Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 32
6 • LÍFIÐ 1. MAÍ 2015 A ndri Snær Magnason er án efa einn af hugmynda- ríkustu og færustu rithöf- undum sinnar kynslóðar á Íslandi og þó víða væri leitað. Hann er Árbæingur í húð og hár og getur rakið ættir sínar í póstnúmerið aftur um nokkra ætt- liði. „Langafi og langamma voru frumbyggjar í Árbæjarhverfi. Afi var múrari og byggði þar hús sem hét Selás 3. Afi minn og amma búa enn í hverfinu, foreldrar mínir og fullt af frændfólki.“ Eldri syst- ir hans er heilaskurðlæknir í Am- eríku og yngri bróðir vinnur hjá Nýherja. Andri Snær bjó í Banda- ríkjunum í sex ár, lengst af í Conn- ecticut þar sem faðir hans var í framhaldsnámi í læknisfræði. Mamma hans er hjúkrunarfræð- ingur, afi hans er læknir, konan hans er hjúkrunarfræðingur og tengdamamma líka. Hamingja og réttlæti Að menntaskóla loknum lá leið Andra Snæs í Háskólann þar sem hann reyndi fyrir sér í læknis- fræði líkt og fleiri fjölskyldumeð- limir höfðu gert með góðum ár- angri. „Ég skrifaði súrar smásög- ur á meðan ég reyndi við klásusinn og komst ekki inn eftir fyrstu önnina og skráði mig beint í ís- lensku, ég var búinn að gefa út þrjár bækur áður en námi lauk,“ segir hann. Árið 2000 fékk Andri Snær íslensku bókmenntaverð- launin fyrir Söguna af bláa hnett- inum, þá nýútskrifaður íslensku- fræðingur og aðeins tuttugu og sex ára að aldri. Bókin naut mikill- ar hylli bæði hérlendis og erlend- is en hún hefur verið þýdd á þrjá- tíu tungumálum. Þrátt fyrir að bókin sé skrifuð sem barnabók og börn upplifi hana sem spennandi ævintýri þá skynja þeir sem eldri eru ýmsar hnattrænar samlíking- ar og pól itískan undirtón. „Hún er í rauninni mjög pólitísk en það gerð- ist sjálfkrafa í skrifunum og vekur hún upp ýmsar grundvallarspurn- ingar um hamingju og réttlæti.“ Þjóðleikhúsið setti upp leikrit eftir bókinni árið 2001 en einnig hefur það verið sett upp víða um heim og nú síðast í Danmörku. Aðspurð- ur segist Andri Snær lítið skipta sér af uppsetningum og túlkun á verkinu, þvert á móti þyki honum lærdómsríkt að upplifa verkið frá öðru sjónarhorni en sínu eigin. „Mér finnst alltaf erfitt að fara á frumsýningar án þess að hafa séð verkið áður en um leið finnst mér áhugavert að gefa fólki frelsi til að túlka verkið á sinn hátt og sjá hversu ólíkt það getur orðið á milli heimsálfa.“ Óafturkræfar ákvarðanir Andri Snær ólst upp með sterk- um fyrirmyndum með ævintýra- legum blæ frá unga aldri sem án efa hefur haft mikil áhrif á ungan dreng. „Ég hef átt góðar fyrir- myndir, margar sterkar konur, en systir mín er fyrsti heilaskurð- læknirinn, amma ein fyrsta konan til að fljúga og svo er mamma mikil kjarnakona. Ég er kominn af miklu fjallafólki, amma og afi í Hlaðbæ voru frumkvöðlar í Jökla- rannsóknarfélaginu og svo afi og amma á Melrakkasléttu sem voru alger villibörn. Síðan á ég afa í Ameríku og afasögurnar þar eru öðruvísi en aðrar afasögur. Það eru sögur af því þegar Íranskeis- ari og Oppenheimer lágu á skurð- arborðinu og systir hans var barn- fóstra hjá Tolkien,“ segir hann. Sem barni var Andra Snæ kennt að umgangast náttúruna af virðingu og skildi hann snemma hversu við- kvæmt hálendi Íslands væri. Með þessa hugsjón og sterka réttlætis- kennd í farteskinu tók Andri Snær þá hugrökku ákvörðun að skrifa bókina Draumalandið þar sem hann deilir skoðunum sínum á stóriðjustefnu stjórnvalda á Ís- landi með þjóðinni. „Ég tók sjens- inn á því að fæla frá ákveðinn les- endahóp sem myndi hafa skoðan- ir á því sem ég var að skrifa um í Draumalandinu. Hún fjallar samt ekki fyrst og fremst um virkjan- ir, hún fjallar meira um hugmynd- ir og hvað gerist þegar við missum hæfileikann til að ímynda okkur aðra möguleika en til dæmis stór- iðjustefnuna.