Ægir - 01.04.2011, Page 20
20
hann fluttur í geymslu. Eftirfarandi skref
eru innifalin í greiningunni:
1. Vinnsla, pökkun og geymsla í kæli
fyrir og eftir vinnslu
2. Flutningar fisks í flutningabílum í
kæligámum
3. Flutningar með skipaflutningum og
flugi
Á mynd 3 má sjá allan vistferil vör-
unnar ásamt kerfismörkum greiningar-
innar. Heildarferli (ílög og frálög) grein-
ingarinnar eru skýrð nánar á mynd 4 og
sýnir fjölda kílómetra og þann tíma sem
heildar flutningskeðjan tekur, frá löndun
þar til varan er afhent söluaðilum í Evr-
ópu.
Flutningaleið skiptir máli
Vistferilsgreiningin sýndi að val á flutn-
ingsmáta skiptir miklu máli hvað varðar
útblástur gróðurhúsalofttegunda. Flutn-
ingaferill þar sem kældar fiskafurðir eru
fluttar með flugi hefur 18 sinnum stærra
kolefnisspor en fiskur fluttur með flutn-
ingaskipi (mynd 5). Kolefnisspor fyrir 1
kg af ferskum flökum fluttu með flugi
var metið sem 4,7 kg CO2-ígildi en 0,3
kg CO2-ígildi fyrir 1 kg af flöku fluttum
sjóleiðis.
Niðurstöðurnar sýna að það er einnig
mikilvægt að sem stystar vegalengdir séu
farnar með landflutningum á flutninga-
bílum þar sem sá hluti flutningsins veld-
ur töluverðum umhverfisáhrifum (tafla
1). Í raun sýna niðurstöðurnar að flutn-
ingar með flutningabíl í sjóflutningakeðj-
unni losa töluvert meira magn af gróður-
húsalofttegundum en sjóflutningarnir
sjálfir, þrátt fyrir að vegalengdin sem far-
in er á sjó er nánast tvöföld vegalengd
landflutninganna. Vinnsla í landi veldur
hlutfallslega mjög lítilli losun gróður-
húsalofttegunda. Hins vegar valda EPS
kassarnir rúmlega helmingi allrar losunar
gróðurhúsalofttegunda í sjóflutningskeðj-
unni og er næst stærsti valdur losunar í
flugkeðjunni á eftir fluginu. Með vali á
annari gerð umbúða fyrir kældan fisk
fluttum með sjóflutningi í hitastýrðum
gámum mætti lækka enn frekar sótspor-
ið, þar sem EPS kassarnir eru svo stór
þáttur. Slíkt er erfiðara varðandi flugið
þar sem hitastýrðir flutningar eru ekki í
boði og því nauðsynlegt að nota kassa
með gott einangrunargildi, sem er meg-
inástæðan fyrir notkun EPS umbúðanna.
Niðurstöðurnar eru í samræmi við aðrar
rannsóknir sem gerðar hafa verið á mis-
munandi flutningaleiðum á sjávarafurð-
um, sem sýna allar að umhverfisvænasti
flutningsmátinn eru sjóflutningar, saman-
borið við flug og landflutninga.14
Áhrif kælingar á umhverfisgildi í
sjóflutningum
Í verkefninu var einnig gerð forathugun
á hve mikil umhverfisáhrif mismunandi
geymsluhitastig við landflutninga (-1°C,
4°C og -18°C) hafa á sjóflutninga keðj-
unni. Miðað var við notkun á dieselolíu
til að viðhalda kælingu. Niðurstöður
sýna að það að flytja frosinn fisk (-18°C)
veldur um tvöfalt meiri losun gróður-
húsalofttegunda en ef fiskurinn er fluttur
ferskur. Hins vegar verður að líta til þess
að losun frá kældum gámum var mjög
lágt hlutfall af heildarlosun flutningskeðj-
unnar, en mikilvægt er að meta alla þá
þætti sem hægt er að hafa áhrif á til að
bæta umhverfisáhrif allrar virðiskeðjunn-
ar.
