Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 8
LögregLumáL Karlmaður braust inn
í hjólhýsi í Fossvoginum og talið er
að hann hafi búið þar um nokkurt
skeið. Hjólhýsið er fyrir utan heimili
eigandans, Margrétar Auðunsdóttur,
og er lagt tæpum hálfum metra frá
bílskúrnum. Margrét gengur því fram
hjá hjólhýsinu á hverjum degi. Hún
segir að orðið sem lýsi þessum manni
best sé bíræfni.
„Hann hefur hugsanlega verið í
hjólhýsinu um nokkurt skeið. En
honum tókst að leynast alveg ótrú-
lega. Ég uppgötvaði þetta þegar
ég opnaði hjólhýsið fyrir tæpum
tveimur vikum og sá ummerkin eftir
hann. Þá hringdi ég á lögregluna,“
segir Margrét.
Margrét er mjög fegin að maðurinn
hafi ekki verið í hjólhýsinu þegar hún
opnaði dyrnar. „Sem betur fer. Því ef
fólk er króað af veit maður ekki hvað
það getur tekið til bragðs. Hann
reiknaði þetta vel út. Það var dregið
frá stórum hluta hjólhýsisins allan
tímann og ég horfði inn í það reglu-
lega. Hann passaði að það sæjust
engin ummerki og dvaldi í litlu horni
inni í hýsinu. Þetta vekur óneitanlega
óhug og öryggisleysi.“
Hjólhýsið er afar skítugt og illa
farið eftir veru mannsins. „Ég þarf að
senda hjólhýsið í þrif og býst við að
standa straum sjálf af þeim kostnaði.
Hjólhýsið er tryggt en það er sjálfs-
ábyrgð,“ segir Margrét og tekur fram
að hjólhýsið hafi verið læst og vel
vaktað af heimilismönnum. Hún
hvetur því fólk til að líta vel eftir hjól-
hýsum sínum.
Benedikt Lund lögreglufulltrúi
segir manninn vera þekktan í hverf-
inu. „Þetta er vesalings maður sem
ráfar um og fer í öll þau skýli sem
hann finnur. Hann fór til dæmis í
kofa sem börn byggðu sér og hafði
aðsetur þar í smá tíma.“
Benedikt segir manninn ekki vilja
þiggja aðstoð borgarinnar eða dvelja í
gistiskýlum. „Það er lítið sem lögregl-
an getur gert, nema hann sé ákærður
fyrir húsbrot. En lögreglan er ekki
með nein félagsleg úrræði. Það er
ekki gott að eiga við svona mál.“
erlabjorg@frettabladid.is
Braust inn
í hjólhýsi og
dvaldi þar
Karlmaður tók sér bólstað hjólhýsi í Fossvoginum
og dvaldi þar í leyfisleysi. Hann er þekktur í hverfinu
fyrir að fara í hvert það skjól sem hann kemst í.
Margrét á hjólhýsi af
sambærilegri gerð
og það sem sést á
þessari mynd.
Ég uppgötvaði þetta
þegar ég opnaði
hjólhýsið fyrir tæpum tveim-
ur vikum og sá ummerkin
eftir hann. Þá hringdi ég á
lögregluna.
Margrét Auðunsdóttir,
íbúi í Fossvoginum
Þetta er vesalings
maður sem ráfar
um og fer í öll þau skýli sem
hann finnur. Hann fór til
dæmis í kofa sem börn
byggðu sér og hafði aðsetur
þar í smá tíma.
Benedikt Lund lögreglufulltrúi
Brugðið á leik
NICOTINELL FRUIT
Ódýrasta Nicotinell
lyfjatyggigúmmíið!
Lyfjaauglýsing
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja,
að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki eða ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins. Ráðlagður
skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með
notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt í staðinn.
Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu
venjulega nota eitt stk á 1-2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd
meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur
en í 1 ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst
ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta
reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú: hefur fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár, gervitennur, barn á brjósti eða ert á meðgöngu. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá
notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Nicotinell-Fruit-NEW-5x10 copy.pdf 1 12/08/15 13:18
Varið skot Enginn deilir um það að vandi flóttamanna er mikill. Það kemur þó ekki í veg fyrir að þeir geri sér
glaðan dag þegar tími gefst til. Þessi flóttamaður á meðfylgjandi mynd var staddur Serbíumegin á landamærum
Serbíu og Ungverjalands. Fréttablaðið/EPA
1 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K u D A g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
6
-1
E
4
0
1
6
4
6
-1
D
0
4
1
6
4
6
-1
B
C
8
1
6
4
6
-1
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K