Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 10
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 HEILBRIGÐISMÁL Sjúkrahússýking af völdum Vancomycin-ónæmra enterókokka er komin upp á Land- spítalanum. Tveimur skurðdeild- um af þremur hefur verið lokað, samtals 36 rúmum, og öllum aðgerðum nema bráðaaðgerðum frestað. Mjög ónæmisbældir ein- staklingar, til að mynda á gjör- gæslu og krabbameinsdeildum spítalans, eru sérstaklega við- kvæmir gagnvart sýkingunni. Átta sjúklingar eru enn inni á annarri sýktu deildinni og kom- ast ekki af henni fyrr en meðferð þeirra er lokið. Lilja Stefánsdótt- ir, framkvæmdastjóri skurðlækn- ingasviðs, segir erfiðleika vegna sjúkrahússýkingar bætast við álag vegna yfirstandandi verk- falls. „Deildirnar verða hreinsað- ar og sýni ræktuð. Við vitum ekki hver staðan er fyrr en um og upp úr helgi. Sýkingin bætist ofan á verk- fallsaðgerðir, þetta er vissulega erfitt ástand. Við höfum verið svo lánsöm að við höfum fengið for- gang á þessa vinnu í samvinnu við Félag lífeindafræðinga sem eru í verkfalli, þetta er gríðarlegt álag á þá, jafnt og sjúkraliða, hjúkrunar- fræðinga, ræstingarfólk, svo ekki sé talað um sjúklinga.“ Markmiðið er að uppræta sýk- ingar af þessu tagi. „Hér á Íslandi höfum við ákveðið að uppræta sýkingar sem þessar úr umhverfi sjúklinga. Það eru ekki öll lönd sem hafa ákveðið að gera það. Þær valda hraustu og heilbrigðu fólki engum vandræðum, en sjúklingum sem eru verulega ónæmisbældir eða langtímaveikir er hætt við að sýkjast af þessum bakteríum.“ Lilja segir allt reynt til að lág- marka truflun af sýkingunni. „Við á skurðlæknasviði höfum lagað okkar flæði að því sem við erum að gera. Við reynum að færa starfsfólk til og höfum sett fleiri rúm á þessa einu deild sem er opin. Við höfum hent öllu aukalegu út af þeirri deild sem er opin og setjum rúm alls staðar þar sem er hægt. Við erum líka búin að opna sex rúm á dagdeild sem sólarhrings- rúm.“ Umfangsmikið hreinsunarstarf fer nú fram á Landspítalanum. Þar er allt þrifið og mörgu þarf að henda, húsgögnum sem ekki er hægt að þrífa, áteknum vörum og skrifborðsvörum svo dæmi séu tekin. „ Hreinsunarferlið er afar víðtækt. Deildirnar eru þrifnar með sérstöku hreinsiefni. Allt er þrifið, þá meina ég bókstaflega allt sem ekki er hent. Það þarf að henda áteknum vörum og öllu sem er ekki gerlegt að þrífa, skrif- borðsmottum, húsgögnum og slitn- um dýnum.“ kristjanabjorg@frettabladid.is Sjúkrahússýking á tveimur deildum Aðeins ein skurðdeild á Landspítalanum er opin. Hinum tveimur hefur verið lokað vegna sjúkrahússýkingar af völdum ónæmra enterókokka. Hreinsun stendur yfir. E nterókokkar eru bakteríur sem eru mikilvægur hluti af eðlilegri örveruf- lóru ristils. Þær geta einnig verið í fæðingarvegi hjá konum og finnast oft í umhverfi. Þessar bakteríur geta valdið sýkingum og sýklalyfið Vancomycin er oft notað til að meðhöndla sýkingar af völdum enterókokka. Í sumum tilfellum hefur bakterían myndað ónæmi gegn Vancomycini og kallast þá Vancomycin-ónæmur enterókokkur eða VÓE (VRE=vancomycin resistant enterococci). Sýkingar af völdum VÓE verða oftast hjá sjúklingum á sjúkra- húsum. Á Íslandi er ekki algengt að fólk fái VÓE en erlendis er það vel þekkt. Skv. sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) var ein af hverjum átta sýkingum á sjúkrahúsum af völdum enterókokka og 30 prósent af þeim voru af völdum VÓE. Hvers konar sýkingar getur VÓE orsakað? VÓE getur lifað í meltingarfærum einstaklinga og í fæðingarvegi kvenna án þess að valda sýkingu/sjúkdómum, þ.e. einstaklingur er sýklaður en ekki sýktur. VÓE getur þó stundum valdið sýkingum í þvagfærum, blóðsýkingum og sárasýkingum. Eru einhverjir í sérstakri áhættu á að fá VÓE? Einstaklingar sem eru í aukinni áhættu á að sýkjast af VÓE: • Mjög ónæmisbældir einstaklingar (gjörgæsludeildir, krabbameinsdeildir) • Einstaklingar sem hafa verið meðhöndlaðir með Vancomycini eða öðrum sýklalyfjum um lengri tíma • Einstaklingar sem eru sýklaðir af VÓE Enterókokkar og sjúkrahússýkingar VILJA ÚTRÝMA SÝKINGU Á Landspítalanum stendur yfir umfangsmikið hreinsunarstarf, en upp er komin sjúkrahússýking á skurðdeild. NORDIC