Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Blaðsíða 26

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Blaðsíða 26
meS barnalegri frekju sem sönnun þess, að vér hljótum að skara fram úr öðru fólki og séum snjöllum snjallari. Sjálfhœlni og þjóðgort á hinsvegar ekkert skylt við ættjarðarást, en er aðeins ytra borðið á innri sannfæringu manns um að hann sé aum- ingi. Þeir menn, sem hneigjast að kenningunni um að íslend- ingar séu ekki aðeins öndvegisþjóð samkvæmt línunni frá egypzka pýramídanum og tilvitnuninni úr Jesaja, heldur einnig beinir afkomendur ísraelsmanna, og svo framvegis ad libitum, þeir liafa áreiðanlega ekki mikið álit á sjálfum sér eða liinu raun- verulega gildi íslenzku þjóðarinnar, og eru furðu lausir við að bera metnað föðurlandsvinarins í brjósti. H. K. L. Fregnir af Heimskringiu. Formaður Máls og menningar bað mig að skýra lesendum Timaritsins stutllega frá útgáfustarfsemi Heimskringlu á þessu ári. Aður en ég sný mér að þvi, vil ég minnast fáum orðum á tildrögin til þess að Heimskringla var stofnuð. Eins og allir vita, hafa orðið miklar framfarir í prentlist á siðustu áratugum. Bókagerð er því orðin ein af stærstu iðn- greinum nútímans. Og hefur heldur ekki farið varhluta af tízk- unni að því leyti, að hún er nú einkum rekin sem gróðafyrir- tæki víðast hvár, og lielzt „framleitt“ það, sem „beztur" mark- aður er fyrir. Það er sem sé orðin lifsregla margra bókaútgef- enda, að gefa ekki út aðrar bækur en þær, sem þeir telja sig geta hagnazt á. Um hitt er minna hirt, hvort þessar „bækur“ eiga í raun og veru erindi til nokkurs manns. Af þessu leiðir, að slík bókagerð sækir ekki efnið til menntaðra og góðra rit- höfunda, heldur hið gagnstæða. Mest dálæti er haft á þeim höfndum, sem skrifa „skemmtilega og meinlausa vitleysu", þ. e. skrifa um eitthvað, sem engan varðar. Það er jafnan mikið framboð af lélegum bókum, og þvi hægt að fá þær til útgáfu fyrir minna verð en góðar, og þess vegna er og hægt að verja meiru fé í auglýsingar og skrumdóma. Svo búa höfundar og útgefendur sér til þá kenningu, að almenningur vilji ekki lesa góðar bækur. Þessi fáránlega og ósvífna kenning var orðin allútbreidd hér á landi í þann mund, er nokkrir áhugamenn stofnuðu Heims- kringlu. Þeir gerðú það með þeim ásetningi að vinna gegn þess- 80

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.