Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 29

Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 29
eldhús MIÐVIKUdAGUR 16. septeMbeR 2015 Kynningarblað húsasmiðjan, IKeA, elko og eirvík Vörur Electrolux eru vel þekktar hér á landi en Electrolux selur vörur sínar undir ý msum öðrum vörumerkjum en Electrolux. Má þar nefna AEG, Atlas, Elekto Helios, Frigidaire, Kelvinator, Philco og Zanussi. „Við bjóðum upp á mjög breiða línu raftækja frá Electrolux. Má þar nefna eldavélar, ofna, örbylgjuofna, uppþvottavélar, ísskápa, þvotta- vélar og þurrkara og eru ýmsar spennandi nýjungar að koma fram,“ segir Auður Auðuns- dóttir, starfsmaður í söludeild Húsasmiðjunnar. „Hvað elda- vélarnar varðar eru spanhellu- borðin áberandi en þau eru mun fljótari að hitna en hefðbundin keramikhelluborð, spara orku og eru þægilegri í notkun. Ker- amikhelluborðin eru þó vitan- lega á sínum stað ásamt hellu- borðum með og án ramma,“ upplýsir Auður. Fjölbreytt úrval ofna Ofnarnir frá Electrolux eru mun stærri en undanfarin ár. Þeir eru allir 74 lítra en með sama utanmál. Þeir eru jafnframt allir með innbyggðum kjöthita- mæli. „Þá erum við með gufu- ofna sem eru alltaf að verða vinsælli enda mjög gaman að elda í slíkum ofni. Grænmet- ið verður svo fallegt og sömu- leiðis kjötið, kjúklingurinn og jafnvel purusteikin sem verður mjög stökk í gufunni,“ útskýr- ir Auður, en hægt er að ákveða gufustreymi frá 30-70 prósent- um eftir því hvað er verið að elda eða baka. Auður segir jafnframt boðið upp á örbylgjuofna í úrvali. Allt frá sautján lítra einföld- um ofni í „combi-ofn“ sem er bæði örbylgjuofn og venjuleg- ur ofn í einu en hann hentar vel á stórum jafnt sem minni heim- ilum. Mest seldu ofnarnir eru að sögn Auðar einfaldir stál- ofnar með kjöthitamæli. „Þeir eru mjög auðveldir í þrifum. Í þeim er jafn blástur og níu eld- unarmöguleikar. Hurðargler- ið er þrefalt í f lestum ofnun- um en í þeim dýrari erum við með fjórfalt gler og snertiskjá. Þá erum við með ofna með „py- rolitic“ hreinsun en hreinsun- in virkar þannig að hitinn fer í 460 gráður sem brennir alla fitu og óhreinindi. Hún brennir líka óhreinindi í hliðum ofnhólfsins og ofninn verður eins og nýr.“ Uppþvottavélar af ýmsum gerðum Húsasmiðjan er með mikið úrval af uppþvottavélum og er hægt að fá þær bæði hvítar og úr stáli. Þá fást vélar til að byggja inn í innréttingar. Ein- földustu uppþvottavélarnar eru að sögn Auðar mjög vinsæl- ar og á frábæru verði en upp- þvottavélarnar eru frá 45 til 60 sentímetra á breidd. „Dýr- ari vélarnar eru yfirleitt hljóð- látari með tvöföldu vatnskerfi en þá er heitara vatn í neðri grind og vægara hitastig á efri, þar sem gjarnan er viðkvæm- ara leirtau. Í dýrari vélunum er líka innbyggt ljós og hnífa- paragrind fyrir ofan efri grind. Sömuleiðis sjálfvirkt þvotta- kerfisval sem metur óhreinind- in og velur þvottakerfi sjálft. Þá eru al lar uppþvottavél- ar Electrolux með mjög góðri þurrkun.“ Kæli- og frystiskápar Breiddin í kæli- og frystiskáp- um er ekki minni en þeir fást í hvítu og stáli og frá 85 til 200 sentímetra á hæð. Þeir eru allir vel innréttaðir og er auðvelt að þrífa þá og breyta hillum. Þeir eru hljóðlátir með orkunýtingu A til A+. „Þá eigum við frysti- kistur frá 103 lítrum til 500 lítra frá Frigor,“ segir Auður. Háfar og viftur Háfarnir frá Electrolux eru sí- vinsælir. Þeir eru frá 60 til 90 sentímetra á breidd og fást bæði sem eyjuháfar og veggháfar. Útdregnar þunnar viftur eru líka alltaf vinsælar en þær eru hljóðlátar og auðveldar í þrif- um. „Þá erum við með viftur sem fara beint undir skápa en þær eru mikið teknar í sumar- bústaði og lítil eldhús.