Ægir - 01.02.2011, Page 16
16
F L U T N I N g A T Æ K N I
„Það leikur enginn vafi á að
tækifæri fyrir sjávarútveginn
eru fólgin í flutningatækninni
og árangri í auknum stöðug-
leika í kæliferlum ferskra af-
urða. Flutningaferlarnir, bæði
á sjó og í flugi, hafa ekki verið
kortlagðir fyrr en á allra síð-
ustu árum og þær rannsóknir
sem fram hafa farið hjá okkur
í Matís og í samstarfi við
framleiðendur hafa skilað
bættum ferlum. Flutningar
með skipum eru nú orðnir
raunhæfari kostur en áður en
nú er í burðarliðnum verkefni
þar sem sérstaklega verður
beint kastljósi að því að bæta
hitastýringuna í flugflutningi,“
segir Björn Margeirsson, verk-
efnastjóri hjá Matís og dokt-
orsnemi í vélaverkfræði við
Háskóla Íslands. Hann hefur
unnið að rannsóknum á flutn-
ingaferlum ferskra sjávaraf-
urða á erlenda markaði og
hagnýtingu vatmaflutningslík-
ana til að bæta hitastýringu í
fyrrgreindum flutningaferlum.
Flugflutningar nauðsynlegir
áfram
Með tilkomu ferskfiskfram
leiðslu og útflutnings með
flugi jókst áhugi á rannsókn
um á flutningaferlunum, enda
mjög mikilvægur hlekkur í
því að tryggja kaupendum er
lendis sem ferskasta vöru. Í
upphafi einskorðaðist vinnsl
an við svæðið sem næst ligg
ur Keflavíkurflugvelli en sem
kunnugt er vinna nú fyrirtæki
um allt land afurðir í fersk
fiskútflutning. Sjóflutningar
hafa einnig komið í vaxandi
mæli inn í þessa mynd og
með ýmsum tæknilegum
framförum, til dæmis í um
búðum. Það hefur tekist að
lengja þann tíma sem hægt er
að halda vörunni ferskri. Og
þar með opnast möguleikar á
að flytja með skipum á fjar
lægari markaði en skipaflutn
ingar eru talvert kostnaðar
minni en flugflutningar.
Björn bendir á að sjóflutn
ingar geti aldrei að fullu kom
ið í staðinn fyrir flugflutn
ingana á ferskum afurðum.
Verðmætustu afurðirnar og
jafnframt þær afurðir þar sem
krafist er mesta ferskleikans
af kaupendum komi alltaf til
með að verða fluttar með
flugi.
„Í flutningum með flugi er
hitaálagið meira á vöruna en í
sjóflutningunum vegna hita
sveiflna við fermingu og af
fermingu flugvéla og bíla.
Okkar rannsóknir hafa sýnt að
í dæmigerðri flugflutnings
keðju með forflutningi innan
lands þá geta hitasveiflurnar,
bæði fyrir millilandaflugið, í
fluginu og eftir það stytt
geymsluþol afurðarinnar um
15 daga, allt eftir hve um
hverfishitaálagið er mikið. Og
er þá miðað við besta mögu
lega geymslu og flutnings
hitastig sem er um 1 gráða.
Auk þess að beina sjónum
okkar að þessum hitasveiflu
punktum þá höfum við með
hjálp tölvuvæddra varmaflutn
ingslíkana þróað nýjar gerðir
af frauðplastkössum í sam
starfi við Promens Tempru.
Nýju kassarnir geta aukið
bæði ferskleikatímabilið (sem
miðast við einkunn yfir 7 á
Torry skalanum) og geymslu
þol (yfir 5.5 á Torry) ferskfisk
afurða í flugflutningi um 13
daga þannig að segja má að
hægt sé með mörgum þáttum
að varðveita ferskleika afurð
anna og vinna þannig gegn
neikvæðum áhrifum sem við
vitum af. Sumir af þessum
þáttum eru viðráðanlegir en
aðrir ekki. En það er um að
gera fyrir okkur að bæta allt í
þessum ferlum sem við höfum
tök á að bæta enda eru ís
lenskar ferskfiskafurðir há
gæðavara, sem standast verða
síharðnandi samkeppni, t.d.
frá Noregi,” segir Björn.
Stöðugri kæling í gámum
Eðli málsins samkvæmt er
munur á ferskleikatímabili af
urðanna eftir því hversu lang
ur ferill á sér stað hér innan
lands áður en kemur að flugi.
Þetta atriði á einnig við að
nokkru leyti um flutninga
með skipum því fæstir fram
leiðendanna eru það stórir að
gámar fari beint frá þeim full
lestaðir. Björn segir að oftast
þurfi því einhvern flutning
innanlands áður en varan fer í
gáma „en munurinn er sá á
skipunum og fluginu að eftir
að varan er komin inn í lok
aða gáma þá er kominn á
stöðugleiki í umhverfi vör
unnar og fátt hefur teljandi
áhrif á hana þar til komið er á
leiðarenda erlendis. Í rann
sóknum okkar hefur reyndar
Mikilvægi kælingar ferskra afurða í útflutningi:
Flugflutningaferlana
er hægt að bæta
- segir Björn Margeirsson, verkefnastjóri hjá Matís og doktorsnemi við Háskóla Íslands
Björn Margeirsson segir allt að vinna
að sem best kæling haldist á fiskinum
allt frá veiðum til kaupanda erlendis.
Ferskir þorskhnakkar í nýrri gerð frauðkassa.