Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Qupperneq 27

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Qupperneq 27
ari villu, og í þeirri trú, að takast mundi að opna góðum bók- menntum leið til lesenda í landinu. Heimskringla hóf svo starf- ið í þessum anda, og forstöðumaður var ráðinn kunnur bók- menntafræðingur. Það mun hafa verið ákveðið i upphafi, að gefa ekki út aðrar bækur en þær, sem staðizt gætu fyllstu kröf- ur um bókmenntalegt og listrænt gildi. Heimskringla hefur nú starfað i nokkur ár, og þrátt fyrir ýmsar freistingar, hefur ekki verið slakað á klónni. Hún hefur gefið út bækur samkvæmt meginreglu sinni í blíðu og striðu og hlotið miklar og vaxandi vinsældir hjá lesendum í landinu, og mikið traust rithöfundanna. En hún hefur einnig verið heyrnarvottur að hinni hljóðbæru þögn einstakra „ritdómara“, sem hafa atvinnu af því að halda lesendum í þeirri trú, að hin „meinlausa vitleysa“ sé góðar bókmenntir. Stundum hefur Heimskringla jafnvel verið kölluð óþjóðleg, enda þótt hún gefi einlcum út bækur um íslenzk efni eftir íslenzka höfunda, og hlutfallslega fleiri en nokkur annar útgefandi á landinu. Bækur eru mikið uppeldistæki bæði til góðs og ills. Slæmar eru ekki aðeins þær bækur, sem beinlínis prédika mönnum vonda siði, heldur þær bækur ekki sízt, sem kallaðar eru mein- lausar, því að þær rugla dómgreind lesandans, venja hann ó að sætta sig við hið fánýta, stela frá honum dýrmætum tíma. Bækur eru fyrst og fremst uppeldistæki, hvort sem þær eru ritaðar til fróðleiks eða skemmtunar. Bókaútgefandi er milli- göngumaður milli rithöfunda og lesenda, og á að vera trún- aðarmaður lesendanna. Iiann á að velja bækur með heilbrigð- ar þarfir þeirra fyrir augunum, en hugsa minna um pyngju sina. Bókaútgáfa er þvi þýðingarmikið trúnaðarstarf, sem les- endur í landinu eiga sjálfir að sjá um að vel sé rækt. Þeir eiga dómsvaldið sjálfir, og mega varast að fá það öðrum í hendur. Ég tel það mikla gæfu fyrir lesendur og rithöfunda, að stjórn Heimskringlu skyldi velja Kristinn E. Andrésson til þess að hafa á hendi alla forstöðu útgáfunnar. Og það sýnir hezt, að hann liefur skilið sjónarmið lesendanna, að hann skyldi einmitt hefjast handa um stofnun Máls og menningar, til þess að allir gætu eignast góðar bækur. En hin mikla útbreiðsla Máls og menningar sýnir einnig og sannar, að lesendur eru þegar teknir að kveða upp dóminn yfir þeirri villukenningu, að þeir vilji ekki lesa góðar bækur. Heimskringla hefur frá byrjun lagt megináherzlu á það, að gefa út góðar bækur eftir islenzka höfunda. Árinu 1938 lauk 81

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.