Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.05.2015, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 04.05.2015, Qupperneq 16
4. maí 2015 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 16 Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum! Markaður Samhjálpar (second hand store) Ármúla 11, Rvk. Opnunartími alla virka daga frá kl. 11-18. Tökum á móti gjöfum á opnunartíma, nánari upplýsingar í s: 842-2030 Allur ágóði markaðarins rennur til úrræða Samhjálpar. Við eru með læk síðu á facebook: Nytjamarkaður Samhjálpar og www.samhjalp.is Það að vera með geðsjúk- dóm er oft erfitt en vonin er mikilvægur þáttur í að geta náð góðum bata ef ekki fullum bata. Það að hitta aðra sem glíma við það sama, að rjúfa einangr- un, fá stuðning og skilning styrkir mann. Ýmsar leiðir eru til og ekki allt sem hentar hverj- um og einum. En fyrsta skrefið er að fræðast um sinn sjúkdóm og fá hjálp. Að efla þekkingu með fræðslu hefur mikið forvarnargildi í okkar samfélagi. Að geta talað um tilfinn- ingar sínar í staðinn fyrir að berj- ast á móti straumnum gefur manni betri líðan. Það að stuðningur komi frá sam- félaginu hjálpar einstaklingum og aðstandendum að taka skrefið og fá hjálp. Sem betur fer eru þessi mál að opnast, yngra fólkið og aðstand- endur hafa tækifæri á hjálp með þeirri þekkingu sem er á geðsjúk- dómum í dag. Áður fyrr var ekki eins mikil þekking og margir hafa þurft að berj- ast í gegnum lífið án þess að fá hjálp. Grófin– geðverndarmiðstöð Segja má að Grófin sé ávöxtur grasrótarhóps not- enda og fagfólks, sem hitt- ist á vikulegum fundum um tveggja ára skeið. Niður- staða þeirrar vinnu var að byggja á farsælu starfi Hugarafls í Reykjavík og tók Geð- verndarfélagið af skarið sumarið 2013 um að taka á leigu húsnæðið að Hafnarstræti 95 og hefja starf- semina alfarið með sjálfboðastarfi, í trausti þess að önnur meginstoð Hugarafls módelsins, launað starf fagaðila, yrði að veruleika í fyll- ingu tímans með stuðningi opin- berra aðila. Sálfræðingur var svo ráðinn 1. október 2014 og í framhaldi af því lengdum við opnunartímann og er hann í dag frá 10.00 til 16.00. Hópa starf gengur vel, fræðsla og forvarnir í skólum komnar í undir- búning með forvarnarfulltrú- um Akureyrarbæjar. Samstarf við Háskólann og Menntaskólann á Akureyri gengur vel. Vonum að Akureyrarbær muni koma að okkar rekstri en það hefur sýnt sig á þessum stutta tíma hvað þetta er að gera fyrir fólkið. Við störfum samkvæmt hug- myndafræði valdeflingar (e. em- power ment), þar sem áherslan er á að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin bata og að öll vinna fari fram á jafningjagrunni. Markmið Grófarinnar • Að skapa tækifæri fyrir þá sem glíma við geðraskanir til að vinna í sínum bata á eigin forsendum og eigin ábyrgð í samræmi við hug- myndafræði valdeflingar. • Að skapa vettvang fyrir alla þá sem vilja vinna að geðverndar- málum á jafningjagrunni, hvort sem þeir kallast notendur geðheil- brigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur þeirra sem glíma við geðraskanir, eða eru einfald- lega áhugamenn um framfarir í geðheilbrigðismálum. • Að bæta lífsgæði þátttakenda. • Að efla virkni fólks sem glímir við geðsjúkdóma í hinu daglega lífi. • Að standa fyrir hópa starfi fyrir notendur og aðstandendur. • Að standa fyrir fræðslu fyrir not- endur og aðstandendur. • Að stuðla að aukinni þekkingu á bataferlinu með áherslu á að hægt sé að ná bata og að hægt sé að fara fjölbreyttar leiðir í bataferlinu. • Að miðla von og reynslu milli not- enda. Vonin er lykilatriði í því að ná bata. • Að vinna að fræðslu og forvörn- um í samfélaginu til að auka skiln- ing og draga úr fordómum gagn- vart þeim sem eru að glíma við geðraskanir. • Að stuðla að bættri nálgun í geð- heilbrigðiskerfinu þar sem hug- myndir valdeflingar um notenda- sýn og bataferli á jafningjagrunni fái aukið vægi. Innan Grófarinnar