Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Side 13

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Side 13
né annars staðar. UpplagiS er því aðeins 400—500 eintök fram yfir tölu félagsmanna, og verður bókin þvi sennilega uppseld fyrir áramót. ViS látum mjög takmarkaSa tölu í bókaverzlanir, og er lausasöluverS bókarinnar 25 krónur í skinnbandi. Ollum erfiðleikum, sem kunna að verða á vegi Máls og menn- ingar, verður svarað með auknum dugnaði, aukinni árvekni af liálfu stjórnarinnar, umboðsmanna og félagsmanna allra. Frá þvi Mál og menning fyrst var stofnað, hefur allt gengið að óskum fyrir félaginu, útgáfan hefur aukizt ár frá ári, félaga- talan margfaldazt, vinsældir félagsins orðið sifellt meiri, gæfan fylgt þvi í hverju spori, þaS hefur leyst af hendi mikilvægt starf, rutt nýja hraut, aukið menningu í landi, hafið undirbún- ing að Arfi íslendinga, glæsilegasta stórvirki í bókaútgáfu hér á landi. I sumar mætum við fyrstu árásum, í haust fyrstu erf- iðleikum í starfsemi okkar. Hvorugt gat komið okkur á óvart. Við vissum, að ný heimsstyrjöld var yfirvofandi, aS hún hlaut fyrr eða síðar að skella yfir, og er hún kom, að valda okkur erfiðleikum. Ennfremur gátum við búizt við þvi, að hugmyndin um Arf íslendinga, er hlaut að beina athygli alþjóðar að Máli og menningu, kynni að vekja upp einhver Ijósfælin öfl, sem vildu félagið feigt, ýmist öfunduðust yfir gengi þess eða ótt- uðust menningaráhrif þess. En hvorugt þetta mun vinna nokk- urn bug á Máli og menningu. Styrjöldin mun liða hjá, en Mál cg menning lifa. Árásirnar heima fyrir gera aðeins að styrkja félagið. ViS svörum öllum mótblæstri á einn veg: með þvi að auka þvi meir starf okkar og árvekni. Mál og menning mun halda áfram að vaxa og eflast, eins og sjálf menningarþrá is- lenzku þjóðarinnar. Fimm þúsund manna hópur hinna beztu ís- lendinga heldur þegar öruggan vörð um líf þess. Kr. E. A. Tryggið ykkur bækur Máls og menningar frá byrjun. Eldri árgangar fást enn á 10 króna verði. Sumar bækurnar eru að verða alveg uppseldar. Enginn félagsmaður má t. d. láta Vatna- jökul, eina glæsilegustu og vinsælustu bók félagsins, vanta í safn sitt. Þið munið, að hún seldist upp strax fyrsta árið, en var endurprentuð i fyrra. LátiS hana ekki ganga í annað sinn úr hendi ykkar! 67

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.