Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 54
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
Tónlistarveitan Tidal varð aðgengi-
leg á Íslandi í gær, mánuði eftir að
tilkynnt var um að Jay-Z hefði keypt
hana. Tidal er veita frá sænska fyrir-
tækinu Aspiro og fór fyrst í loft-
ið í lok október í fyrra en skaust á
stjörnuhimininn eftir að rapparinn
Jay-Z keypti veituna.
Tidal er stefnt til höfuðs öðrum
veitum. Þar ber helst að nefna hina
sænsku Spotify. Sem stendur er Spot-
ify stærsta tónlistarveita heimsins
með yfir 60 milljón notendur. Þar af
eru fimmtán milljónir sem greiða
fyrir notkun hennar.
Spotify hefur lengi legið undir
gagnrýni fyrir að listamenn fái afar
lítið í sinn skerf. Fyrir hverja spil-
un greiðir Spotify upphæð sem er á
bilinu 0,6 til 0,86 bandarískra senta.
Það er andvirði um einnar krónu sé
upphæðin reiknuð yfir í alvöru gjald-
miðil.
Stærstur hluti þeirrar upphæðar
týnist einhvers staðar á leiðinni og
ratar ekki í hendur tónlistarmanna.
Umboðsmenn, útgáfufyrirtæki og
hvers kyns milliliðir taka sinn skerf
í sinn vasa. Til að ná að þéna banda-
rísk lágmarkslaun, 1.200 Banda-
ríkjadali eða tæpar 160.000 krónur,
þarf listamaður að ná að minnsta
kosti fjórum milljónum spilana á lög
sín. Fæstir ná þeim stalli.
Þetta fyrirkomulag hefur orðið
til þess að margir listamenn bjóða
ekki upp á tónlist sína á Spotify.
Meðal þeirra má nefna Taylor Swift,
Atoms For Peace sem er sólóverkefni
Thoms Yorke, söngvara Radiohead,
og Björk, sem hefur ekki enn gert
Vulnicura aðgengilega á veitunni.
Þessu vilja aðstandendur Tidal
breyta.Engin ókeypis áskrift er í
boði fyrir notendur Tidal heldur
verða þeir að punga út tíu eða tutt-
ugu dölum á mánuði fyrir notkunina.
Dýrari áskriftin býður upp á tónlist
í talsvert betri gæðum en sú ódýrari
og Spotify. Notendur nú eru tæplega
600.000. Þar af eru aðeins um 17.000
sem velja dýrari áskriftarleiðina.
Enn sem komið er er aðeins hægt
að ná í Tidal sem smáforrit fyrir
bæði iPhone- og Android-síma. Ekki
er til forrit fyrir tölvur en hægt er
að hlusta í gegnum vefstreymi sem
virkar þó aðeins í Google Chrome.
Það helsta sem Tidal hefur umfram
Spotify, fyrir utan betri hljómgæði, er
að tónlistarfólk mun geta notað veit-
una sem nokkurs konar samfélags-
miðil. Planið er að tónlistarmynd-
bönd og ýmsar demóupptökur verði
aðgengilegar aðdáendum þar og ein-
göngu þar. Fyrir skemmstu mátti þar
finna upptöku af Beyoncé í stofunni
heima hjá sér þar sem hún lék áður
óheyrt lag á flygilinn þar. Maðurinn
bak við myndavélina var eiginmaður-
inn, títtnefndur Jay-Z.
Það er alls kostar óvíst að Jay-Z og
meðeigendum hans takist að sann-
færa fólk um að gefa fría streym-
ið upp á bátinn og greiða fyrir það
í staðinn en ljóst er að Tidal er lík-
lega harðasti keppinautur Spotify
til þessa. Forvitnilegt verður að sjá
hvort listamenn muni taka upp á því
að færa tónlist sína eingöngu yfir á
Tidal.
TIDAL STEFNT TIL HÖFUÐS SPOTIFY
Tónlistarveita rapparans Jay-Z er gerð af tónlistarmönnum fyrir tónlistarmenn. Alls er óvíst hvort fólk sé tilbúið að greiða fyrir þjónustu
sem er ókeypis hjá öðrum tónlistarveitum. Veitan er nú aðgengileg á Íslandi mánuði eft ir að Jay-Z tilkynnti kaupin í New York.