starfar einnig Unghugahópur og aðstandenda- hópur. Nýliðakynningar eru á föstu- dögum frá 13.00-14.00 en annars er alltaf hægt að hringja í síma 462-3400, hvenær sem er á opn- unartíma, eða senda fyrirspurnir á grofin@outlook.com og verður svarað eins fljótt og hægt er. Grófin er til húsa í Hafnarstræti 95., 4. hæð, á Akureyri, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Opn- unartími er alla virka daga frá 10.00-16.00. https://grofin.wordpress.com/ Höfundur komst úr myrkrinu með góðri hjálp. Lífsgæðin betri þegar einangrunin er rofi n Kæri Illugi Gunnarsson. Í Slóvakíu situr áhyggjufullur hópur læknanema. Okkur langar að koma á framfæri vangaveltum okkar í kjölfar nýrra úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Fyrir þremur árum hófu fyrstu nemendurnir nám við Comenius- háskóla – stærsta háskóla í Slóvak- íu. Bæst hefur í hópinn síðustu ár og stunda nú um 70 íslenskir stúdentar nám við skólann. Nýjustu úthlutunarreglur LÍN hafa sett ófyrirséð strik í reikn- inginn fyrir læknanema í Slóvak- íu. Brugðið hefur verið fæti fyrir nemendur með nánast 19% skerð- ingu á framfærsluláni síðustu tvö árin. Nemendur hófu hér nám á ákveðnum forsendum sem nú hafa algjörlega brostið. Í kjölfar þessar- ar skerðingar sjáum við ekki fram á að ná endum saman. Húsnæði og matvara fer hækkandi í Evrópu, en lán okkar lækkandi. Ferðalán var afnumið á síðasta ári sem gerir nemendum erfitt fyrir að afla tekna yfir sumartímann á Íslandi. Þar að auki eru möguleikar á tekjuöflun í Slóvakíu á meðan á námi stendur nánast engir. Það liggur því í augum uppi að dæmið er ekki rétt reiknað. Í Slóvakíu gefst möguleiki á að útskrifa um 20-30 íslenska lækna á ári. Nemendur þurfa þó að sjálf- sögðu að geta reitt sig á LÍN til framfærslu á meðan á námi stend- ur. Þau lán munu greiðast til baka þegar útskrifaðir læknar koma til starfa á Íslandi að námi loknu. Á Íslandi skortir enn lækna og því ætti þessi kostur að fá meiri með- byr og stuðning frá íslenska ríkinu. Sá góði kostur sem gefist hefur að mennta lækna erlendis mun lognast út af með þessu áframhaldi. Fjöl- breytni í menntun, þekkingu og reynslu er af hinu góða. Við erum um 70 lækna nemar í Slóvakíu sem hafa orðið fyrir barðinu á skerðingunni. Úthlutunar- kjör, viðmót og rök af höndum LÍN í okkar garð hafa því miður verið til skammar. Við köllum eftir því að þú, Illugi Gunnarsson, ásamt ráða- manni frá LÍN komir til fundar við okkur og ræðir við okkur lækna- nema í Slóvakíu. Þar viljum við að eftirfarandi komi fram: 1 Hvernig réttlætið þið áframhald-andi skerðingu framfærslulána til námsmanna erlendis? 2 Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að við megum við meiri skerðingu á framfærslu hér og á hverju byggjast rök ykkar fyrir því? Áhyggjufullir læknanemar MENNTUN Auður Jóna Einarsdóttir Ásgeir Þór Magnússon Erna Markúsdóttir Þórdís Magnadóttir Þórunn Elísabet Michaelsdóttir læknanemar ➜ Nýjustu úthlutunarreglur LÍN hafa sett ófyrirséð strik í reikninginn fyrir lækna- nema í Slóvakíu. HEILBRIGÐIS- MÁL Eymundur L. Eymundsson ráðgjafi ➜ Sem betur fer eru þessi mál að opnast, yngra fólkið og aðstandendur hafa tækifæri á hjálp með þeirri þekkingu sem er á geðsjúk- dómum í dag. Lyfjanotkun heimilisfólks á íslenskum öldrunarheim- ilum hefur verið talsvert í umræðunni að undan- förnu, einkum notkun svefn- og róandi lyfja. Af því tilefni vill undirritað- ur gera nokkra grein fyrir þeirri þróun sem átt hefur sér stað á Hrafnistuheim- ilunum undanfarin ár, þar sem regluleg endurskoðun á lyfjanotkun hefur verið hluti af gæðastarfinu. Síð- ustu sjö ár hafa verið not- aðar upplýsingar frá Lyfjaveri og Lyfju, sem sinna lyfjaskömmtun á Hrafnistu, um lyfjanotkun heim- ilisfólks. Með þeim upplýsingum fæst gott yfirlit sem er m.a. nýtt til að tryggja sem best eftirlit með ákveðnum varasömum lyfjum eða lyfjum sem kalla á reglubundið