Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 6
Sa m f é l ag S t a r f s fól k St r æ t ó er  í  óvissu um framtíð sína á Hlemmi vegna skipulagsbreytinga sem eru í vændum. Eftir sex vikur stendur til að loka torginu. Sonja Sigurjónsdóttir þjón- ustufulltrúi og Árni Kjartansson, öryggis- og húsvörður á Hlemmi, segja starfsfólki haldið í óvissu. Þau vísa einnig á bug gagnrýni sem kom fram í Fréttablaðinu í gær um að ferðamönnum sé ekki veitt góð þjónusta á Hlemmi. En Gunnlaugur Jósefsson ljósmynd- ari á Hlemmi segir að margt hafi breyst og úrbóta sé þörf. Sonja hefur starfað við far- miðasölu á Hlemmi í 15 ár. Hún er orðin sjötíu og tveggja ára og þekkir hvern krók og kima sem  strætisvagnar aka á land- inu. Hún er snör í snúningum og hnyttin í tilsvörum. Banda- rísk hjón vilja kaupa miða með strætó að Esjunni.  Fram og til baka? Þið viljið ekki vera þar að eilífu? spyr Sonja og býður þeim góða skemmtun. „Þótt hlutverk mitt sé að selja farmiða þá get ég ekki annað en veitt þessa þjónustu líka. Það er rangt að fólk fái ekki góða þjón- ustu hér, ég er stundum að aðstoða sama ferðalanginn í meira en tíu mínútur. Á meðan bíða ef til vill aðrir eftir því að kaupa farmiða.“ Árni segir blendnar tilf inn- ingar fylgja því að Hlemmi verði lokað. „Það er illa staðið að þessu og mér finnst illa komið fram við það fólk sem hefur starfað hér í tugi ára.” – kbg Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Tenerife Frá kr. 79.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 79.900 m.v. 2-4 í íbúð/herbergi/stúdíó. 19. september í 7 nætur Stökktu til Skólamál Jóhannes Gunnar Bjarna- son, íþróttakennari á Akureyri í næstum þrjátíu ár, hefur þurft að hætta störfum sökum álags á radd- bönd. Ekki er langt síðan annar íþróttakennari á Akureyri, Jóhanna Einarsdóttir, þurfti að hætta kennslu sökum raddleysis. Orsakir raddleysis eru raktar beint til vinnuaðstæðna íþróttakennara og vinnuaðstæður þeirra ólíðandi að mati Valdísar Ingibjargar Jónsdóttur, doktors í talmeinafræðum. „Íþróttakennur- um er gert að kenna undir óþolandi aðstæðum í allt of stórum rýmum með of mörg börn,“ segir Valdís. „Fyrir mig er þetta eiginlega bara áfall,“ segir Jóhannes. „Ég hef minn metnað sem kennari og löngun til að standa mig í vinnu. Þegar mitt atvinnutæki bilar svona hressilega með því að vera settur í ótímabund- ið leyfi þá er það skellur fyrir mig. Mér líður hreint út sagt illa yfir því að vera heima eða mæla göturnar.“ Hann bætir við að þær vinnuað- stæður sem honum er boðið upp á séu óboðlegar. „Það er ekki hægt að vera lengi með um 50 nemendur í Íþróttahöllinni og á sama tíma með 20 fullorðna einstaklinga úr Verk- menntaskólanum. Ég hef nefnt þetta við bæjaryfirvöld en þar hafa menn lokað eyrunum fyrir þessu vanda- máli.“ Meðalstarfsaldur íþróttakenn- ara á Íslandi í dag er tæp fimm ár. Margir hverjir hrökklist úr starfi og finni sér aðra vinnu þar sem álag á heyrn og raddbönd eru eðlilegri. Jóhannes hefur kennt í Íþróttahöll- inni á Akureyri þar sem mennta- skólanemar stunda leikfimi sína á sama tíma og grunnskólabörnin. Akureyrarkaupstaður hefur þannig fengið leigutekjur frá ríkinu á sama tíma og grunnskólanemendum er kennt. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri Akureyrarkaupstaðar, segir það áfall að kennarar séu að detta út vegna starfsskilyrða þeirra. „Þetta er engu lagi líkt og við þurfum að skoða það hvernig við dælum allt að sjötíu börnum inn í Íþróttahöllina á sama tíma. Þetta skapar mikil vandræði. Við verðum að taka höndum saman, öll sem eitt, og skoða hvernig við getum gert þetta með sem bestum hætti. Það verður verðugt verkefni á næstunni,“ segir Soffía. „Vinnuaðstæður langflestra íþróttakennara eru ólíðandi og óþolandi. Við erum að sjá ár eftir ár stórslys hvað varðar rödd og heyrn kennara. Við Íslendingar fljótum sofandi að feigðarósi hvað varðar hljóðvist og mannsæmandi skilyrði við kennslu. Við erum illa að okkur þegar kemur að hávaða og hljóði og gerum okkur enga grein fyrir mikil- vægi þess að hafa þessa hluti í lagi,“ segir dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir. „Það sem skiptir meira máli er að það er samband á milli streitu og hávaða í vinnu sem veldur andlegri vanlíðan kennara.