PHOTOS/GETTY SAMFÉLAGSMÁL Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að styrkja Skáksamband Íslands um 25 milljónir króna af ráðstöf- unarfé ríkisstjórnarinnar. Skáksamband Íslands kemur til með að halda Evrópumót lands- liða í skák næstkomandi nóvem- ber og mun styrkféð nýtast til þess. Margir sterkustu skákmenn heims verða líklega meðal þátt- takenda. Þar má nefna Norð- manninn Magnus Carlsen, Armenann Levon Aronian og Ítalann Fabiano Caruana, sem eru líklegir til að tefla fyrir hönd þjóða sinna. „Við gerum ráð fyrir því að það verði um 500 manns sem sækja mótið og hver um sig verði í ellefu nætur,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Ísland. Mót af þessari stærðargráðu kallar á sérstök skákborð og sett svo hægt sé að senda beint út frá mótinu á netinu. „Stærstur hluti þessa styrks fer líklega í að útvega græjurnar sem þarf.“ Að auki er unnið að því hörðum hönd- um að RÚV verði með dagskrá í kringum mótið. „Það er klárt mál að styrkurinn mun koma að góðum notum og við erum þakklát stjórnvöldum fyrir hann. Vonandi verður mótið lyfti- stöng fyrir skákina hér á landi,“ segir Gunnar. - jóe Margir sterkustu skákmenn heims eru væntanlegir á Evrópumót landsliða: Ríkisstjórnin styrkir skákmót Á SKÁKDEGINUM Vonast er til að mótið verði lyftistöng fyrir skákina hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MENNTAMÁL Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og nemendur úr Kletta- skóla tóku fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu við skólann í gær. Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, segir að framkvæmd- irnar muni gjörbylta starfi skólans til batnaðar og skapa nýja mögu- leika. Með nýbyggingu og endurbótum á núverandi húsnæði verða meiriháttar breytingar á aðstöðu, aðgengi og þjónustu við nemendur. Að loknum jarðvegsframkvæmdum í sumar taka byggingafram- kvæmdir við með haustinu. Þeim verður að fullu lokið haustið 2018. Heildarkostnaður framkvæmda er um 2,6 milljarðar króna. - shá Ráðist í 2,6 milljarða króna umbætur á skólanum í gær: Klettaskóli fær betra húsnæði SAMHENT Borgar- stjóri og nemendur Klettaskóla hófu fram- kvæmdir í gær. MYND/RVK MENNTAMÁL Áslaug Hulda Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Hjalla- stefnunnar, var kjörin formaður SSSK, Samtaka sjálfstæðra skóla á aðalfundi sem haldinn var í gær. Áslaug Hulda tekur við emb- ættinu af Sigríði Önnu Guðjóns- dóttur, skólastjóra Skóla Ísaks Jónssonar, sem sinnt hefur for- mennsku og varaformennsku fyrir samtökin síðastliðin sex ár. Varaformaður var kjörin Ólöf K. Sívertsen, fagstjóri Skóla ehf. - aí Samtök sjálfstæðra skóla: Áslaug kjörin formaður SSSK VIÐSKIPTI Charles E. Cobb, fyrr- verandi sendiherra Bandaríkj- anna á Íslandi, getur ekki fjár- fest í sprotafyrirtækinu Carbon Recycling International hér á landi þar sem Seðlabanki Íslands veit- ir honum ekki leyfi til þess vegna gjaldeyrishafta. Sendiherrann fyrrverandi á töluverða fjárhæð fasta í skulda- bréfum í íslenskum krónum. Sem erlendur eigandi krónueigna þarf hann heimild Seðlabankans til að skipta þeim í gjaldeyri eða færa á milli fjárfestingarflokka. Heimildir fréttastofu herma að Cobb hafi ritað Bjarna Benedikts- syni fjármálaráðherra bréf þar sem hann kvartar undan seina- gangi við meðferð umsóknar sinn- ar hjá Seðlabankanum. Honum hafa ekki borist svör í heilt ár. Cobb undrast seinaganginn en hann hefur einungis hug á að styðja við upprennandi sprotafyr- irtæki á Íslandi og taka þátt í upp- byggingu atvinnulífsins. Sindri Sindrason, stjórnarfor- maður Carbon Recycling Inter- national, segist ekki getað tjáð sig um einstök mál en segir það oft gerast að erlendir krónueigendur geti ekki fjárfest á Íslandi þar sem ekki hafi fengist heimild frá Seðla- bankanum. Charles E. Cobb var sendiherra á Íslandi frá árinu 1989 til 1991. - þþ, srs Seðlabanki svarar ekki beiðni krónueiganda: Fær ekki að fjárfesta CARBON RECYCLING Stjórnarformaður fyrirtækisins segir algengt að fólk geti ekki fjárfest. MYND/CRI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 A -5 6 A C 1 6 3 A -5 5 7 0 1 6 3 A -5 4 3 4 1 6 3 A -5 2 F 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.