“ Bókin fékk íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006 og mætti segja að hún hafi brot- ið blað í umhverfisvitund þjóðar- innar með hreinu og skýru orða- lagi Andra Snæs. „Oft eru fræði- menn hreinlega að fela hluti með dulkóðuðu orðalagi og það sem ég hélt að yrði leiðinlegast við bók- ina varð að lokum skemmtilegast. Hvernig setur maður þrjátíu tera- vattstundir í samhengi svo fólk skilji það sem talað er um? Hvað eru þetta margir fossar, marg- ar ár og svo framvegis. Fólk er ekkert heimskt, það er hægt að skilja langflesta hluti séu þeir sett- ir í rétt samhengi.“ Þrátt fyrir að bókin hafi komið út fyrir hartnær tíu árum hefur hún sjaldan átt eins vel við og í dag þar sem stjórnvöld eru enn að velta fyrir sér óaftur- kræfum ákvörðunum um stóriðju- stefnu landsins. Hnattrænt samhengi Um þessar mundir vinnur Andri Snær að áhugaverðu verkefni sem sumir gætu túlkað sem sjálf- stætt framhald af Draumaland- inu. „Draumalandið byrjaði eigin- lega sem fyrirlestraröð sem blés út og varð bók og kvikmynd. Ég er eiginlega kominn á sama stað aftur, er með efni sem endar lík- legast sem bók og kvikmynd. Ekki beinlínis framhald því hnattræna samhengið er stærra. Þarna reyni ég að skapa heildarmynd úr alls kyns brotum og áhrifum undan- farinna ára. Þetta byrjaði eigin- lega á tveimur viðtölum við Dalai Lama sem ég tók á Íslandi og Ind- landi.“ Ástríða Andra Snæs fyrir umhverfinu á sér engin takmörk og hefur hann verið ötull talsmað- ur bættrar framtíðarsýnar lands- ins. „Draumalandið hefur fylgt mér og ég tók þátt í að skipuleggja Gætum garðsins-tónleikana og tengist verkefni eða draumi um að skapa heildstæðan þjóðgarð eða friðland á miðhálendi Íslands. Ég tel að þetta væri framsýn gjöf til komandi kynslóða og kannski það merkilegasta sem okkar kynslóð gæti ,,skapað“. Það er einstakt að eiga það sem við eigum og væri skammsýni að skera með raflín- um eða skerða með frekari stífl- um. Við eigum Aldeyjarfoss, Þjórs- árver, Sprengisand og Fjallabak og mögnuð víðerni. Íslendingar eiga nú þegar gnægð auðlinda sem hver og ein ætti að duga 300.000 manna samfélagi. Við veiðum 2% af öllum fiski í heiminum, fram- leiðum fimmfalt meiri orku en við getum torgað, fáum fleiri ferða- menn á mann og eigum síðan heitt og kalt vatn og ágætt ræktar- land miðað við höfðatölu. Ef okkur skortir eitthvað og ,,neyðumst“ til að fórna hálendinu þá erum við bara að reyna að sanna að jörðin sé óbyggileg. Engin kjarnorkuvísindi Andri Snær liggur ekki á skoð- unum sínum þegar rætt er um stærsta atvinnuveg landsins, ferðaþjónustuna, og telur að mörgu sé ábótavant sem að þeim HUGSJÓNIR OG STERK RÉTTLÆTIS- KENND Í FARTESKINU Andri Snær Magnason er einn fremsti og fjölhæfasti rit- höfundur sinnar kynslóðar. Hann skrifar allt frá ævintýra- legum barnabókum upp í pólitísk ádeilurit og berst fyrir vitundarvakningu þjóðarinnar um verndun hálendisins. „Við eigum að nota ferðaþjónustuna til að efla innviði sem við gætum aldrei byggt sjálf og gera líf okkar betra.” „Það eru sögur af því þegar Íranskeisari og Oppenheimer lágu á skurðarborðinu og systir hans var barnfóstra hjá Tolkien.” Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 9 -B D 9 C 1 6 3 9 -B C 6 0 1 6 3 9 -B B 2 4 1 6 3 9 -B 9 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.