Fréttablaðið - 16.09.2015, Síða 28
Fólk| Ferðir
ASSA DC200
Fyrir innihurðir í t.d. skrifstofubyggingum, hótelum ofl.
Styrkur: EN 2-4, EN1154, CE merkt, vottuð til notkunar á
brunavarnarhurðir.
Verð: 7.130 kr.
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
DORMA TS83
Fyrir þungar hurðir og / eða álagshurðir (t.d. útihurðir
fjölbýlishúsa). Styrkur: EN 3-6, EN1154, CE merkt, vottuð
til notkunar í brunavarnarhurðir (allt að 120 mín., Certfire).
Þýskt gæðamerki síðan 1908.
Verð: 13.020 kr.
ECO TS41
Fyrir innihurðir í t.d. skrifstofubyggingum, hótelum ofl.
Styrkur: EN 1-4, EN 1154, CE merkt, vottuð til notkunar
á brunavarnarhurðir.
Verð: 10.912 kr.
Hurðapumpur
ABLOY DC250
Fyrir allar gerðir af hurðum. Léttir færslu hurðarinnar til
muna og því sérstaklega hentug fyrir börn, aldraða og aðra
sem ekki ráða yfir styrk til að opna hurð með venjulegri
hurðapumpu. Styrkur EN 1-6. EN 1154, CE merkt, vottuð til
notkunar á brunavarnarhurðir.
Verð: 32.054 kr.*
Í Vélum og verkfærum fást hurðapumpur í miklu úrvali.
Viðurkennd vörumerki, CE merktar. Fagleg ráðgjöf og
nánari upplýsingar hjá Vélum og verkfærum.
*í silfur-lit með renniarmi
átakalaus opnun
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Það er hægt að gera margt skemmtilegt á ferðalögum erlendis annað en að liggja á strönd, skoða söfn
og ráfa um skemmtigarða. Sífellt fleiri
Íslendingar ferðast um heiminn og keppa
í alls konar hlaupum, þar á meðal mara
þonhlaupum. Meðal óvenjulegra mara
þonhlaupa er rauðvínsmaraþonhlaupið í
Medoc í Frakklandi sem haldið var fyrst
fyrir rúmlega 30 árum. Unnar S. Hjaltason
tók þátt í því árið 2012 en veturinn áður
hafði sú hugmynd fæðst hjá honum og
hlaupafélögum hans að gaman gæti verið
að taka þátt í óvenjulegu maraþoni. „Þar
sem helstu áhugamál okkar hafa verið
langhlaup og rauðvínsdrykkja, í hófi auð
vitað, þótti okkur tilvalið að slá þessu
saman í eina allsherjar íþróttaupplifun.“
Hlaupafélagi Unnars forfallaðist þannig
að hann og þáverandi eiginkona fóru ein í
ferðina. „Eingöngu er tekið við skráningu
8.500 þátttakenda og er markmið hlaups
haldara að allir hlaupararnir, hvort
sem þeir eru fyrstir eða síðastir, upplifi
stemninguna. Þannig eru allir leystir út
með góðum gjöfum úr héraðinu og eru
sumar hverjar afhentar á flöskum.“
Keppendur eru hvattir til að hlaupa í
búningum og er ákveðið þema á hverju
ári. „Sumir búninganna eru lítt til þess
fallnir að hlaupið sé mjög hratt í þeim.
Enda eru fæstir þarna til að reyna að slá
bestu tíma sína heldur til að taka þátt
í gleðinni og njóta þess sem upp á er
boðið.“
Hlaupið er í gegnum 50 mismunandi
plantekrur og öllum plantekrueigendum
er mjög umhugað um að koma fram
leiðslu sinni á framfæri. „Á leiðinni eru
rúmlega 50 viðburðir og 28 drykkjar
stöðvar. Fyrsta drykkjarstöðin er eftir
aðeins 800 metra þannig að ég næstum
missti af henni. Á leiðinni eru einnig 20
hressingarbásar þar sem finna má létt
hlaupasnakk á borð við ostrur, hrá
skinku, steikur, osta og ýmislegt fleira
orkugefandi.“
nóg aF veitingum
Að sjálfsögðu ráða hlauparar hvort þeir
stoppa á öllum stöðvum en það er þó
vel þess virði að prófa sem flest að sögn
Unnars. „Til að gæta velsæmis og hóf
semdar er oftast lítið rauðvín í glösunum
en það eru þó engin takmörk fyrir því
hversu mörg glös má fá sér. Já, og auð
vitað er rétt að nefna það að einhvers
staðar sá einhver vatn.“
Þau luku hlaupinu á 5 tímum og 23
mínútum. Í lok hlaups var búið að slá
upp balli og fjölmargir sem höfðu lokið
hlaupinu voru komnir á dansgólfið og
byrjaðir að dansa eins og enginn væri
morgundagurinn að sögn Unnars. „Við
horfðum á þetta í forundran og skildum
alls ekki hvernig þetta væri hægt. Áður
en hálftími var liðinn vorum við komin út
á þetta sama gólf og byrjuð að dansa eins
og hinir og maraþonið var á þeirri stundu
gleymt, a.m.k. tímabundið.“
Ef það er eitthvert hlaup sem Unnar
væri til í að hlaupa aftur þá er það rauð
vínshlaupið í Medoc. „Stemningin er
ólýsanleg og leiðin og viðmótið allan
tímann alveg frábært. Þar sem hlaupið er
í september er hitastigið mjög gott fyrir
sólþyrsta Íslendinga. Það var reyndar í
heitara lagi þegar við vorum þarna en þá
er bara að passa að drekka nóg af þeim
vökva sem mótshaldarar eru duglegir að
halda að hlaupurunum. Það má sannar
lega segja þeim til hróss að þeir gæta
þess að enginn ofþorni í hlaupinu.“
n starri@365.is
Ostrur, hlaup Og
nóg aF rauðvíni
skemmtilegt hlaup Rauðvínsmaraþonhlaupið í Medoc í Frakklandi er
meðal skemmtilegra maraþonhlaupa sem í boði eru. Hlauparar gæða sér á
gómsætum veitingum, taka þátt í skrautlegum viðburðum og drekka eins mik-
ið rauðvín og þeir geta innbyrt á 28 drykkjarstöðvum sem eru á leiðinni.
berjaklasar á hlaupum Mikið er lagt upp úr líflegum búningum í hlaupinu. MYND/ÚR EINkASAFNI
hlauparar
Unnar S. Hjaltason
(t.v.) ásamt hlaupa-
félaga sínum, Gunn-
ari Ármannssyni, á
góðri stundu.
MYND/ÚR EINkASAFNI
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
6
-0
F
7
0
1
6
4
6
-0
E
3
4
1
6
4
6
-0
C
F
8
1
6
4
6
-0
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K