Fréttablaðið - 04.05.2015, Síða 44

Fréttablaðið - 04.05.2015, Síða 44
4. maí 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 24 Þú færð alltaf fimm pizzur á verði fjögurra í Iceland 1 stór sæt kartafla 1 poki spínat 4-5 kjúklingabringur 1 krukka fetaostur 1 lítill rauðlaukur, skorinn fínt heilsutómatar eða konfekttómatar, skornir í bita furuhnetur balsamikgljái Hitið ofninn í 180° gráður. Skrælið sæta kartöflu og skerið í sneiðar. Látið kartöflusneiðarnar í eldfast mót, setjið smá ólífuolíu yfir, saltið og piprið og setjið inn í ofn í 15 mín- útur eða á meðan kjúklingurinn er undirbúinn. Skerið kjúklingabringurnar í bita og lokið þeim á heitri pönnu. Kryddið eftir smekk með t.d. fajitas- kryddi. Þegar kartöflurnar hafa verið í ofn- inum í 15 mínútur eru þær teknar út. Setjið spínat yfir sætu kartöflurnar og kjúklinginn yfir spínatið. Stráið tómötum og rauðlauk yfir og hellið að lokum fetaostinum ásamt olíunni yfir allt. Bakið í 30 mínútur í ofni. Á meðan rétturinn er í ofninum eru furuhnetur ristaðar á pönnu og stráð yfir þegar rétturinn kemur úr ofninum og balsamikgljáa dreypt yfir. Uppskrift fengin af Ljufmeti.com Kjúklingur með kartöfl um, spínati og fetaosti Einfaldur kjúklingaréttur sem hentar vel í upphafi vikunnar. Allt sett í eld- fast mót og því lítið um uppvask. Á laugardagsmorgun 2.maí eign- uðust þau Kate Middleton og Vil- hjálmur prins sitt annað barn, litla stúlku. Fyrir eiga þau son- inn Georg Alexander Louis, fædd- an 22. júlí 2013. Litla prinsessan fæddist á St. Mary‘s-sjúkrahúsinu í London, líkt og bróðir hennar og pabbi, klukkan 8. 34 um morgun- inn og tók fæðingin einungis um tvo klukkutíma. Er hún fjórða í röðinni til að erfa krúnuna á eftir afa sínum Karli, pabba sínum Vil- hjálmi og bróður sínum Georg. Þá er hún einnig eina stúlkan í röð- inni á eftir langömmu hennar, Elísabetu Englandsdrottningu. Kate og Vilhjálmur kynntu heiminn fyrir nýju prinsessunni upp úr klukkan sex á laugardags- kvöld, þegar þau stigu út á tröpp- urnar á Lindo-álmu sjúkrahúss- ins, líkt og þau gerðu með George. Héldu þau heim á leið nokkrum mínútum síðar. Í gær komu bæði foreldrar Kate og systir hennar Pippa í heimsókn, ásamt Karli föður Vilhjálms og Camillu eiginkonu hans. Litla prinsessan deilir fæðingar- degi sínum með óvenju mörgum þekktum einstaklingum, en þar má helst nefna tískuhönnuðinn Donatella Versace, söngkonuna Lily Allen, leikarann Dwayne „The Rock“ Johnson og David Beckham, sem sendi prinsessunni kveðju og sagði að þetta væri svo sannarlega ekki slæmur dagur til að fæðast. Nýja prinsessan í Buckingham-höll Mikil gleði ríkir í Bretlandi þessa dagana eft ir að Kate Middleton og Vilhjálmur prins eignuðust sitt annað barn á laugardagsmorgun. Stúlkan hefur ekki fengið nafn enn og eru uppi veðmál hjá veðbönkum um líklegasta nafnið. GULLFALLEG Prinsessan svaf þrátt fyrir fagnaðarlæti og ljós frá mynda- vélum. NORDICPHOTOS/GETTY STOLTIR FORELDRAR Kate og Vilhjálmur með dóttur sína fyrir utan St. Mary‘s sjúkrahúsið í London. 06.00 Kate er lögð inn á Lindo-álmu St. Mary‘s-sjúkrahússins með hríðir. 06.34 Tilkynning frá Kensington-höll um að Kate sé komin á sjúkrahúsið. 08.34 Prinsessan kemur í heiminn og vegur 14 merkur. 11.00 Tilkynning frá Kensington-höll um að stúlka sé fædd. 16.00 Vilhjálmur yfirgefur sjúkrahúsið og kemur aftur korteri síðar með Georg prins, til að hitta systur sína í fyrsta sinn. 18.11 Kate og Vilhjálmur koma fram á tröppur Lindo-álmunnar með dóttur sína, þar sem henni er fagnað af aðdáendum og fjölmiðlum. 18.16 Hjónin yfirgefa sjúkrahúsið með börnin og halda heim á leið í Kensington-höll. Prinsessan kemur í heiminn Veðbankar úti veðja nú á hvaða nafn sé líklegast að prinsessan fái og eru þessi líklegust til vinnings: Alice 3/1 Charlotte 3/1 Victoria 5/1 Elizabeth 6/1 Olivia 7/1 Alexandra 8/1 Diana 10/1 Mary 12/1 Frances 25/1 Grace 25/1 ➜ Hvað mun hún heita? LÍFIÐ 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -9 0 6 C 1 6 3 8 -8 F 3 0 1 6 3 8 -8 D F 4 1 6 3 8 -8 C B 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.