Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Page 12
Sandgerði: Stefán Fri'ðbjörnsson, verzlunarstj.
Sandur: Eggert Pétursson, stöðvarstj.
Stokkseyri: Hlöðver Sigurðsson, skólastj.
Suðursveit: Guðbrandur Benediktsson, Kálfafelli.
Súgandafjörður: Friðbert Pétursson.
Vestmannaeyjar: Þorsteinn Johnson, bóksali.
Vífilsstaðir: Gunnar Þorsteinsson.
Örœfi: Páll Þorsteinsson, kennari, Hnappavöllum.
Útgáfan næsta ár.
Skáldsaga eftir Sillanpáá, finnska Nóbelsverðlaunahöfundinn,
verður fyrsta bók ársins.
Við höfum tvö bindi mannkynssögunnar í undirbúningi, en
getum ekkert fullyrt um það ennþá, hvort við komum öðru þeirra
út á næsta ári. Við höfum hug á að vanda þá útgáfu sem mest,
fá í hana myndir erlendis frá, góðan pappír o. s. frv., en það
getur orðið erfitt á svona óvissum tímum. Hið góðkunna finnska
skáld, Sillanpáa, háfundurinn að Silju, hlaut Nóbelsverðlaunin
í ár. Við gefum út sem fyrst á næsta ári skáldsögu eftir hann,
en höfum ekki tekið fullnaðarákvörðun um valið. Ég fresta að
öðru leyti að skýra frá fyrirætlunum okkar næsta ár, þangað
til næsta hefti af timaritinu kemur út.
Bókbandsefni hefur hækkað. Verð skinnbandsins á Andvökur
lielzt samt á 5 krónur, en shirtingsbandið verður að selja á kr. 2.50.
Enginn kostur er að selja shirtingsbandið á Andvökur og Ilúsa-
kost og híbýlaprýði lægra verði en kr. 2.50. Báðar bækurnar eru
sérstaklega stórar, og handið því dýrara, en þar að auki hefur
alll bókbandsefni hækkað stórum i verði. Það er fyrir sérstaka
sanngirni Félagsbókbandsins, að við getum haldið loforð okk-
ar við félagsmenn um 5 króna verð skinnbandsins á Andvökur.
Er þetta hvorttveggja lægsta kostnaðarverð á bandinu. Ef nokk-
ur tök verða á, höl'dum við samt 2 króna verði bandsins fram-
vegis á þeim bókum, sem ekki eru þvi stærri.
Upplagið af Andvökum er mjög lágt vegna pappírsskorts. Nýir
félagsmenn, sem vilja cignast bókina, verða að tryggja sér hana
strax. —
Við ælluðum að hafa hátt upplag af Andvökum, en það fór
allt á annan veg. Viðbótar pappirspöntun í þúsund eintök var
ókomin, þegar striðið skall á, og við gátum með engu móti feng-
ið pappír í skarðið, hvorki hjá prentsmiðjunni, er vann verkið,
66
i