Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2011, Blaðsíða 34

Ægir - 01.02.2011, Blaðsíða 34
34 Þ J Ó N U S T A „Það má segja að okkar svið spanni allt frá saltkornum upp í stærstu vinnslutæki fyrir sjáv- arútveg. Hvort heldur eru um- búðir eða tæknilausnir þá bjóð- um við okkar þjónustu og eig- um viðskiptavini í sjávarútvegi bæði hér á landi og erlendis,” segir Páll Þ. Pálsson, sölustjóri Frjó Quatro í Reykjavík. Fyrir- tækið á raunar uppruna sinn í sölu á rekstarvörum til garð- yrkjubænda en síðustu ár hefur byggst upp víðtæk sala og þjónusta sem tengist sjávarút- vegi. Páll segir því sjávarútveg- inn í dag eina mikilvægustu stoð fyrirtækisins. Þekkt merki í tækjum „Meðal þekktustu merkja okkar í vélbúnaði fyrir sjávar­ útveg eru Fomaco sprautu­ söltunarvélar og pækiltankar. Fomaco eru mest seldu sprautusöltunarvélar á Ís­ landi. Frá framleiðandanum Siat erum við einnig með fjöl­ breyttan tækjabúnað fyrir pökkun og þar komum við meðal annars að framleiðslu á ferskfiski sem mikil upp­ bygging hefur verið í hér á landi að undanförnu. Um­ búðaþjónusta er mjög um­ fangsmikil hjá okkur og má þar t.d. nefna plast­ og frauð­ bakka og margar tegundir plastfilma með fjölbreytta eig­ inleika. Mest áberandi í hill­ um matvöruverslana eru lík­ lega umbúðir frá Frjó Quatro fyrir grænmeti en einnig á fyrirtækið mikla markaðshlut­ deild í umbúðabökkum fyrir kjöt og fisk ásamt plastfilm­ unni sem Frjó Quatro flytur inn,” segir Páll. Pappi í stað frauðplasts fyrir ferskfiskútflutninginn Páll segir fyrirtækið bjóða nýja lausn fyrir ferskfiskút­ flutning, þ.e. pappakassa í stað hinna hefðbundnu frauðplastkassa sem algeng­ astir hafa verið. „Þessir kassar koma frá framleiðandanum Maritime Paper Products Ltd., sem er verðlaunað fyrirtæki með ára­ tuga reynslu í framleiðslu umbúða. Kassinn hefur sama eingangrunargildi og hefð­ bundinn frauðplastkassi en munurinn er mikill þegar kemur að kostnaði við förgun á umbúðunum. Þetta er atriði sem framleiðendur og kaup­ endur afurða hafa vaxandi áhuga á enda krafa dagsins í dag að umbúðir geti farið í endurvinnslufarveg. Þannig er um þennan nýja kassa frá Maritime, hann er vatnsheld­ ur og úr endurvinnanlegu efni,” segir Páll en kassinn er samanbrjótanlegur og fer því lítið fyrir umbúðunum í flutn­ ingi. „Við teljum að nýjar lausn­ ir muni leysa frauðplastið af hólmi og viljum því stuðla að því að framleiðendur hafi að­ gang að annarri lausn sem stenst allar aðrar kröfur, svo sem hvað varðar kælingu hráefnisins og meðhöndlun. Fyrir svo utan að frauðplastið er beintengt olíuverði og seg­ ir sig sjálft að umbúðirnar eru þar af leiðandi orðnar dýrar. Pappinn er talsvert hagkvæm­ ari lausn,” segir Páll en pappakassinn og aðrar lausn­ ir mun Frjó Quatro kynna á Íslensku sjávarútvegssýning­ unni í haust. Nákvæmnisvogir: 5 ÁRA ÁBYRGÐ 35 ára reynsla Frá 1 upp í 3 aukastafi.   www.vibra.co.jp/global  þar finnur þú réttu vogina. Nánari uppl. í síma 567 88 88 Frjó Quatro með víðtæka þjónustu við sjávarútveginn: Allt frá saltkornum upp í stærstu vinnslutæki - áhersla lögð á nýja gerð kassa fyrir ferskfiskútflutning Páll Þ. Pálsson, sölustjóri Frjó Quatro. Myndir: LalliSig Endurvinnanlegur kassi fyrir flutning á fersku hráefni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.