Ægir - 01.02.2011, Blaðsíða 19
19
F I S K V I N N S L U T Æ K N I
hver líftími verður á fullunn
inni afurð.
Í stuttu máli, þá gerir ofur
kælingin fiskverkendum sem
framleiða í ferskar afurðir til
útflutnings kleift að kæla hrá
efnið niður undir frostmark
án þess þó að fiskholdið
frjósi. Fiskurinn kemur þá
hálf stífur inn á flæðilínuna
og það gerir einnig að verk
um að betri nýting fæst í
vinnsluferlinu, sem er einnig
eitt af mikilvægustu þáttum
vinnslunnar. Í ferskfiskvinnsl
unni snýst baráttan dag frá
degi um ferskleikatíma afurð
arinnar, bæði til að tryggja
kaupendum erlendis sem
besta vöru og einnig til að
hægt sé að nýta möguleika
skipaflutninga í auknum mæli
til að flytja afurðirnar á mark
aði erlendis. Með ofurkæling
unni í vinnslunni hafa mæl
ingar sýnt að ferkleikatímabil
afurðanna lengist frá tveimur
upp í fjóra sólarhringa.
Óskar bendir á að þegar
gosið í Eyjafjalljökli á síðasta
ári stöðvaði allt flug til og frá
landinu í nokkra daga kom
það mjög harkalega við þá
sem voru að senda ferskan
fisk með flugi á markaði. Þeir
runnu út á tíma og urði að
frysta fiskinn með tilheyrandi
verðfalli. Þennan skaða hefði
mátt minnka til muna ef
menn hefðu verið með hrá
efnið ofurkælt.
„Ofurkæling og Innova
opna fiskverkendum ýmsa
nýja möguleika til betri nýt
ingar á hráefni. Við skulum
hafa í huga að fiskverkendur
hafa sjaldnast mikla stjórn á
söluferlinu eða á hráefnis
verðinu. Þeir geta hins vegar
stjórnað vinnslunni og þar er
um við með tól sem gera
þeim kleift að taka réttar
ákvarðanir og ná betri ár
angri,“ segir Óskar að lokum.
Ofurkældur fiskur fer talsvert stinnari í gegnum vinnsluferilinn en hefðbundið er.
Til hægri er vinnustöð með Innova hugbúnaði.