Umhverfisvitund íslenskra hagsmunaaðila
Viðhorf hagsmunaaðila til umhverfis-
merkinga var skoðað í verkefninu til að
kanna möguleika þess að hagnýta um-
hverfisgildi fyrir sjávarafurðir í markaðs-
legu samhengi. Send var út vefkönnun
til hagsmunaaðila í virðiskeðju íslenskra
sjávarafurða. Samtök fiskvinnslustöðva,
Landssamband smábátaeigenda og Sam-
tök fiskframleiðenda og útflytjenda
áframsendu spurningalista til félags-
manna sinna auk þess sem könnun var
send beint á starfsmenn fyrirtækja sem
eru virk í virðiskeðjunni. Niðurstöður
könnunarinnar gefa vísbendingu um við-
horf íslenskra hagsmunaaðila til hagnýt-
ingu umhverfisgilda fyrir sjávarafurðir
(n=55).
Spurt var hvort þátttakendur teldu að
umhverfisgildi (t.d. kolefnisspor, matar-
mílur o.s.frv.) geti haft vægi fyrir íslensk-
ar sjávarafurðir. Nánast jafnt hlutfall þátt-
takenda töldu að umhverfisgildi geti haft
mikilvæga þýðingu fyrir íslenskar sjávar-
afurðir og þeir sem töldu að svo væri
ekki (mynd 6). Þeir þátttakendur sem
svöruðu ofangreindri spurningu játandi
voru einnig spurðir í hverju það vægi
fælist. Á mynd 7 má sjá að þátttakendur
telja fyrst og fremst að umhverfisgildi
hafa mikilvægi þegar kemur að markaðs-
setningu afurða og bættri ímynd fyrir-
tækisins (42%). Töluverður hluti (36%)
telja að umhverfisgildi geti haft vægi
þegar kemur að betri nýtingu afurða og
minnkun úrgangs. Umhverfisgildi eru
talin hafa minnst vægi þegar kemur að
bættri stýringu virðiskeðjunnar og aukn-
um hagnaði (18%).
Um þessar mundir eru gæði vörunnar
og geymsluþol, ásamt kostnaði, þau at-
riði sem helst er litið til við val á flutn-
ingsleiðum sjávarafurða á markaði. Ekki
er litið til umhverfisgilda við val á flutn-
ingsleiðum. Ef spurn eftir umhverfisvæn-
um vörum heldur áfram að vaxa getur
það leitt til þess að framleiðendur þurfi
að fara að endurskoða val á flutnings-
leiðum. Niðurstöður neytendarannsókna
hafa sýnt að umhverfismál geta oft og
tíðum stýrt vali neytenda við kaup á
vöru og þjónustu.15 Umhverfisvitund
neytenda virkar því sem hvati fyrir fyrir-
tæki til að upplýsa þá um umhverfishæfi
vöru eða þjónustu í markaðslegum til-
gangi.
Lokaorð
Atvinnugreinin sér möguleika í að nýta
sér upplýsingar um umhverfisgildi í
markaðslegu samhengi, en þörf er á að
stuðla að umræðu um gagnsemi um-
hverfismerkinga og betri kynningu á
hvað felst í slíkum merkingum. Mat á
sjálfbærni framleiðslu er mun umfangs-
meira verkefni þar sem þörf er á að
R A N N S Ó K N I R
Mynd 5: Myndræn framsetning á hlutfallslegum mun
kolefnisspors frá flutningum fersk fisks með flugi og
sjóflutningum. Kolefnisspor fyrir flugkeðjuna (2.543
kg CO2/bretti) er 18 sinnum stærra (t.v.) en kolefnis-
spor frá sjóflutningskeðjunni (145 kg CO2/bretti)
(t.h)
Tafla 1: Losun gróðurhúsalofttegunda fyrir skilgreinda aðgerðareiningu greiningarinnar frá flutningskeðjunum
tveimur í kg CO2 ígildi. Einnig hlutfallsleg dreifing losunar fyrir mismunandi ferla vistferilsins
Sjóflutningar Flutningar með flugi
kg CO2-ígildi kg CO2-ígildi
EPS pakkningar 79 54% 79 3%
Vinnsla 7 5% 7 0%
Landflutningar 37 25% 32 1%
Flutningar á sjó/ með flugi 23 16% 2425 95%
Samtals 146 100% 2543 100%
Flug Skip