Ægir - 01.04.2011, Síða 56
56
F R É T T I R
Nú um miðjan maí var opnað-
ur nýr veitingastaður á efri
hæð Byggðasafnsins á Garð-
skaga sem ber mun hið
skemmtilega nafn „Tveir vit-
ar“. Eigendur staðarins eru
hjónin Ásbjörn Pálsson, mat-
reiðslumeistari og Ingibjörg S.
Ármannssdóttir en þau tóku
við rekstri kaffihússins Flös-
innar á sama stað í fyrrahaust
og tóku ákvörðun um að
breyta því nú í vor í fullbúið
veitingahús sem býður upp á
súpu, salatbar og létta rétti í
hádeginu, kaffiveitingar yfir
miðjan daginn og rétti af mat-
seðli á kvöldin. Ásbjörn viður-
kennir að líkast til séu fáir
veitingastaðir staðsettir inni á
byggðasafni en reynslan sýni
að safnið og veitingarekstur-
inn fari mjög vel saman.
„Hér af veitingastaðnum
má horfa yfir safnið og út á
sjóinn,þar sem sást til hvala
nánast hvern einasta dag síð-
asta sumar. Hér erum við
staðsett nokkra metra frá
fjöruborðinu og höfum ein-
stakt útsýni vítt um Reykja-
nesið, Faxaflóann og upp á
Snæfellsnesfjallgarðinn. Héð-
an er stórfenglegt að sjá sól-
ina leika við fjallgarðana og
hafflötinn og finna nálægðina
við sjóinn,“ segir hann.
Spriklandi nýtt sjávarfang
Eins og áður segir mun veit-
ingastaðurinn bera nafnið
Tveir vitar, sem að sjálfsögðu
er dregið af vitunum tveimur
á Garðskagatánni, steinsnar
frá byggðasafninu.
„Við munum við leggja
áherslu á hráefni af heima-
svæðinu, sem að sjálfsögu er
fiskmeti. Hér höfum við
krækling úr Vogunum, salt-
fisk úr Garðinum, sjóbleikju
úr Grindavík, kola og rauð-
sprettu frá Sandgerði þannig
að við þurfum ekki að leita
langt til að fá hráefni í hæsta
gæðaflokki,“ segir Ásbjörn en
ætlunin er að halda staðnum
í fullum rekstri árið um kring.
„Við buðum í vetur í sam-
starfi við kynniferðir upp á
móttöku hópa, skoðunarferð-
ir hér um Reykjanesið og
veitingar því tengdar. Þetta
mæltist vel fyrir og við mun-
um halda áfram á sömu braut
næsta vetur enda tilvalið fyrir
hópa að bregða sér hingað
suður eftir, njóta útsýnisins,
umhverfisins og góðra veit-
inga. Og fræðast um leið um
sögu staðarins í gegnum það
sem er í boði á byggðasafn-
inu,“ segir Ásbjörn.
Nýr veitingastaður í Byggðasafninu á Garðskaga:
Sjávarfang í aðalhlut-
verki á Tveimur vitum
Horft yfir Byggðasafnið á Garðskaga þar sem veitingastaðurinn Tveir vitar er til húsa.