blóðprufueftirlit. Lyfjaeftirlitskerfi Hrafnistu auðveldar læknum og hjúkrunar- fræðingum að skoða þróun lyfja- notkunar, auka öryggi í meðferð og stuðla að hagkvæmni. Með öryggi í meðferð er m.a. átt við eftirlit með lyfjum sem vegna aukaverkana eru sérlega varasöm hjá öldruðum og lyf þar sem ráðlagt er að reglu- leg blóðrannsókn sé gerð sem hluti af eftirliti. Það á við lyfjameðferð um tveggja þriðjunga heimilis- manna, þar sem fyrst og fremst er um að ræða ákveðin hjartalyf, hormónalyf, geðlyf og flogaveiki- lyf. Við þessa vinnu er tekið mið af lyfjagæðavísum Landlæknis. Dregið úr óþarfa fjöllyfjanotkun Í megindráttum fylgir Hrafn- ista þeirri stefnu að draga eins og kostur er úr óþarfa fjöllyfja- notkun heimilisfólks og notkun ákveðinna lyfja sem hafa óviðun- andi aukaverkanir eða skila tak- mörkuðum ávinningi til að bæta líðan. Með minnkaðri lyfjagjöf er þó heilsu eða öryggi viðkomandi aldrei teflt í tvísýnu með nokkrum hætti. Markmiðið er ávallt að auka lífsgæði heimilismanna. Meginniðurstaða eftirlits er sú að þrátt fyrir að einstaklingar komi nú veikari en áður á Hrafn- istu hefur heildarlyfjanotkun minnkað á undanförnum árum. Sem dæmi um árangurinn má nefna að líklega er nú óvíða notað minna af geðrofslyfjum en hjá Hrafnistu, eins og fram kemur í gögnum Landlæknisembættisins. Undanfarin ár hefur sömuleiðis dregið verulega úr notkun svefn- og róandi lyfja við sérstakt átak í þeim málum síðustu 3-4 ár. Svefn- lyf í hófi geta hjálpað, sérstaklega til að rjúfa vítahring svefn leysis. Að sama skapi er langvarandi notkun þeirra talin gagns- laus og getur auk þess verið skaðleg. Þau geta haft í för með sér þreytu og syfju að degi til, skert jafn- vægis skyn og aukið hættu á bylt- um og beinbrotum. Virkt og stöðugt eftirlit Reglubundin skoðun á lyfjanotkun með tilliti til lyfjagæðavísa, meðal annars m.t.t. varasamra aukaverk- ana, og hagkvæmni er viðvarandi þáttur í gæðavinnu á Hrafnistu. Fjölmargir lyfjagæðavísar eru notaðir erlendis við mat á lyfja- meðferð og er víða stuðst við þá á íslenskum öldrunarheimilum. Fylgst er náið með notkun ýmissa lyfja s.s. geðrofslyfja, lyfja við þunglyndi og bólgueyðandi gigtar- lyfja, og síðast en ekki síst svefn- og róandi lyfja, sem tilhneiging er til ofnotkunar á. Hér er einungis fátt eitt upp talið. Viðvarandi vinna– aukin vellíðan Það er væntanlega regla á öllum öldrunarheimilum að lyfjanotkun allra verðandi heimilismanna sé yfirfarin við komu og síðan reglu- lega eftir það. Markmiðið er að bæta lyfjameðferð, en það byggist á samvinnu og áhuga heilbrigðis- starfsmanna, heimilisfólks og jafnvel ættingja. Vinnan krefst endurtekinna viðtala við hvern og einn heimilismann og oft aðstand- endur hans. Markmiðið er ávallt hið sama: Að auka lífsgæði íbúa, viðhalda eða auka öryggi við- komandi og gæta hagkvæmni. Einna erfiðast er að minnka eða stöðva langvinna notkun svefn- og róandi lyfja. Á því sviði hefur þó náðst mikilvægur árangur sl. ár þrátt fyrir á stundum tals- verða mótspyrnu notenda og ætt- ingja. Gjarnan stafar hún af ótta við afleiðingar þess að hætta notk- un lyfjanna. Í langflestum tilvik- um reynist slíkt ástæðulaust því reynslan sýnir að þessi viðvarandi vinna hefur að jafnaði í för með sér aukna vellíðan íbúa og ánægju meðal aðstandenda. Stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur má rekja til skilvirks eftirlits. Það staðfestir m.a. reglulegt eftirlit sem Landlæknisembættið hefur með öldrunarheimilum landsins. Svefnlyfjanotkun á Hrafnistu minnkar HEILBRIGÐIS- MÁL Sigurður Helgason forstöðulæknir Hrafnistu ➜ Lyfjaeftirlitskerfi Hrafnistu auðveldar læknum og hjúkr- unarfræðingum að skoða þróun lyfja- notkunar, auka öryggi í meðferð og stuðla að hagkvæmni. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 8 -5 5 2 C 1 6 3 8 -5 3 F 0 1 6 3 8 -5 2 B 4 1 6 3 8 -5 1 7 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.