Fréttablaðið - 16.09.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.09.2015, Blaðsíða 4
Samfélag „Við erum nokkrir sem erum alltaf kallaðir út, hvort sem er í snjó eða eld,“ segir Yordan Yord anov, slökkviliðsstjórinn og formaður björgunarsveitarinnar í Súðavík. Yord an er frá Búlgaríu og er eini erlendi slökkviliðsstjórinn á landinu. Yordanov kom hingað til lands þann 20. apríl 1996 í leit að betra lífi. „Segjum bara hreint og beint að lífið var ekki eins og eðlilegri manneskju finnst að það ætti að vera, á þeim slóðum sem ég kom frá. Hugmyndin var fyrst að vinna í nokkur ár og fara svo.“ En stuttu eftir komuna til lands- ins lenti Yordan í slysi, þegar lyftari keyrði yfir fótinn á honum. Hann var frá vinnu í fjórtán mánuði vegna slyssins og er metinn 40 prósent öryrki í dag. „Móttakan sem ég fékk á spítal- anum og bara allt í kringum mig leyfði mér ekki að fara. Ég sagði við sjálfan mig að þetta fólk væri búið að gera svo mikið fyrir mig að það væri ósanngjarnt ef ég færi bara. Ég hef samt aldrei verið á bótum eða hætt að vinna.“ Fyrst bjó Yordan í Hnífsdal, sem er hluti af Ísafjarðarbæ, en flutti til Súðavíkur ásamt konu sinni sem þá var komin til landsins þann 1. apríl 1998. „Við fluttum hingað 1. apríl upp á grín. Við erum enn þá hérna, upp á grínið.“ Hann taldi sig hæfan í slökkvi- liðsstjórastarfið og gaf því kost á sér. „Ég var í sérher úti í Búlgaríu og það barst manna á milli að ég kynni að gera þetta. Það voru auðvitað aðrir á undan mér en allt í einu kemur bara sá tími að margir eru fluttir frá. Stundum á maður bara að taka við.“ „Mér finnst það sjálfum stundum skrítið, að af öllum þessa stóra heimi hafi ég valið þennan litla stað. En ég er enn þá hérna og er ekkert á förum. Í svona litlu samfélagi breytir engu hvað þú heitir. Aðalmálið er að þú komir þér að verki og hjálpir til.“ Yordan segir að þó hann hafi í fyrstu ekki farið af því að honum fannst hann skulda samfélaginu í kjölfar slyssins, sé það ekki þann- ig lengur. „Ég er búinn að vera hér í nítján ár og hef í raun og veru unnið lengur hér á Íslandi en úti í Búlgaríu. Hann sé búinn að borga það sem gert var fyrir hann en vilji gjarnan vera hér áfram. snaeros@frettabladid.is Veður Litlar breytingar verða á veðri. Þó fer heldur að draga úr vindi í kvöld. Úrkoman verður að sama skapi bundin við norður- og austurhluta landsins, en þokkalega sólríkt ætti að vera í öðrum landshlutum. Hiti að 15 stigum syðra að deginum, en annars mun svalara. Sjá Síðu 24 Haust í Hundasteinum Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu. Áskriftarkort Borgarleikhússins Vertu með í vetur! Miðasala borgarleikhus.is 568 8000 Þakklátur Íslandi og gerðist slökkvistjóri Yordan Yordanov hefur búið á Íslandi í nítján ár. Hann ætlaði aldrei að setjast hér að en fannst hann skuldbundinn samfélagi sem tók vel á móti honum. Yordan Yordanov sést hér halda á skiltinu sem hangir í Raggagarði, skemmtigarði í Súðavík. Hann er einn styrktaraðila garðsins. orkumál Borútboð fyrir annan áfanga Þeistareykjavirkjunar verður auglýst á næstunni en um er að ræða borun á allt að átta vinnsluholum á núverandi vinnslusvæði. Framkvæmdir við fyrsta áfanga Þeistareykjavirkjunar (45 MW) hóf- ust á vormánuðum með uppbygg- ingu stöðvarhúss fyrir tvær aflvélar og lagningu gufuveitu. Stefnt er að því að rekstur hefjist í fyrsta áfanga virkjunarinnar haustið 2017. Unnið hefur verið að undirbúningi jarðvarmavirkjunar við Þeistareyki til fjölda ára. Öll leyfi fyrir allt að 100 MW virkjun á Þeistareykjum eru til staðar og mat á umhverfisáhrifum fyrir 200 MW virkjun liggur fyrir með jákvæðu áliti Skipulagsstofnunar. Samhliða útboði á borunum verð- ur unnið að öðrum útboðum vegna kaupa á búnaði til virkjunarinnar sem og útvíkkun gildandi samninga um kaup á viðbótarbúnaði fyrir annan áfanga.  – shá Undirbúa átta borholur færeyjar Aksel V. Johannesen, for- maður Jafnaðarflokksins í Færeyjum, kynnti í gær nýja landstjórn sína, sem er samsteypustjórn með Þjóðveldi og Framsókn. Stjórnarflokkarnir  þrír hafa allir haft fullveldi Færeyja á stefnuskrá sinni og hyggjast nú gera breytingar á stjórnskipan Færeyja, sem eigi að tryggja Færeyjum fullveldi. Þetta á að bera undir atkvæði í Færeyjum ekki síðar en á árinu 2017. Um fyrirhugaðar breytingar segir í stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar: „Ný stjórnskipan á að staðfesta að Færeyingar fara með völdin í Fær- eyjum. Lögin eiga að staðfesta og skilgreina sjálfsákvörðunarrétt Fær- eyinga, þar með að allur réttur til þess að ákvarða þjóðréttarstöðu Færeyja til framtíðar liggur hjá Færeyingum.“ Jafnaðarflokkurinn sigraði í kosn- ingum til færeyska lögþingsins, sem haldnar voru 1. september, og hlaut fjórðung atkvæða og átta þingmenn, en Þjóðveldi hlaut fimmtung atkvæða og sjö þingmenn. Þriðji stjórnarflokk- urinn er svo Framsókn, sem hlaut tvo þingmenn í kosningunum. Saman hafa stjórnarflokkarnir þrír því 17 af 33 þingmönnum á færeyska lögþinginu. Aksel V. Johannesen tekur við af hægri manninum Kaj Leo Johanne- sen, sem hefur verið lögmaður í tvö kjörtímabil samfleytt. Varalögmaður nýju stjórnarinnar er Høgni Hoydal, sem er formaður Þjóðveldisflokksins. – gb Nýja stjórnin stefnir á fullveldi Aksel V. Johannesen er tekinn við af Kaj Leo Johannesen sem lögmaður Færeyja. NordicPhotos/AFP Síðustu köstin Laxveiðitímabilinu í Elliðaánum þetta árið lauk í gærkvöldi. Mikill viðsnúningur varð frá í fyrra þegar veiði var með allra daprasta móti og aðeins 457 laxar komu á land en 864 fiskar höfðu veiðst áður en þessir veiðimenn í Hundasteinum og aðrir í sömu erindagjörðum í ánum tóku til við fluguveiðiköst á lokavakt sumarsins. Fréttablaðið/Pjetur Segjum bara hreint og beint að lífið var ekki eins og eðlilegri mann- eskju finnst að það ætti að vera, á þeim slóðum sem ég kem frá. Yordan Yordanov slökkviliðsstjóri 1 6 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m I ð V I k u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 5 -F 6 C 0 1 6 4 5 -F 5 8 4 1 6 4 5 -F 4 4 8 1 6 4 5 -F 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.