Höfundur greinar þessarar hefur undanfarið ár greitt fyrir að nota Spotify
en fékk sökum starfs síns að prófa Tidal í tvær vikur áður en veitan var
gerð aðgengileg á Íslandi.
● Velkistu í vafa um hvort þú ættir að nota Spotify eða Tidal ætti að líta
fyrst á hljómgæðin. Eigirðu góð heyrnartól eða hátalara liggur beinast við
að greiða örlítið meira og fjárfesta í Tidal HIFI. Munurinn er mikill. Sértu
hins vegar að hlusta á tónlist með aumum heyrnartólum eða innbyggðum
tölvuhátalara skaltu halda þig við Spotify þar sem FLAC-gæðin munu ekki
komast til skila.
● Enn sem komið er er lagagagnagrunnur Spotify stærri en Tidal. Spotify
býður upp á 30 milljónir laga en Tidal er aðeins með 25 milljónir. Þeir
listamenn sem ekki bjóða upp á tónlist sína á Spotify hafa fæstir stigið
skrefið til Tidal. Spurningin er þó hvað framtíðin ber
í skauti sér.
● Margt er sniðugt við Tidal. Möguleikinn Tidal
Rising er þægilegur; hann sýnir lög sem notendur
Tidal hafa hlustað mikið á án þess að þau séu
orðin þau sem vinsælust eru. Lagalistarnir sem
teknir hafa verið saman eru þægilega upp settir
og mynda oft betri heild en það sem Spotify
hefur upp á að bjóða. Tidal í
síma er líka að mörgu leyti
þægilegra en Spotify í
síma.
● Vankantarnir eru
þó nokkrir. Að
mörgu leyti er
leiðinlegt að
þurfa ávallt
að vera með
Tidal opið
í Google
Chrome en
ekki í sérfor-
riti. Að auki
er munurinn
á leitarvélum
veitnanna afar mikill.
Ef þú leitar að listamanni eða hljóm-
sveit í Spotify kemur síða þess lista-
manns fyrst í leitarniðurstöðurnar.
Tidal sýnir hins vegar plötur og lög á
undan listamönnunum. Eflaust er það
misjafnt milli notenda hvað þeir vilja
en þetta fór í taugarnar á höfundi. Að
auki er Radio-möguleikanum ábótavant
í Tidal. Í Spotify er hægt að velja lag og
forritið velur síðan svipuð lög og spilar
fyrir þig. Það er ekki í boði hjá Tidal.
● Tidal mun eflaust venjast ágætlega og
sértu tækni- og hljóðpervert er veitan
hiklaust málið fyrir þig. Sértu hinn
venjulegi tónlistarunnandi og veltir þér
ekkert endilega upp úr gæðum og
getur látið þig hafa stöku auglýs-
ingar, þá er réttast að halda sig við
Spotify.
Tidal kjörið fyrir tækniperverta
EIGENDUR KYNNA AFRAKSTURINN Sextán hljómsveitir og listamenn standa að baki Tidal. Þar má nefnda Deadmau5, Daft
Punk, Kanye West, Rihanna, Arcade Fire og Beyoncé. Þau komu saman í New York þegar veitan fór í loftið. NORDICPHOTOS/GETTY
FREE PREMIUM HIFI
HLJÓMGÆÐI 160 kbps 320 kbps 320 kbps 1411 kbps
VERÐ frítt 9,99 £ á mánuði 9,99€ á mánuði 19,99€ á mánuði
AUGLÝSINGAR
AÐGENGILEGT*
MYNDBÖND X
X X X
X
SAMANBURÐUR Á ÁSKRIFARMÖGULEIKUM VEITNANNA
Jóhann Óli
Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
*Tidal virkar með öllum stýrikerfum en er ekki til sem forrit heldur eingöngu sem vefspilari í Google Chrome.
V M - F É L A G V É L S T J Ó R A
O G M Á L M T Æ K N I M A N N A
Félagsmenn fjölmennum og tökum
þátt í kröfugöngu og útifundi 1. maí.
Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00
og hefst gangan hálftíma síðar.
Kl. 14:10 hefst útifundur á Ingólfstorgi.
Boðið verður upp á kaffi að
útifundi loknum í Gullhömrum
Grafarholti, frá kl. 15:00 - 17:00.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
A
-2
0
5
C
1
6
3
A
-1
F
2
0
1
6
3
A
-1
D
E
4
1
6
3
A
-1
C
A
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K