalistarinnar, og fylgja þar mynd-
ir af listaverkum ýmissa stiltegunda. En aðalefni bókarinnar
er um nútimabyggingar í sveitum og bæjum, leiðbeiningar um
vandaðan frágang, hentuga herbergjaskipun, hentug húsgögn,
smekkvísi í húsbúnaði, skrúðgarða, hollustuhætti o. fl. Þetta
rit á að geta orðið til mikils gagns og geta vakið menn til um-
hugsunar um að gera heimili sin að smekklegum vistarverum.
eftir því sem efni hvers og eins frekast leyfa. Með hinu al-
menna sögulega efni, sem gert er lifandi með myndum, á bókin
að geta orðið aðgengileg fyrir alla og verðmæt eign.
Húsakostur og híbýlaprýði varð 20 arkir í stað 12. Með henni
er útgáfan í ár komin upp í 77V2 örk; auk þess tímaritið, a.
58