Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 24
| 4 16. september 2015 | miðvikudagur
Lífeyrissjóðirnir þurfa að vera
virkari hluthafar og skipunartími
stjórnar ætti að vera lengri en eitt
ár. Þetta var meðal þess sem kom
fram á morgunfundi sem Strat
egía stóð fyrir á fimmtudaginn
í síðustu viku með yfirskriftinni
Hver má hvað?
Á undanförnum árum hefur
átt sér stað mikil vakning um
breytta stjórnarhætti og á fund
inum ræddi fjöldi sérfræðinga
um hlutverk hluthafa, stjórnar
og framkvæmdastjóra, og hvað
mætti betur fara.
Flóki Halldórsson, fram
kvæmdastjóri Stefnis, telur að
stofnanafjárfestar (lífeyris
sjóðir, verðbréfasjóðir og trygg
ingafélög) þurfi að vera virkir
hluthafar. Undanfarin ár hafa
stofnanafjárfestar komið mikið í
stað einstaklinga. Lífeyrissjóðirn
ir muni verða virkari við stjórnun
þeirra fyrirtækja sem þeir fjár
festa í þegar fram sækir.
Flóki vék að þeirri hugmynd að
hafa tilnefninganefndir, sem síðan
var rædd í sófaumræðum á fund
inum. Í máli Flóka kom fram að
oft er einungis horft á kynjahlut
verkið við samsetningu stjórnar.
Aðrir mikilvægir þættir eins og
þekking sem fyrirtækið vantar og
starfsandi verði oft útundan. Þetta
leiði til þess að hópurinn geti orðið
of einsleitur.
Elín Jónsdóttir, framkvæmda
stjóri VÍB hjá Íslandsbanka,
benti á að skipunartími stjórnar
til aðeins eins árs í senn geti gert
stjórnarmönnum erfitt fyrir, þar
sem lengri tíma þarf fyrir stjórn
armenn til að kynnast rekstri
og rekstrarumhverfi félagsins.
Stutti skipunartíminn getur leitt
til þess að forstjórar og fram
kvæmdastjórn séu of ráðandi og
að stjórn gefist ekki færi á að rýna
ákvarðanir forstjóra með virkum
hætti. Elín tel ur nauðsyn legt að
heil brigð tog streita sé á milli for
stjóra og stjórn ar og að andrúms
loft á stjórnarfundum bjóði upp á
að allir stjórnarmenn geti rýnt og
gagnrýnt.
Við fundarlok var stjórnarseta
fyrir og eftir hrun borin saman.
Rætt var um aukið regluverk
og gagnrýnt var að allur tími
stjórnar færi nú í formsatriði og
starfsmannastefnur.
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri
Nova, bar saman stjórnarhætti
í Noregi og á Íslandi. Hún sagði
að ekki væri jafn mikið gagnsæi
og ekki jafn djúp upplýsingagjöf
í kauphöllinni á Íslandi miðað við
það sem er erlendis.
Liv sagði einnig að mikilvægt
væri að fólk sem ynni hjá sam
keppnisaðilum væri ekki saman í
stjórn annars fyrirtækis. Ráðstefn
unni var slitið með þeim orðum að
þörf væri á því halda ráðstefnu að
ári um stjórnarhætti í opinbera
geiranum. saeunn@frettabladid.is
Lífeyrissjóðir þurfi að
vera virkari hluthafar
Huga þarf betur að samsetningu stjórnar fyrirtækja á Íslandi. Liv
Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, telur að fólk sem vinnur hjá sam-
keppnisaðilum eigi ekki að sitja saman í stjórn annars fyrirtækis.
Stjórnendur Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarformaður Gildis lífeyrissjóðs, hélt opnunarerindið.
Fréttablaðið/GVa
Stuttur skipunar-
tími stjórnar getur
leitt til þess að for-
stjórar og fram-
kvæmdastjórar séu
of ráðandi.
Múlakaffi ehf. hagnaðist um 65
milljónir á síðasta ári. Rekstrar
tekjur á árinu námu tæpum 867
milljónum króna og jukust um 42
milljónir milli ára.
Múlakaffi á dótturfélögin GJ
veitingar ehf., KH veitingar ehf.
(75% hlutur) og Kvörnina ehf.
sem er fasteignafélag. Megin
starfsemi Múlakaffis og dóttur
félaganna GJ veitinga ehf., KH
veitinga ehf. og T veitinga ehf.
felst í mötuneytis og veitinga
rekstri ásamt veisluþjón
ustu.
Rekstrartekjur sam
stæðunnar námu 2,2
milljörðum króna og
hagnaðist samstæðan
um tæpar 63 milljón
ir á síðasta ári. Eignir
samstæðunnar nema 847
milljónum og bók
fært eigið fé í árs
lok var rúmar 289
milljónir. Hand
bært fé í árs
lok nam tæpum
62 milljónum.
Fjöldi ársverka á
árinu 2014 var um 140. Arður var
greiddur út að verðmæti 50 millj
ónir króna vegna rekstrarársins.
Samkvæmt ársreikningi félags
ins er búist við að afkoman á
árinu 2015 verði góð og stefnir í
veltuaukningu á milli ára. Múla
kaffi ehf. er í eigu Jóhannesar
Guðvarðs Stefánssonar.
