Ægir - 01.04.2011, Page 52
52
hafi smábátaútgerð aukist á
síðustu árum og strandveiði-
kerfið aukið fjölda báta á sjó.
Miklu skiptir að geta á hverj-
um tíma vaktað miðin sem
best og segir Halldór ósk-
astöðu að fjölgað verði land-
ratsjám hringinn í kringum
landið til að auka öryggi kerf-
isins. Þrátt fyrir sjálfvirkt AIS
tilkynningarkerfi sem nú er
að komast á í skipa- og báta-
flotanum sé með ratsjám
hægt að hafa enn nákvæmari
yfirsýn.
„AIS kerfið hefur marga
kosti og til að mynda þann
að þau skip sem búin eru AIS
tækjum sjá önnur í kringum
sig, svo fremi sem þau séu
einnig með AIS búnað. Enn
eru örlitlar gloppur í þessu
kerfi á miðunum en verið að
vinna í því að bæta þar úr.
Öll þessi yfirsýn er okkur
mikilvæg hvað öryggisþáttinn
varðar en ekki síður hvað
varðar löggæsluhlutverk okk-
ar. Ratsjárnar eru einmitt mik-
ilvægar fyrir okkur til að geta
séð skip sem ekki hafa kveikt
á AIS kerfinu eða öðrum fjar-
eftirlitsbúnaði og ætla sér að
fara um lögsöguna án þess
að nokkur viti af þeim,“ segir
Halldór.
Bylting með tilkomu nýs Þórs
Á niðurskurðartímum hefur
þurft að gæta aðhalds í
kostnaði við úthaldi varðskip-
anna og flugflotans og segir
Halldór það vissulega óæski-
lega þróun. Einnig hafi hin
nýja eftirlitsflugvél TF-SIF
valdið byltingu í eftirliti með
lögsögunni og komi sér vel
varðandi mengunareftirlit og
við almenn leitar- og björg-
unarstörf.
„Bæði skiptir máli að
halda varðskipunum sem
mest á sjó vegna löggæslunn-
ar og einnig til að vera nær-
tæk til að veita skipum að-
stoð ef á þarf að halda. Einn-
ig er mjög mikilvægt að geta
fjölgað aftur í þyrluflotanum
en í dag erum við með tvær
þyrlur en teljum lágmark að
hafa fjórar. En vonandi sjáum
við fram á betri tíð hvað
varðar úthald varðskipanna
og aukningu þyrluflotans og
fyrir okkur verður mikil fram-
för í haust þegar við tökum á
móti nýja varðskipinu Þór
sem nú er í smíðum í Chile.
Það mun breyta mjög miklu
fyrir okkur hvað varðar bæði
almennt eftirlit og mengunar-
varnir, auk þess sem dráttar-
geta skipsins er mjög mikil.
Nýi Þór verður þannig bylting
fyrir Landhelgisgæsluna og
mikið framfaraskref fyrir ör-
yggi sjófarenda við landið,“
segir Halldór.
Þyrlur og varðskip eru þungamiðjan í tækjaflota Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan sinnir löggæslu og
eftirliti á hafsvæðinu við landið.
Þessi skip fengu
ATW kerfi
árið 2010.
Við bíðum eftir þér
Starfsfólk
Naust Marine
sendir sjómönnum
sínar bestu kveðjur
í tilefni af
sjómannadeginum
Miðhellu 4 • 221 Hafnarfirði • Sími: 4148080 • www.naust.is • naust@naust.is
Ö R Y G G I S M Á L