Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 13
norðurlöndin 1 2 3 Fátæktarmörk ekki lengur viðmið 1dAnMörK Félagsmála- og innan ríkisráðherra Danmerkur, Karen Ellemenn, hefur ákveðið að hætt verði við að nota opinber fátæktarmörk. Ráðherrann segir of einhæft að miða við krónur og aura þegar fátækt er mæld. Árið 2013 var ákveðið að fátæktarmörk í Danmörku skyldu miðuð við 103.500 króna árstekjur eða rétt rúmar tvær milljónir íslenskra króna. Ellemann kveðst ekki geta komið í veg fyrir að aðrir stjórnmálamenn og samtök noti skilgreininguna. Fíkniefnabarón neitar að hafa þvættað peninga 2norEGur Gjermund Cappelen, sem hefur viðurkennt  að hafa flutt inn 25 til 30 tonn af hassi til Noregs og þénað 125 milljónir norskra króna, neitaði fyrir rétti í gær að hafa þvættað peninga í Sviss þótt hann ætti eignir þar. Cappelen sagði við yfirheyrslu að smyglið á hassinu hefði eingöngu verið mögu- legt vegna samvinnu við yfirmann hjá þeirri deild lögreglunnar sem rannsakar skipulagða glæpastarf- semi. Cappelen hefur ekki nafn- greint neina aðra. Hvarf flóttabarna veldur áhyggjum 3SVÍÞJÓð Hvarf flóttabarna frá járnbrautarstöðinni í Malmö  í Svíþjóð veldur yfirvöldum áhyggjum. Útlendingastofnun og félagsmálayfirvöldum í Malmö bárust um helgina fregnir af því að tíu börn sem voru ein á ferð og von var á til flóttamannabúða í Jägersro hefðu aldrei komið þangað. Tals- maður sænsku lögreglunnar sagði að í besta falli hefðu ættingjar náð í börnin. Í versta falli gætu þau hafa lent hjá einhverjum sem ekki væri hægt að treysta. Tækifæri í september Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is SIEMENS - Þvottavél WM 14E477DN Vindur upp í 1400 sn./mín. Tækifærisverð: 86.900 kr. (Fullt verð: 108.500 kr.) Orkuflokkur Tekur mest SIEMENS - Kæli- og frystiskápur KG 36VUW20 (hvítur) Útdraganleg „crisperBox“-skúffa. „lowFrost“-tækni. Stór „bigBox“-frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tækifærisverð: 74.900 kr. (Fullt verð: 94.700 kr.) Orkuflokkur Öryggisgler SIEMENS - Bakstursofn HB 634GCS1S (stál) Stórt 71 lítra ofnrými. Innbyggður kjöt- hitamælir. 13 hitunaraðgerðir, þar á meðal 4D heitur blástur. Tækifærisverð: 139.900 kr. (Fullt verð: 179.900 kr.) KjöthitamælirOrkuflokkur SIEMENS - Keramíkhelluborð ET 645NE17 Með fallegum stálramma. Fjórar hraðsuðuhellur. Snertisleði. Tækifærisverð: 49.900 kr. (Fullt verð: 64.900 kr.) Barnaöryggi Breidd s SIEMENS - Ryksuga VS 06B120 Orkuflokkur B. Parkett og flísar, flokkur D. Teppi, flokkur E. Útblástur A. Hljóð: 81 dB. Fjögurra lítra poki. Tækifærisverð: 19.600 kr. (Fullt verð: 24.600 kr.) Lamina - Hangandi ljós H x b x d: 51 x 38 x 38 sm. Tækifærisverð: 12.900 kr. (Fullt verð: 16.900 kr.) Beppe Grillo er í vondum málum vegna ummæla sinna. NordicPhotos/afP ÍtAlÍA Beppe Grillo, leiðtogi stjórn­ málaflokksins Fimm stjörnu hreyf­ ingin, þarf að greiða rúmar sjö millj­ ónir króna í skaðabætur og gæti átt yfir sér fangelsisvist fyrir meiðyrði. Grillo gagnrýndi prófessor Franc­ esco Battaglia fyrir stuðning hans við kjarnorku. Á stjórnmálasamkomu árið 2011 sagði hann að hann ætlaði að sparka í afturendann á prófessor Battaglia og hrekja hann úr sjónvarpi. Battaglia segir að eftir ummæli Grillo hafi honum borist ótal hótanir og að bíll hans hafi verið eyðilagður. Grillo óttast þó ekki hugsanlega fangavist. „Ef [Sandro] Pertini og [Nelson] Mandela fóru í fangelsi get ég gert það fyrir réttlátan málstað sem ég trúi á,“ sagði Grillo. Fimm stjörnu hreyfingin mælist næststærsti flokkur Ítalíu á eftir Lýð­ ræðishreyfingu Matteo Renzi for­ sætisráðherra en flokk Grillo hefur gjarnan verið líkt við Besta flokkinn í Reykjavík. – srs Grillo gæti farið í fangelsi SVEitArStJÓrnir  Íbúafundur sem haldinn var í Landbúnaðarháskól­ anum á Hvanneyri segir ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar um að loka grunnskóladeild á staðnum byggjast á röngum gögnum. „Að auki er ákvörðunin tekin án samráðs og í andstöðu við íbúa,“ segir í ályktun íbúafundarins sem einnig lýsti yfir „algjöru vantrausti“ á meiri­ hluta sveitarstjórnarinnar. „Það hefur sýnt sig það sem af er kjörtímabili að meirihlutinn ber ekki hag heildarinnar fyrir brjósti og er ekki starfi sínu vaxinn. Röð illa ígrundaðra ákvarðana af hans hálfu hafa kostað sveitarfélagið mikla fjár­ muni og mannauð, skapað úlfúð og alvarlegan trúnaðarbrest,“ segir í ályktunni þar sem farið er „fram á að meirihluti víki úr sveitarstjórn og hleypi fólki að sem er tilbúið til að vinna af heilindum fyrir íbúa Borgar­ byggðar“. – gar Lýsa vantrausti á sveitarstjórnina Brotthvarfi grunnskóla á Hvanneyri er harðlega mótmælt. fréttablaðið/Pjetur Ef Pertini og Mand­ ela fóru í fangelsi get ég gert það fyrir réttlátan málstað sem ég trúi á. Beppe Grillo F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð 11M i ð V i K u d A G u r 1 6 . S E p t E M B E r 2 0 1 5 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 5 -F 6 C 0 1 6 4 5 -F 5 8 4 1 6 4 5 -F 4 4 8 1 6 4 5 -F 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.