Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 62
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „Ég var með hóp ekki alls fyrir löngu sem eyddi rúmlega tveim- ur og hálfri milljón, á þremur klukkustundum, á skemmtistað hérna í miðborginni, á sunnudags- kvöldi,“ segir Unnar Helgi Daní- elsson, eigandi Reykjavík Rocks. Gefur fyrirtækið sig meðal annars út fyrir að taka á móti erlendum ferðamönnum sem vilja kynna sér næturlífið á Íslandi gaumgæfilega. „Við tölum stundum um að við sér- hæfum okkur í útlendingapöss- un,“ segir Unnar og bætir við að kúnnahópurinn samanstandi aðal- lega af bandarískum karlmönnum sem vinna í tölvubransanum, svo sem Facebook og Foursquare. Auk þess séu ríkir Rússar að sækja í sig veðrið, en þeir tali lítið og eyði miklu í vín. Unnar segir týpurnar sem nýti sér þjónustuna þó eins ólíkar og þær eru margar: „Við sníðum þetta bara eftir þeim sem koma hverju sinni, en ég tek vissulega eftir mynstri þar sem hingað koma margir ríkustu menn heims eða lið sem hafa náð langt í sínum grein- um.“ Vinsælustu staðirnir Spurður um hvaða staðir séu vin- sælastir meðal ferðamannanna, stendur ekki á svörum og segir hann B5 og Loftið laða að, en séu tónlistarmenn meðal viðskiptavina sé Kaffibarinn iðulega vænlegur til vinnings. „Þeir sem við höfum fengið til okkar fara héðan elskandi íslenska næturlífið, og menninguna hérna almennt. Ísland trónir á toppi eftir sóttustu landa í Evrópu í augum þeirra sem ætla að halda almennileg steggjapartí og ég finn mikið fyrir því í þessu fagi.“ Klikkað lið Unnar segir Reykjavík Rocks leggja allt í sölurnar til að uppfylla kröfur viðskiptavina sinna, sem oftar en ekki séu villtari en gengur og gerist. „Þegar finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen vildi komast sem næst tunglinu valdi hann að ferðast til Íslands,“ segir Unnar og undir- strikar þannig ákveðna stemningu í hópnum. „En ætli það fáránlegasta hafi ekki verið þegar við urðum að sjá til þess að einn kúnni okkar gæti riðið, á nærbuxunum einum fata, um leið og hann lenti á skerinu og beinustu leið ofan í Bláa lónið,“ segir hann og skellir upp úr. Unnar segist lengi hafa verið talsmaður þess að markaðssetja næturlífið á Íslandi markvisst í tengslum við ferðaþjónustuna. „Mér sýnist samt að það hafi nán- ast markaðssett sig sjálft undanfar- in ár, svona miðað við hvaða fólk er að heimsækja landið,“ skýtur hann að í lokin. gudrun@frettabladid.is Útlendingapössun á börum borgarinnar Reykjavík Rocks tekur að sér að sinna forríkum ferðamönnum sem vita ekki aura sinna tal, en þrá að kynnast íslensku næturlífi . Bandaríkjamenn í meirihluta. TÖFF BRANSI Unnar lagar þjónustu sína að þörfum viðskiptavina, með skraut- legum afleiðingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Útvarpskonan Ósk Gunnars- dóttir er nýr kynningarstjóri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice. „Aðstandendur hátíð- arinnar höfðu samband við mig í mars, en mér fannst þetta frá- bært tækifæri til þess að fá að vinna með frábæru fólki og lista- mönnum á hátíðinni. Svo eru það hlutir sem fylgja eins og að fara í þyrluflug með Blaz Roca og drekka kampavín, það gerist ekkert á hverjum degi,“ segir hún hress. Ósk hefur þó alls ekki sagt skilið við útvarpið og sjónvarpið, enda er starf kynn- ingarstjórans aðskilið frá þessu tvennu. „Það er bara eitt orð sem skiptir máli og það er skipulag. Þetta er krefjandi vissulega, en sonur minn Benjamín, kærasti, fjölskylda og vinir eru í fyrsta sæti og þau eru ástæðan fyrir því að ég get gert það sem ég er að gera.“ Secret Solstice fer fram í júní, og lítur allt út fyrir að uppselt verði á hátíðina. „Við komum 10.000 manns á svæðið í ár og núna lítur út fyrir að það verði uppselt. Við erum gríðarlega þakklát fyrir þær móttökur sem við höfum fengið.“ Sjálf segist Ósk spenntust fyrir Wu- Tang Clan. „Ég ólst upp við að allur sjöundi bekkur í skólanum mínum hittist hjá skólabróður okkar í Wu Wear og hlustaði á Wu-Tang Forever. Það var ekk- ert betra.“ - asi Hlakkar til að sjá Wu-Tang Clan Ósk Gunnarsdóttir tók við stöðu kynningarstjóra Secret Solstice fyrir skemmstu. NÆSTUM UPPSELT Ósk segir að eins og staðan sé núna, þá verði uppselt á Secret Solstice. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Það er Proud Mary. Þegar þetta lag fer af stað getur maður einfaldlega ekki annað en hrist á sér rassinn og dottið í stuð.“ Bryndís Ásmundsdóttir leikkona FÖSTUDAGSLAGIÐ „Ég fer í bæinn og sæki mig,“ sagði göngu- garpurinn Reynir Pétur Ingvarsson þegar símtalið barst, um miðbik dagsins í gær. Hafði Reynir þá leitað logandi ljósi að styttu sem mótuð var af honum fyrir um þrjátíu árum í tilefni göngu hans hringinn í kringum landið. Reynir, í samstarfi við Valgeir Fridolf Backman, félagsmálafulltrúa á Sólheimum, setti inn fésbókarfærslu þar sem upplýsinga um styttuna var óskað. Slóð hennar virtist með öllu hulin en vinir Reynis tóku við sér og deildu færslunni af öllum mætti. „Tæpum tíu klukkustundum síðar er hringt í okkur utan af Grænlandshafi þar sem núverandi eig- andi styttunnar lét okkur vita hvar hún væri niðurkomin,“ segir Valgeir. Var það Jónas Hallur Finnbogason togarasjómaður sem var á línunni með þessar gleðifréttir og sagðist glaður vilja senda Reyni Pétur í sumardvöl á Sólheima til hins raunverulega Reynis Péturs. „Við munum því gera okkur bæjarferð í næstu viku og sækja styttuna, sem er staðsett í Borgartúninu á skrifstofu Jónasar,“ segir Val- geir og bætir við: „Reynir hafði strax orð á að hann langaði mikið til að gefa Jónasi kaffi til að mýkja hann svolítið upp.“ Styttan, sem er um metri á hæð, var smíðuð af listakonunni Ríkeyju á sínum tíma. Lengi vel var hún í glugga Ríkeyjar á Hverf- isgötunni. Mun hún verða til sýnis á Sól- heimum í sumar. - ga Leitinni að Reyni Pétri lauk hjá togara- sjómanni við Grænlandsstrendur í gærdag Mikil gleði greip um sig á Sólheimum þegar í ljós kom að styttan af Reyni Pétri hefði fundist heil á húfi . MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is DJ Muscle Boy Friðrik Dór María Ólafs Stop Wait Go Fleiri gestir og Euro-syrpa KVEÐJUPARTÝ Á SPOT léttöl FÖSTUDAGINN 1. MAÍ 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 9 -D B 3 C 1 6 3 9 -D A 0 0 1 6 3 9 -D 8 C 4 1 6 3 9 -D 7 8 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.