“ sveinn@frettabladid.is Starfsskilyrði íþróttakennara óþolandi Tveir íþróttakennarar á Akureyri hafa hætt störfum á síðustu árum vegna þess að röddin hefur gefið sig. Doktor í talmeinafræðum segir Íslendinga ekki vita nægilega mikið um hljóðvist og telur aðstæður íþróttakennara óþolandi. Fræðslustjórinn vill skoða málin vel. Jóhannes hefur kennt íþróttir á Akureyri í næstum þrjá áratugi við góðan orðstír. Vinnuskilyrði hafa nú tekið sinn toll. Fréttablaðið/Auðunn Íþróttakennurum er gert að kenna undir óþolandi aðstæðum í allt of stórum rýmum með of mörg börn. Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir talmeinafræðingur Við verðum að taka höndum saman, öll sem eitt, og skoða hvernig við getum gert þetta með sem bestum hætti. Það verður verðugt verkefni. Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri Akur­ eyrarkaupstaðar Starfsfólk Strætó bíður ósátt og í óvissu Árni Kjartansson, öryggisvörður á Hlemmi, harmar framkomu við starfs- fólk á torginu. Fréttablaðið/Stefán Það er illa staðið að þessu og mér finnst illa komið fram við það fólk sem hefur starfað hér í tugi ára. Árni Kjartansson öryggisvörður Reykjavíkurborg mun sniðganga varning frá Ísrael Sve itar Stj ó r narm ál Eitt aðal- mál borgarstjórnarfundar Reykja- víkur í gær var síðasta tillaga Bjarkar Vilhelmsdóttur í borgarstjórn um að Reykjavík sniðgangi vörur frá Ísrael á meðan hernám Ísraela á landi Palestínumanna varir. „Ég tel að borgin geti verið með skýr skilaboð um það að borgin muni ekki kaupa vörur af Ísrael á meðan  Ísraelar kúga aðra þjóð á grundvelli kynþáttar og uppruna og múra Palestínumenn inni,“ sagði Björk fyrir afgreiðslu tillögunnar sem var samþykkt á borgarstjórnar- fundi í gær. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn, var efins um tilskilin áhrif tillögunnar en Sjálfstæðisflokkur- inn kaus ekki með henni. Halldór sagði að hann væri þeirr- ar skoðunar að frjáls viðskipti væru besta leiðin til að tryggja friðinn. „Það þarf að byggja brýr og við- skipti eru eitt besta brúarkerfi sem til er,“ sagði hann. Gréta Björg Egilsdóttir, borgar- fulltrúi Framsóknar og flugvallar- vina, sagði að flokkurinn gæti ekki greitt atkvæði með tillögunni þar sem ekki væri búið að mynda heild- ræna stefnu í málaflokknum. Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata, sagði að tillaga Bjarkar gæfi hugsanlega fordæmi fyrir því að innkaupastefna Reykjavíkur taki tillit til mannréttindabrota úti í heimi. „Þessi gjörningur er fyrst og fremst táknrænn,“ sagði S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs og oddviti Bjartrar framtíðar. „[Til- lagan] þykir mér friðsæl leið til að mótmæla óréttlæti.“ Í lok fundar var l a u s n a r b e i ð n i B j a r k a r t e k i n fyrir. Athygli vakti að Áslaug Frið- riksdóttir borgar- f u l l t r ú i k a u s gegn lausnar - beiðni Bjarkar þar sem mikil eftirsjá væri að henni. – srs Ég tel að borgin geti verið með skýr skilaboð um það að borgin muni ekki kaupa vörur af Ísrael á meðan Ísra- elar kúga aðra þjóð á grundvelli kynþáttar og uppruna og múra Palestínumenn inni. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar 1 6 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m i Ð v i k U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 6 -0 A 8 0 1 6 4 6 -0 9 4 4 1 6 4 6 -0 8 0 8 1 6 4 6 -0 6 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.