Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.05.2015, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 04.05.2015, Qupperneq 8
4. maí 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinnsson, for- seti Alþingis, sér ekki ástæðu til að meta hæfi Páls Jóhanns Pálssonar. Nýtt frumvarp sjávar- útvegs ráðherra um kvótasetningu veiða á makríl sem gengur inn í lögsögu Íslands gerir ráð fyrir að fyrirtæki í eigu eiginkonu Páls Jóhanns, sem áður var í eigu þingmannsins, fái makrílkvóta að verðmæti tuga milljóna króna í sinn hlut. „Mér finnst ekki tímabært að skoða hæfi þingmannsins. Hann hefur sjálfur gefið það út að hann muni ekki greiða atkvæði um frum- varpið. Þingmenn vinna oft og tíðum að frum- vörpum sem hafa áhrif á persónulega hagi þeirra, svo sem um skatta og uppbyggingu á sínum heimasvæðum. Enda gilda ekki sömu hæfisreglur um þingmenn og aðra embættis- menn í stjórnsýslunni,“ segir Einar K. Guð- finnsson, forseti Alþingis. Fyrirtækið Marver ehf., sem er að fullu í eigu eiginkonu Páls Jóhanns, fær úthlutað um 80 tonna kvóta ef frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar nær fram að ganga. Handfæra- bátur í eigu útgerðarinnar, Daðey GK, veiddi á síðasta ári um 170 tonn af makríl og hefur því veiðireynslu af makríl. Frumvarpið er nú í meðförum atvinnuvega- nefndar og situr Páll Jóhann í nefndinni. Oddný Harðardóttir, þingmaður S amfylkingarinnar, gagnrýnir það að þingmaðurinn skuli ekki sjálfur stíga til hliðar í þessari umræðu. „Mér fyndist hann eiga að íhuga að segja sig frá umræðum í nefndinni. Það væri skynsamlegt af honum að gera það þótt ströng lagatúlkun segi að hann sé ekki vanhæfur. Þetta er spurning um hans eigin trúverðugleika sem og trúverð- ugleika Framsóknarflokksins.“ Oddný gagnrýnir einnig hvernig frumvarpið veiti útgerðum aðgang að auðlindinni á silfur- fati og vill að þjóðin fái meira fyrir þessa auð- lind. „Með frumvarpinu er stigið stórt skref í átt til einkavæðingar auðlindar þjóðarinnar. Þarna er verið að gefa útgerðum kvóta til mjög langs tíma og afar erfitt verður fyrir sitjandi stjórnvöld að segja upp þessum samningum. Fyrir mína parta er óásættanlegt að setja svona frumvarp á dagskrá með auðlindir þjóðarinnar á meðan við höfum ekki fest í sessi auðlinda- ákvæði í stjórnarskrá.“ sveinn@frettabladid.is Forseti þingsins telur ekki ástæðu til að meta hæfi Páls Forseti Alþingis telur ástæðulaust að meta hæfi Páls Jóhanns Pálssonar. Fyrirtæki í eigu konu hans fær makríl- kvóta í nýju frumvarpi. Þingmaður Samfylkingar telur frumvarpið stíga skref í átt til einkavæðingar auðlinda. ALÞINGI Frumvarp sjávarútvegs- ráðherra um stjórnun veiða á makríl er nú í meðförum atvinnuvega- nefndar. Miklir hagsmunir eru undir enda hafa makrílveiðar skilað hundr- uðum milljarða í gjaldeyris- tekjur. Þetta er spurning um hans eigin trúverðug- leika sem og trúverðug- leika Framsóknarflokks- ins. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 1. Hvaða sérstaka skatt á stóriðjufyrir- tæki vill fjármálaráðherra afnema? 2. Hver er áætluð fjárfesting í gagna- verum á Íslandi á næstu 5-6 árum? 3. Hver er nýr formaður bankaráðs Seðlabankans? SVÖR: 1. Raforkuskatt. 2. Tuttugu milljarðar. 3. Þórunn Guðmundsdóttir. HAFNARFJÖRÐUR „Starfsmanni hafnarinnar var aldrei veitt áminning,“ segir Steinunn Þor- steinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðar- bæjar, vegna fréttar í Frétta- blaðinu síðast- liðinn föstudag. Í frét t i nni sagði að ti l- tekinn hafnar- starfsmaður hefði fengið áminningu sem síðar hefði verið dregin til baka. Steinunn segir þetta ekki rétt heldur hafi farið af stað áminn- ingaferli „þar sem viðkomandi var tilkynnt með bréfi að það sé til skoðunar að veita áminn- ingu,“ segir upplýsingafulltrúinn og kveður ferlið vera þannig að starfsmaðurinn fái tækifæri til að koma með athugasemdir. „Málið fór aldrei lengra og í kjölfarið var honum tilkynnt að það yrði látið niður falla. Þannig að formleg áminning átti sér aldrei stað,“ undirstrikar Steinunn. Þá segir Steinunn ekki rétt sem fram kom í máli Gylfa Ingvars- sonar, meðlims hafnar stjórnar, að starfsmaður R3 ráðgjafar hafi rætt við fyrrnefndan hafnar- starfsmann um málefni hafnar- innar. „Ráðgjafafyrirtækið hefur ekki komið að málefnum Hafnar- fjarðarhafnar,“ vísar upplýsinga- fulltrúinn í svör sem Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri lagði fram í bæjarráði í lok mars. - gar Segja R3 ekki hafa rætt við hafnarstarfsmann: Boðuð áminning varð aldrei formleg HAFNARFJARÐARHÖFN Minnihluti stjórnar hafnarinnar vill úttekt innanríkisráðu- neytisins á áminningarmáli starfsmanns. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN UMFERÐ Báðir erlendu ferðamenn- irnir sem fluttir voru á slysadeild Landspítala eftir bílveltu austan við Hvolsvöll á laugardag eru útskrifaðir af gjörgæslu, annar strax í fyrradag og hinn í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ferðamennina á spítalann. Sveinn Kristján Rúnarsson yfir- lögregluþjónn sagði ökumanninn hafa misst stjórn á bílnum. - bá Bílvelta austan Hvolsvallar: Ferðamenn af gjörgæslu SÓTTIR Þyrla flutti ferðamennina á Landspítalann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STEINUNN ÞOR- STEINSDÓTTIR VEISTU SVARIÐ? 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 9 -7 8 7 C 1 6 3 9 -7 7 4 0 1 6 3 9 -7 6 0 4 1 6 3 9 -7 4 C 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.