Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Blaðsíða 30
vegurinn þangað? Er það mjög vel rituð bók, og bendir á mikla.
framför hjá þesum unga og efnilega höfundi. Eru líkindi til þess-
að hún komi út fyrir jólin. Ólafur hefur stundað af kappi
nám í list sinni undanfarin þrjú ár og aðeins birt eftir sig
smásögur. Fyrsta stóra skáldsaga hans, Skuggarnir af bænum,
hlaut ágæta dóma.
Halldór Kiljan Laxness hefur nú lokið við þriðja hluta hinn-
ar miklu skáldsögu um Ólaf Kárason. Sú bók heitir Hús skálds-
ins og kemur út i byrjun desember. Þótt Halldór sé enn ung-
ur maður, eru tuttugu ár síðan fyrsta hók hans kom út. Hefur
hann afkastað miklu starfi, skrifað nærri tuttugu bækur, og auk-
ið þroska sinn og rithöfundarfrægð með hverri bók. Halldór er
tvimælalaust mestur snillingur þeirra skálda vorra, sem óbund-
ið mál rita. Bækur hans hafa verið þýddar á mörg helztu menn-
ingarmál heimsins, og hefur hann hvarvetna fengið hina beztu
dóma hjá hókmenntamönnum, og er nú frægastur allra þeirra
skálda, sem rita bækur sinar á íslenzku.
Ég hef hér að framan getið þeirra bóka, sem Heimskringla
gefur út á þessu ári, og vænti þess, að lesendur Tímaritsins
eigi hægra með að átta sig á þeim fyrir þetta yfirlit.
Þorvaldur Þórarinsson.
Einkennilegar ritgerðir eftir alþingismann.
Athugasemd frá stjórn Máls og menningar.
Undanfarin misseri liafa hirzt í dagblaðinu Timanum margar
ritgerðir, og sumar langar, um starfsemi Máls og menningar, flest-
ar eða allar eftir Jónas Jónsson alþingismann. Meginhluti þess-
ara skrifa er með þeim hætti, að þau virðast ekki ætluð til lest-
urs handa mönnum, sem eru gæddir almennri greind, þar við
hætist, að röksemdafærsla þeirra öll er of afkáraleg til þess að
hægt sé að ímynda sér, að jafnvel höfundurinn sjálfur leggi trún-
að á það, sem hann er að skrifa.
Það verður að felast eitthvert lágmark skynsamlegs málaflutn-
ings í ádeilu, til þess að sá, sem deilt er á, finni hvöt hjá sér
til andmæla. í ritgerðum alþingismannsins um starfsemi Máls og
menningar skortir þennan grundvöll, þvi miður.
Samt sem áður felast nokkrar þær aðdróttanir í ritgerðum
alþingismannsins, að valda kynni misskilningi hjá einhverjum
hinna mörg þúsund lesenda okkar, ef við létum þær liggja í þagn-
84