Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Page 31
-^rgildi með öllu. En með því að rúm þessa litla tímarits er ætl-
að þarfari hlutum, munum við takmarka okkur við aðeins tvær
af fjarstæðum alþingismannsins.
1) Ásökun um að bókmenntafélagið Mál og menning sé rekið
fyrir erlent fé.
Herra Jónas Jónsson segir svo í Tímanum 22. júlí síðastl.:
„Meðan Menningarsjóður var að rétta sig við eftir tapútgáfu ....
byrjuðu kommúnistar með stuðningi frá útlendum aðiljum, all-
umsvifamikla bókaútgáfu.“
Fullyrðingu þessa itrekar höf. i annari ritgerð um Mál og
menningu i Tímanum 29. ágúst, þannig:
„Enginn vafi er á því, að kommúnistar hafa fengið fjárgjafir
frá erlendum byltingamönnum .... ekki sízt í bókaútgáfu þessa.“
Gegn þessari staðhæfingu, vill stjórn Máls og menningar lýsa
yfir því, að það er með öllu tilhæfulaust fleipur, að við höfum
Tpegið eyrisvirði í styrk frá erlendum aðiljum. Mál og menning
er bókmenntafélag hér um hil. 5000 íslenzkra manna og kvenna
til sjávar og sveita, af öllum stéttum, flokkum og skoðunum. Auk
liessara fimm þúsund manna, sem standa undir bókaútgáfu fé-
lagsins með árstillagi sínu, tíu krónum, eru stuðningsmenn fé-
lagsins þeir íslenzkir rithöfundar og skáld, menntamenn, vis-
índamenn og lista, sem ýmist hafa samið bækur félagsins eða
gert þær úr garði. Hér skulu talin nöfn nokkurra samstarfs-
manna okkar, og eru bækur og rit eftir þá ýmist í smíðum eða
þegar á prenti: Árni Friðriksson náttúrufræðingur, Pálmi Hann-
esson rektor, dr. Sigurður Nordal prófessor, dr. Gunnlaugur
Claessen yfirlæknir, dr. Jón Helgason prófessor, Bogi Ólafsson
yfirkennari, Sigurður Þórarinsson náttúrufræðingur, Þorkell
Jóhannesson meistari, Björn Franzson eðlisfræðingur, Þórberg-
ur Þórðarson rithöfundur, Magnús Ásgeirsson skáld, Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri, Jóhannes Sveinsson Kjarval listmál-
ari, Jón Þorleifsson listmálari, Ásgeir Hjartarson sagnfræðing-
ur, byggingameistararnir Hörður Bjarnason, Eiríkur Einarsson,
Einar Sveinsson, Sigurður Guðmundsson, Þórir Baldvinsson o.
fl., o. fl.
Það eru sem sagt hinir 5000 félagsmenn og a. m. k. 20—30
þúsund lesendur Máls og menningar, ásamt ofangreindum vís-
indamönnum, sérfræðingum og snillingum, sem gert hafa Mál
og menningu að óskabarni allra lesandi fslendinga.
85