Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Page 6
stofna til reksturshalla á félaginu. En þá er ótalin 3. ástæð-
an, sem útilokar alveg, að við getum komið Rauðum pennum
út fyrir jól, og hún er sú, að það hefur ekki ennþá fengizt
pappír í bókina. Félagsprentsmiðjan, sem alltaf hefur prentað
Rauða penna, pantaði hann frá Þýzkalandi snemma i sumar,
en sendingin var ekki komin, þegar styrjöldin skall á. Voru
þá strax sendar pantanir til annarra landa, en afgreiðslan hef-
ur tafizt, en þó er með vissu búizt við pappirnum með næstu
skipsferðum. Okkur er það ljóst, að fjöldi félagsmanna saknar
mjög Rauðra penna, og höfum við því ákveðið í stjórn Máls og
njenningar, að þeir verði önnur bókin næsta ár, og verður reynt
að gera útgáfu þeirra fyrir árin 1939—40 óvenjulega vel úr
garði.
Félagsmenn Máls og menningar hafa sýnt svo mikinn áhuga
og skilning á starfsemi og hlutverki félagsins, að stjórnin veit,
að ekki einn einasti þeirra mun bregðast, þó að þessi óhjákvæmi-
lega breyting hafi orðið á áætlun þessa árs, einkum þar sem
útgáfan hefur orðið svo ríkuleg, þrátt fyrir þessa breytingu.
Erfiðleikar af völdum styrjaldarinnar.
Það er bezt að segja það þegar hreinskilnislega, að við þvi
má búast, að erfiðir tímar séu framundan fyrir félagið næstu
árin, ef styrjöldjn heldur áfram. Verðhækkun á bókum er i
bráðina óhjákvæmileg og óútreiknanleg. En félagsstjórnin get-
ur lofað því, að svo skal verða haldið á þeim peningum, sem
inn koma, að félagsmenn fái samt sem áður hlutfallslega meira
fyrir tillög sín en nokkrir aðrir bókakaupendur í landinu.
Tilraunir kunna að verða gerðar til að torvelda
starfsemi Máls og menningar.
Annað atriði er líka bezt að taka nú þegar fram við félags-
menn. Eftir þeim blaðaskrifum að dæma, sem vikið er að í
yfirlýsingu félagsstjórnarinnar hér á eftir, virðist Mál og menn-
ing vera orðinn þyrnir i augum vissra manna, sem af misskiln-
ingi á menningarhlutverki félagsins og af pólitísku ofstæki vilja
brjóta það á bak aftur. Það má búast við því, að félaginu verði
á ýmsan hátt gert erfitt fyrir, t. d. um pappírskaup, að póli-
tiskum áróðri verði beitt gegn því og reynt að nota dýrtíðina
til þess að spilla fyrir þvi, ef bókaútgáfuna þarf að draga sam-
an. Og það verður reynt að keppa við það með því að láta önn-
ur útgáfufyrirtæki bjóða einhver kostakjör, sem hægt er að
60