Ægir - 01.02.2011, Qupperneq 11
11
F I S K V I N N S L U V É L A R
„Reynslan sem komin er á
M-700 flökunarvélina frá okk-
ur lofar mjög góðu. Sérstak-
lega er ánægjulegt að sjá að
nýtingarprósentan er mjög góð
og hvert eitt prósent sem næst
í betri nýtingu er fljótt að um-
breytast í verulegar fjárhæðir
fyrir framleiðendur. Reynslan
sem komin er af vélinni er því í
fullu samræmi við það sem við
vonuðumst eftir,“ segir Sölvi
Lárusson hjá fyrirtækinu Vél-
fagi í Ólafsfirði en það hefur
nú sett á markað nýja flökun-
arvél fyrir bolfisk sem líkast til
er fyrsta flökunarvélin sem
hönnuð er frá grunni og fjölda-
framleidd hér á landi. Vélin er
nú þegar komin um borð í
nokkur íslensk vinnsluskip og
og landvinnslur, t.d. í land-
vinnslu Samherja á Dalvík.
Sölvi segir vaxandi áhuga á
vélinni og fyrirspurnir eru tekn-
ar að berast erlendis frá.
Tæringarfrí, fyrirferðarlítil og
skilar góðri nýtingu
Vélfag hefur um árabil fram
leitt íhluti fyrir fiskvinnsluvélar
og í framhaldi af því hófst
hönnun á eigin fiskvinnslu
búnaði. Í dag framleiðir fyrir
tækið M500 hausarann og
síðan M700 flökunarvélina.
En hvað er það sem einkennir
flökunarvélina umfram aðrar
flökurnarvélar?
„Sérstaða vélarinnar liggur í
nokkrum þáttum. Sá veiga
mesti er að hún er algjörlega
tæringarfrí, þ.e. alfarið smíðuð
úr ryðfríu stáli og plasti. Hefð
bundnu flökunarvélarnar hafa
gjarnan verið að uppistöðu til
úr áli og það vill tærast upp
og slitna við þrif og það álag
sem er á vélunum í daglegri
vinnslu. Það gerir að verkum
að erfiðara er að halda öllum
stillingum nákvæmum og fá
þannig það besta út úr vélun
um hverju sinni. Auk þessa er
vélin talsvert fyrirferðarminni
en menn hafa vanist hvað
varðar flökunarvélar og sá
þáttur skiptir ekki hvað síst
máli í vinnsluskipunum þar
sem rýmið er lítið. Allt að
gengi hvað varðar þrif er auð
velt en kröfur á þann þátt í
vinnslunum eru sífellt að
aukast og lykilatriði að hægt
sé að ná í þrifum til allra hluta
vélarinnar. Loks er það síðan
mjög rík áhersla sem lögð var
við hönnun vélarinnar á að
auka flakanýtinguna og hvað
þann kost vélarinnar varðar er
auðveldast að vísa til reynsl
unnar sem notendur hennar
hafa séð í sínum framleiðslu
upplýsingum. Þær tölur undir
strika að vélin er fyllilega að
skila betri nýtingu,“ segir Sölvi
en fyrsta vélin af þessari gerð
var sett upp hjá Norðurströnd
á Dalvík fyrir um fimm árum.
Síðan hafa vélar verið settar
um borð í frystiskipin Sigur
björgu ÓF og Mánaberg ÓF,
Þerney RE, Barða NK og
nokkrar landvinnslur.
Áhugi á innlendum og erlend-
um markaði
Hausarinn M500 frá Vélfagi
byggist að sögn Sölva á sömu
hugmyndafræði og flökunar
vélin, þ.e. tæringarfríum efn
um. Bæði þessi tæki hafa
spurst vel út á markaðnum og
segir Sölvi að fyrirspurnir um
flökunarvélina hafi borist frá
Noregi, Færeyjum og víðar að
úr Evrópu. „Við höfum ekki
lagt mikið upp úr kynningu
eða auglýsingum enn sem
komið er og það má því segja
að reynslan sé í þessu tilfelli
besta kynningin,“ segir Sölvi
en hjá Vélfagi er þessa dagana
unnið að smíði á vél upp í
pöntun og margir eru áhuga
samir um kaup.
Eins og áður segir er flök
unarvélin M700 hugsuð fyrir
vinnslu á bolfiski, þ.e. þorski,
ýsu, keilu, ufsa og sambæri
legum fisktegundum. Vélin
ræður við fisk frá 25 cm upp í
95, og er þá miðað við haus
og sporð. Miðað er við að vél
in geti á lægsta hraða flakað 5
fiska á mínútu en 45 á mesta
hraða.
Á heimasíðu Vélfags má sjá
kynningarmyndbönd um flök
unarvélina M700 og aðrar
upplýsingar um framleiðslu
fyrirtækisins.
Starfsmenn Vélfags við nýju flökunarvélina. Frá vinstri: Bjarmi Sigurgarðarsson og
Ólöf ýr Lárusdóttir, sem jafnframt eru eigendur fyrirtækisins, Ómar Sævarsson,
Þormóður Sigurðsson og Auðunn Guðnason.
Vélfag í Ólafsfirði hannar og fjölda-
framleiðir flökunarvél og hausara:
Íslensk flökunar
vél sem skilar
hárri nýtingar
prósentu
Sölvi Lárusson sýnir hversu auðvelt aðgengi er að öllum flötum vélarinnar til við-
halds og þrifa.
Flökunarvélin M-700 frá Vélfagi í
Ólafsfirði. Íslensk hönnun og smíð - og
hefur reynst mjög vel í bæði bolfisk-
vinnslum í landi og á sjó.