Ægir - 01.04.2011, Síða 18
18
Helstu kostir:
• Dregur ekki í sig vökva
• Léttari en hefðbundin kassi
• 100% endurvinnanlegur
• Hægt að fá kassa í ýmsum litum
• Fáanlegur hand- eða vélreistur
• BRC vottaður
Vélreistur kassi Handreistur kassi
Hornin eru fastlímd í kassann Kassinn handreistur og plast-
hornum smellt í hornin
Auðveldur í stöflun, situr vel á bretti
Sjómenn til hamingju
með daginn
Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
PREN
TU
N
.IS
Nýr 25 kg saltfiskkassi
úr bylgjuplasti
hafa ISO 14040 og 14044 staðlarnir verið
grunnur þeirrar aðferðafræði sem notuð
er við vistferilsgreiningu.7
Fyrirtæki erlendis eru farin að nýta
vistferilsgreiningu í ríkari mæli en áður
og niðurstöðurnar notaðar til að fram-
leiða m.a. umhverfisvænni vörur. Auknar
kröfur um aðhald í mengunarmálum ger-
ir það að verkum að gera má ráð fyrir að
vistferilsgreining eigi enn frekar eftir að
vaxa fiskur um hrygg.
Við framkvæmd vistferilsgreiningar
þarf að skilgreina svokallaða aðgerðar-
einingu (e. Functional unit), en hún lýs-
ir eigindlegum og mælanlegum þáttum
þeirra vöru eða þjónustu sem er verið að
greina hverju sinni. Þá er hún notuð sem
grunneining til samanburðar á niðurstöð-
um mismunandi vistferilsútreikninga.
Einnig eru kerfismörk (e. System Bound-
aries) skilgreind, en þau eru afmörkun
þess kerfis sem er skoðað í greining-
unni, t.d. hvaða hlutar kerfisins eru
skoðaðir og hversu víðtæk vistferils-
greiningin er.
Vistferilsgreiningar á íslenskum
sjávarafurðum
Birtar hafa verið niðurstöður vistferils-
greininga fyrir íslenskar sjávarafurðir. Í
fyrstu greiningunni frá árinu 2003, þar
sem skoðuð voru umhverfisáhrif fros-
inna þorskafurða yfir allan vistferilinn
kom í ljós að umhverfisáhrif mátti fyrst
og fremst rekja til fiskveiðanna sjálfra
(notkun botnvörpu).8,9 Í nýlegri rann-
sókn, sem var lokaverkefni frá Háskóla
Íslands árið 2009, voru borin saman um-
hverfisáhrif frá línuveiðum og notkunar
botnvörpu. Niðurstöðurnar sýndu að
kolefnisspor botnvörpuveiða eru rúm-
lega þreföld á við áhrifin frá línuveið-
um.10 Niðurstöður þessara tveggja ís-
lensku vistferilsgreininga sýndu að veið-
unum slepptum, að flutningar á erlendan
markað skipta mestu máli hvað umhverf-
isáhrif varðar.
Umhverfisáhrif mismunandi flutninga-
leiða var viðfangsefni verkefnisins um
„Hagnýtingu umhverfisgilda fyrir sjávar-
afurðir“, sem var unnið sumarið 2010.11
Markmiðið var að meta kolefnisspor
fyrir flutningaferil kældra fiskflaka í
frauðplastkössum (EPS, Expanded Po-
lystyrene) frá Íslandi til markaða í Evr-
ópu með flutningaskipi annars vegar og
flugi hins vegar. Notast var við þekktar
flutningskeðjur sem höfðu verið kannað-
ar sem hluti af prófunum á þráðlausum
skynjara í mars 2010 og má sjá flutnings-
leiðina á mynd 2.12 Flutningar með flugi
voru að hluta til áætlaðir en einnig
byggðir á birtum gögnum um flutninga-
ferli frá árinu 2009.13
Vistferilsgreiningin var framkvæmd
með notkun LCA hugbúnaðarins GaBi
Education frá PE International. Aðgerð-
areining greiningarinnar var valin eitt
bretti af ferskum bolfiskflökum (roð-
laus), sem unnin voru úr afla á íslensk-
um fiskimiðum og flutt á markað í Evr-
ópu. Hvert bretti er hlaðið með 108 EPS
kössum sem hver um sig inniheldur 5 kg
af ferskum flökum.
Í þessari greiningu voru það flutn-
ingsferlarnir sem lágu til grundvallar og
því var heildar vistferill fisksins ekki
skoðaður, heldur var valið að byrja
greininguna þar sem afla er landað og
R A N N S Ó K N I R
Mynd 3: Vistferill bolfiskflaks ásamt kerfismörkum vistferilsgreiningarinnar innan græna kassans
Mynd 4: Flæðirit sem sýnir ílag og frálag í vistferli kældra fiskflaka, ásamt tímalínu og fjölda kílómetra sem
ferski fiskurinn er fluttur. Sjóflutningar til vinstri og flug til hægri
Veiðar
Förgun
Neysla
Eldamennska
Flutningar til söluaðila
og neytenda
Landflutningar
í Evrópu
Flutningar til Evrópu
Landflutningar til
hafnar / flugvallar
Vinnsla og geymsla í frysti
Siglt
til hafnar