Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2011, Blaðsíða 26

Ægir - 01.02.2011, Blaðsíða 26
26 Ekki lengur kappveiðar á humri Netavertíðin fyrir austan er að ná hámarki þessa dagana en henni lýkur jafnan þegar komið er fram í apríl. Þá gefst Hornfirðingum hinsveg­ ar lítið tóm til hvíldar, því gera þarf klárt fyrir humarver­ tíðina. Að sögn Guðmundar er humarvertíðin þó ekki lengur sú sumarvertíð sem hún áður var. Veiðarnar hefj­ ast nú jafnan í apríl og á síð­ asta ár voru bátarnir að veið­ um fram í nóvember. Veið­ arnar séu auk þess ekki sömu kappveiðarnar og áður, held­ ur sé nú lögð áhersla á að veiða jafnt og þétt í vinnsl­ una. Vinnslan hefur einnig breyst, því nú er humarinn mest heilfrystur. „Það heyrir orðið til undantekninga ef humarinn er slitinn um borð bátunum. Við viljum helst fá allan humar heilan að landi og þá alveg heilan. Það þarf ekki að vera nema brotin kló til að humarinn teljist ekki lengur heill en þá fellur hann um verðflokk.“ Skinney­Þinganes gerir út 2­3 báta á humar á sumrin og vinnur aflann af þeim. Guð­ mundur segir útlit fyrir góða humarvertíð, mikil eftirspurn sé eftir humri en litlar birgðir eru til og því líklegt að gott verð fáist fyrir hann. „Það bendir auk þess ekkert til annars en að aflabrögðin ættu að geta orðið góð. Síðasta vertíð var góð, aflinn jafn og þéttur alla vertíðina þó afla­ brögðin hafi ekki verið í lík­ ingu við síðustu tvö árin þar á undan. En humarstofninn hef­ ur verið stöðugur undanfarin ár, enda held ég að flestir séu sammála um að skynsamlega hefur verið sótt í stofninn síð­ ustu ár.“ Mikill áhugi á íslenska makrílnum En Hornfirðingar láta sér ekki nægja að vinna humar á sumrin. Þá hefjast jafnan veið­ ar á síld og makríl. „Við fryst­ um bæði síld og makríl á sumrin, samhliða humar­ vinnslunni. Hér er hefð fyrir vinnslu á síld, þrátt fyrir að nú orðið sé hún aðeins fryst en ekki söltuð einnig, eins og áður var. Það hefur auk þess verið spennandi að þreifa sig áfram í manneldisvinnslu á makríl. Ég tel að við eigum alla möguleika á að gera mjög góða afurð úr makríln­ um. Búnaðurinn er fyrir hendi bæði á sjó og landi. Bæði uppsjávarskip okkar eru búin öflugum kælikerfum sem ráða við að snöggkæla makrílinn þegar hann er veiddur og frystigetan í landi er til staðar. Við erum auk þess með öfl­ ugt sölunet í Austur­Evrópu þar hefur verið mikil ánægja Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is www.isfell.is Hnífar og brýni í miklu úrvali Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Akureyri - Fiskitangi • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 F I S K V I N N S L A Skinney-Þinganes Um 6.000 tonn af loðnu voru fryst hjá Skinney-Þinganesi á nýafstaðinni vertíð. Aukaafurðirnar sem falla til við söltunina á netaþorskinum verða sífellt vermætari, s.s. hrogn, lifur, svil, magar og garnir fyrir lífefnaiðnað

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.