Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2011, Qupperneq 24

Ægir - 01.02.2011, Qupperneq 24
24 Höfn í Hornafirði er þekktur vertíðarbær. Á árum áður skelltu margir sér á vertíð til Hornafjarðar, tóku hraustlega skorpu og nutu svo hýrunnar í rólegheitum í kjölfarið. En nú er öldin önnur. Hjá sjávarút- vegsfyrirtækinu Skinney- Þinganesi er allt árið ein sam- felld vertíð; loðnu-, neta-, humar- og síldarvertíðarnar ná saman svo að sjaldan gefst tími til að slaka á. „Það gefst ekki oft tími til að líta upp og kasta mæð­ inni,“ segir Guðmundur H. Gunnarsson, framleiðslustjóri Skinneyjar­Þinganess. „Auð­ vitað koma stundir þar sem lítið er um að vera en stund­ um er vandinn að finna tíma fyrir nauðsynlegt viðhald og endurnýjun. En við lítum á það sem lúxusvanda. Lykilat­ riði í starfsemi Skinneyjar­ Þinganess er að stilla saman veiðar og vinnslu. Það er stefnan að vera sjálfbærir að mestu í hráefnisöflun og eiga veiðiheimildir til að halda uppi vinnslu á ársgrundvelli. “ Í dæmigerðu árferði hefst starfsárið hjá Skinney­Þinga­ nesi með loðnuvertíð í janú­ ar. Loðnuvertíðinni er nú að ljúka og ekki er annað að heyra á Guðmundi en þar á bæ séu menn afar sáttir við afraksturinn eftir hina lang­ þráðu loðnuvertíð. „Loðnu­ frystingin gekk vel, það er að segja vinnslan sjálf. Það var hinsvegar tíðarfarið sem hamlaði veiðunum verulega. En við erum engu að síður mjög ánægðir með vertíðina og það var ljúft að fá loksins góða vetrarloðnuvertíð aftur.“ Hámarksnýting á tækjum og mannskap Skinney­Þinganes frysti loðnu fyrir bæði Japansmarkað og Austur­Evrópumarkað en Guðmundur áætlar að alls hafi um 30% af heildarloðnu­ kvóta félagsins, eða 6.000 tonn, farið til frystingar. „Við komum þannig vel undan vertíðinni. Það gekk vel að heilfrysta loðnu fyrir Japan eftir að hrognafyllingin var orðin næg en við lögðum einnig áherslu á að frysta fyr­ ir Austur­Evrópu. Við erum með öfluga frystingu en einn­ ig mjöl­ og lýsisverksmiðju, þannig að það hentar okkur vel að flokka stóra karlinn of­ an af og frysta fyrir Austur­ Evrópu. Það er þægilegt að geta valið í vinnsluna á þenn­ an hátt því þannig nýtist vinnslan best, einkum núna þegar verð á mjöli og lýsi er hátt. Þannig náum við að há­ marka nýtingu á bæði tækj­ um og mannskap.“ Auk heilfrystingar voru líka fryst loðnuhrogn fyrir Japansmarkað en einnig fyrir markaði í Austur­Evrópu. „Það hefur reyndar ekki verið lögð sérstaklega mikil áhersla á loðnuhrognafrystingu hér á Hornafirði. Við frystum þó talvert af hrognum af Japans­ gæðum. Samhliða loðnuver­ tíðinni er netavertíðin nú í fullum gangi á Hornafirði. Netavertíðin, eða vetrarvertíð­ F I S K V I N N S L A HDS 10/20-4 M 30-200 bör 500-1000 ltr/klst HDS 8/17-4 M 30-170 bör 400-800 ltr/klst HDS 5/11 U/UX 110 bör 450 ltr/klst 1x230 volt Gufudælur Aflmiklir vinnuþjarkar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Vertíð árið um kring Í fiskvinnslu Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði fellur aldrei úr dagur Aflabrögðin á netavertíðin Austanlands hafa verið einstaklega góð, svo góð að stundum þykir nóg um í vinnslunni í landi.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.