Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2011, Qupperneq 9

Ægir - 01.02.2011, Qupperneq 9
9 K Æ L I Þ J Ó N U S T A um hvernig til hafa orðið hér á landi góð og dýrmæt störf í kringum sjávarútveginn. Fag­ fólk sem er eftirsótt ekki að­ eins í íslenskum sjávarútvegi heldur einnig erlendis. Ég tel að þessum störfum geti fjölg­ að enn meira í framtíðinni. Tæknivæðingin mun aukast og kalla á meiri þjónustu og þróunarstörf.“ Stöðugleikann skortir Gunnar segir að stjórnvöld hafi undanfarin tvö ár skapað mikla óvissu um hver verði framtíð íslensks sjávarútvegs. Hún hafi leitt til þess að ekki er hægt að gera langtíma áætlanir og menn haldi því að sér höndum. „Við hjá Kælismiðjunni Frosti erum gott dæmi um þjónustufyrirtæki sem byggir allt sitt á sjávarútvegi. Rekst­ urinn hefur gengið ágætlega undanfarin ár, starfsmönnum hefur fjölgað og útflutningur er vaxandi hluti af starfsem­ inni þannig var um 40% af okkar veltu á síðasta ári vegna erlendra verkefna. Það er í sjálfu sér jákvætt að út­ flutningur á íslenskri tækni­ þekkingu vex en það má ekki gleyma því að grunnur­ inn er sterkur heimamarkað­ ur. Án hans verður enginn út­ flutningur,“ segir Gunnar. „Okkar skilaboð eru því sú, eins og svo margra ann­ arra í sjávarútvegi, að stjórn­ völd setji fram skýra og ábyrga stefnu í sjávarútvegi, stefnu sem tryggi stöðugleika til langs tíma. Óvissan hefur þegar valdið of miklum skaða.“ Starfsmenn Kælismiðjunnar Frosts um borð í norska togaranum Havtind sem er í breytingum á Akureyri þessa dagana. Frost annast sölu og uppsetningu á frystikerfi skipsins.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.