“ Úrval smáraftækja í boði Auður segir Húsasmiðjuna líka bjóða upp á mikið úrval af smáraftækjum frá Electrolux og Russel Hobbs en reynslan hefur sýnt að þau henta vel á íslensk- um heimilum. Hágæða keramikpönnur og pottar frá Beka Í Húsasmiðjunni fæst sömu- leiðis húsbúnaður í úrvali og nefnir Auður sérstaklega Beka- potta og -pönnur sem eru á góðu verði. „Þetta eru fallegir hágæðapottar og -pönnur með þykkum botni ásamt pönnum sem mega fara í ofn sem er svo vinsælt núna.“ Auður segir ker- amikhúðunina frá Beka hina nýju kynslóð húðunar. „Beka er einn af frumkvöðl- unum í þróun og notkun á ker- amikhúðun án viðloðunar en hún stuðlar að góðri og heilsu- samlegri eldun. Húðin er um- hverfisvæn af því að hún inni- heldur ekki PTFE (teflon), PFOA eða önnur kemísk efni. Ef húðin rispast er hægt að nota pottana og pönnurnar áfram á öruggan hátt og gæðin haldast óskert, ólíkt pottum og pönnum með teflon-húðun. Notkunin er líka hagkvæm enda ekki þörf á eins miklum hita þar sem keramik- húðin hitnar auðveldlega. Því er yfirleitt hægt að nota helm- ingi minni hita þegar um er að ræða potta og pönnur með keramikhúð en þegar eldað er á teflonhúð.“ Úrval hreinlætis- og blöndunartækja Í hreinlætistækjadeild Húsa- smiðjunnar er boðið upp á mikið úrval eldhúsvaska úr stáli frá Reginox og Ukinox. Þeir vinsælustu í dag eru að sögn Auðar stórir og djúpir með einu hólfi þar sem hægt er að koma fyrir stærri hlutum. „Þá er mikið úrval af fallegri hönn- un í eldhúsblöndunartækjum frá Damixa og Emmevi svo eitt- hvað sé nefnt.“ Sérhæfð söludeild Electrolux í versluninni í Skútuvogi Auður bendir þeim sem vilja kynna sér til hlítar hið fjöl- breytta vöruúrval Electrolux á sérhæfða söludeild með Electro- lux-vörur í verslun Húsasmiðj- unnar í Skútuvogi. „Þar gefur að líta allar helstu vörur sem í boði eru og hefur starfsfólkið feng- ið þjálfun af hálfu þjónustu- aðila Electrolux á Norðurlönd- um. Með því að líta við í þessari „verslun í verslun“ er auðvelt að bera saman mismunandi tæki og finna það sem hentar. Við sérhæfum okkur í ELECTROLUX RAFTÆKJUM Húsasmiðjan er sölu-og þjónustuaðili Electrolux á Íslandi. Fyrirtækið rekur eigið raftækjaverkstæði og veitir fimm ára ábyrgð á öllum Electrolux-heimilistækjum sem seld eru í verslunum Húsasmiðjunnar. Electrolux er næststærsti heimilistækjaframleiðandi í heimi. Fyrirtækið er fjölþjóðlegt, aðalstöðvar þess eru í Stokkhólmi og starfsemi um allan heim. Húsasmiðjan býður líka upp á búsáhöld og smærri raftæki í úrvali. Þar fást meðal annars hágæða keramikpottar og pönnur frá Beka ásamt Aroma-pottajárnspottum, í fjórum stærðum. Húsasmiðjan býður upp á mjög breiða línu raftækja frá Electroulux. Má þar nefna eldavélar, ofna, örbylgjuofna, uppþvottavélar, ísskápa, þvottavélar og þurrkara. Að sögn Auðar Auðuns- dóttur, starfsmanns í söludeild Húsasmiðjunnar, eru ýmsar spennandi nýjungar að koma fram. Vaskarnir eru frá Reginox og Ukinox. Þeir vinsælustu eru stórir og djúpir með einu hólfi þar sem hægt er að koma fyrir stærri hlutum. Kæliskáparnir frá Electrolux eru vel inn- réttaðir. Húsasmiðjan býður upp á breiða línu raftækja frá Electrolux en Electrolux er næststærsti heimilistækjaframleiðandi í heimi. MYND/PJETUR 1 6 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 6 -0 0 A 0 1 6 4 5 -F F 6 4 1 6 4 5 -F E 2 8 1 6 4 5 -F C E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.