Múlakaffi rekur einnig veislu
réttaþjónustu og undirbýr mat
fyrir smáa viðburði sem stóra.
Múlakaffi rekur veitingastað
í Hallarmúla, veisluþjónustu og
mötuneyti fyrir fjölda vinnu
staða.
Dótturfyrirtæki Múlakaffis
reka Nauthól annars vegar og
Kolabrautina og Hörpudisk í
Hörpu. – sg
Múlakaffi með rúma
tvo milljarða í veltu
Nýir iPhonesímar, iPhone 6S og
iPhone 6S plus voru kynntir þann
9. september síðastliðinn. Fyrstu
símarnir verða seldir í Applebúð
um þann 25. september. Hörður
Ágústsson, framkvæmdastjóri
Macland, segir að símarnir muni
væntanlega koma sama dag til
allra söluaðila á Íslandi. Hörður
telur mjög líklegt, þar sem sím
arnir komu í lok október síðustu
tvö árin, að þeir komi á sama
tíma nú í ár.
„Ég býst fastlega við síman
um öðrum hvorum megin við
mánaðamótin október/nóvem
ber,“ segir Hörður. Hann segist
ekki vita hvað nýju iPhonesím
arnir muni kosta, en telur líklegt
að þeir verði á svipuðu verði og
áður. Forsala á símanum hefur
gengið mjög vel. iPhone 6S Plus
er nærri því uppseldur og sala á
iPhone 6S gengur einnig vel.
Talið er að símarnir hafi yfir
helgina slegið sölumet síðasta
árs þegar 10 milljón eintök af
iPhone 6 og 6 Plus voru pöntuð
fyrstu helgina. Símarnir sem
selst hafa í forsölu verða sendir
úr verksmiðjum þann sama dag
og síminn kemur í búðir vestan
hafs en geta tekið allt að þrjár til
fjórar vikur að skila sér til kaup
enda. Því getur verið að Íslend
ingar geti keypt sér nýjan iPhone
á sama tíma og Bandaríkjamenn.
– sg
Vonast til að fá iPhone
6S til Íslands í október
Nýr iPhoNe kyNNtur Nýjasti sími Apple hefur rokið út í forsölu. Fréttablaðið/Getty
Jóhannes
Guðvarður
Stefánsson
er eigandi
Múlakaffis.
Nærri 150 þekktir franskir
hagfræðingar hafa mótmælt
útnefningu François Villeroy de
Galhau sem næsta seðlabanka
stjóra Frakklands. Í grein sinni í
franska dagblaðinu Le Monde í
gær sögðust þeir telja að það að
ráða fyrrverandi stjórnanda hjá
bankanum BNP Paribas myndi
skapa hagsmunaárekstra. BNP
Paribas var árið 2012 þriðji
stærsti banki heims. Villeroy de
Galhau hefur hins vegar sann
fært ríkisstjórnina um að ekki
verði um hagsmunaárekstra
að ræða. Forseti Frakklands,
François Hollande, útnefndi Ville
roy de Galhau sem næsta seðla
bankastjóra þann 8. september
síðastliðinn. Galhau á að taka við
starfinu þann 31. október næst
komandi. Núverandi seðlabanka
stjóri, Christian Noyer, lætur af
störfum í lok mánaðarins. Ríkis
stjórnin á hins vegar enn þá eftir
að samþykkja útnefningu Villeroy
de Galhau.
Í grein sinni biðla hagfræðing
arnir, þeirra á meðal Thomas
Piketty, höfundur Capital in
the TwentyFirst Century, og
François Bourguignon, fyrrver
andi aðalhagfræðingur Alþjóða
bankans, til stjórnmálamanna
að hafna ákvörðun forsetans um
útnefninguna. Þeim gefst tæki
færi til að gera það á fundi við
skiptanefndar þann 29. september
næstkomandi. Vileroy de Galhau
er vinstrisinnaður og vann um
tíma hjá hinu opinbera, meðal
annars sem starfsmannastjóri hjá
Dominique StraussKahn. Hann
færði sig svo yfir í einkageirann
og hóf störf hjá BNP Paribas árið
2003. Þar starfaði hann síðast
sem aðstoðarforstjóri bankans
þangað til í apríl á þessu ári.
Hagfræðingarnir segja að það
sé óhugsandi að maður geti unnið
í bankageiranum og nokkrum
mánuðum síðar komið að reglu
gerð banka með óhlutdrægni
og sjálfstæði. Þeir telja að hann
muni ekki geta hugað að hags
munum almennings. Í hlutverki
sínu sem seðlabankastjóri Frakk
lands mun Villeroy de Galhau
einnig ákveða breytingu vaxta
innan Evrópusambandsins. – sg
Mótmæla útnefningu seðlabankastjóra Frakklands
Nýr SeðlabaNkaStJóri François Vileroy de Galhau starfaði hjá BNP Paribas frá 2003
þangað til í apríl 2015. Fréttablaðið/aFP
»
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
6
-2
8
2
0
1
6
4
6
-2
6
E
4
1
6
4
6
-2
5
A
8
1
6
4
6
-2
4
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K