Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Page 10

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Page 10
sér, livað sem á gengur. Og þegar að sjálfri útgáfunni kemur, verða áreiðanlega fundin ráð til að koma henni i framkvæmd. Arfur íslendinga kemst út til þjóðarinnar, þó svo að himinn og jörð verði sett í hræringu til að hindra það. Ritstjóri Arfs íslendinga mun segja nokkuð frá verkinu í fyrsta hefti næsta árgangs. Öll íslenzka þjóðin fagnar hugmyndinni um Arf íslendinga. Það er þegar komið inn í vitund allra íslendinga, að þetta verk verður að koma út — og kemur út. Aldrei hefur neinum tíðindum frá Máli og menningu verið tekið af jafn miklum fögnuði og útgáfuhugmyndinni að Arfi íslendinga. Hún greip strax alla félagsmenn og barst i einum svip til allrar þjóðarinnar. Að undanteknum örfáum stjórnmála- skúmum fékk lnin viðurkenningu allra. Það munu fáir hugsandi íslendingar, sem ekki óska eftir því, að hún komist í fram- kvæmd, og fjöldi manna utan við Mál og menningu er áreiðan- lega reiðubúinn til að stuðla að því. En mest þykir okkur vert um undirtektir félagsmanna. Þeir brugðust ekki fremur en áður því trausti, sem við bárum til þeirra, heldur sýndu strax hug- myndinni fullan skilning og fóru að vinna fyrir hana. Er við sendum út tilkynninguna í sumar, fullyrtum við, að félagsmenn myndu allir sem einn styðja hugmyndina, enginn þeirra myndi skcrast úr leik. Nú vitum við þetta með enn öruggari vissu. Þó að við höfum mjög lítið unnið að þvi ennþá að safna inn fyrsta árstillaginu til útgáfunnar, hefur fjöldi félagsmanna gefið sig fram af sjálfsdáðum, sent áskriftaspjöldin eða greitt árstil- lagið. Ýmsir hafa þegar greitt styrkinn fyrirfram fyrir öll árin. Margir félpgsmenn úr öllum stéttum og af öllum flokkum hafa lofað styrktargjaldi til útgáfunnar umfram árstillagið. Til dæmis um hinn brennandi áhuga fyrir hugmyndinni, má geta þess, að einn félagsmaður lagði þegar til útgáfunnar 1000.00 krónur, ann- ar 500.00 kr., margir félagsmenn hafa boðizt til að styrlcja hana með 100.00 kr., aðrir með 80.00 kr. eða 60.00 kr., en algengast er, að styrktarmennirnir hafi lagt 40.00, er svarar til 10.00 kr. á ári í stað 5 kr., til 1942. Umboðsmennirnir hafa verið mis- jafnlega duglegir, sumir brugðust við strax, og sendu áskrifta- spjöldin fyrir flesta eða jafnvel alla félagsmenn í þeirra um- dæmi. Svo mikið höfum við þegar fengið að vita, að félagið stendur allt í heild sem einn maður á bak við þessa hugmynd, og það mun hrinda henni i framkvæmd. Og Mál og menning 64

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.