Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 4
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Flestir sem ég tala við eru inni á þessari línu, það þorir bara enginn að segja frá því. Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda Halldór, þarf plan B fyrir A-hlutann? „Það er plan D.“ Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn, gagnrýnir milljarða- halla á A-hluta borgarsjóðs en fagnar árangri af Planinu svokallaða fyrir Orkuveituna sem tilheyrir B-hluta borgarinnar. FJÁRMÁL „Efnið var það að lífeyris- sjóðirnir skipti sér ekki af aðal- fundum í félögum sem þeir fjár- festa í,“ segir Kristján Loftsson, einn eigenda HB Granda, um til- lögu sem hann lagði fram á árs- fundi Gildis lífeyrissjóðs 15. apríl. Tillaga Kristjáns var of seint fram komin til að teljast tæk á fundin- um, en hann hyggst vinna þess- ari skoðun fylgi innan Samtaka atvinnulífsins (SA) og vill að þau leggi fram álíka tillögur í fleiri sjóðum. „Aðalmálið er það að lífeyris- sjóðir eiga að fjárfesta. Þeir eiga að hugsa um hag fjárfesta og það er ekki þeirra hlutverk að skipta sér af hlutafélögum sem þeir fjár- festa í. Ef þeir eru óánægðir með félögin eiga þeir bara að selja hlut sinn í þeim.“ Sigurður Bessason, formaður Eflingar, er algjörlega andsnúinn þessari nálgun, en verkalýðshreyf- ingin á sína fulltrúa í stjórnum líf- eyrissjóða. „Ég benti á það að ég tel þetta vera algjörlega ranga nálgun og það hefur sýnt sig að það er mjög eðlilegt að lífeyrissjóðirnir reyni að gæta sinna mála. Þeir eiga nátt- úrulega að gera það á öllum víg- stöðvum,“ segir Sigurður. Hann segir að þvert á móti eigi lífeyrissjóðirnir að beita sér fyrir góðum málum innan félaganna sem þeir eiga hlut í. „Ég tel að það geri þeir sem fulltrúar þess fjár sem er inni í lífeyrissjóðunum og stjórnir líf- eyrissjóðanna eigi ævinlega að hafa skoðun á því sem gerist inni í fyrir tækjum, bæði hvað varðar til- lögur sem liggja fyrir og síðan að koma með góðar tillögur inn á árs- fundi sem geta verið gagnlegar.“ Kristján segir hins vegar að líf- eyrissjóðirnir eigi ekki að vera með puttana í rekstri fyrirtækja. „Þessir gæjar ætla að gína yfir Vill lífeyrissjóði áhrifalausa Kristján Loftsson vill að lífeyrissjóðir skipti sér ekkert af aðalfundum félaga sem þeir eiga í. Séu þeir ósáttir geti þeir einfaldlega selt sinn hlut og farið. Sjóðirnir verða að gæta sinna mála, segir formaður Eflingar. LÍFEYRISÞEGAR Nái tillaga Kristjáns hljómgrunni verða fulltrúar lífeyrisþega áhrifalausir í stjórnum þeirra fyrirtækja sem sjóð- irnir eiga í. Kristján vill að sjóðirnir hugsi fyrst og fremst um hag fjárfesta og arð af fjárfestingum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir samtökin fyrst og fremst vilja beina því til fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða að þeir marki sér skýra stefnu um það hvernig þeir beiti sér og það sé með skýrum og fyrirsjáanlegum hætti hvernig þeir séu virkir sem hluthafar. Þegar lífeyrissjóðirnir eigi upp í 40 til 50 prósenta hlut í skráðum fyrirtækjum sé mikilvægt að þeir hafi skoðun. „Ég held að það væri ekki sérlega heppilegt að sjóðirnir væru algjörlega skoðanalausir þegar eignarhlutur þeirra er orðinn jafn mikill og raun ber vitni. Það gæti þýtt að í einhverjum tilvikum yrðu smáir hluthafar of áhrifamiklir í stefnumótun fyrirtækja. Einn af þeim lær- dómum sem sjóðirnir drógu af hruninu er að þeir þyrftu að fylgjast vel með og beita sér með virkum hætti í hluthafahópi fyrirtækjanna, en gæti þess þó að vera fyrirsjáanlegir og faglegir í aðkomu sinni.“ Skoðanaleysi ekki heppilegt ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON ATVINNA Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, hefur óskað eftir því við stjórn sjóðs- ins að láta af störfum og hefur stjórnin fallist á beiðni hans. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Stjórn Íbúða- lánasjóðs mun á næstunni aug- lýsa starf for- stjóra laust til umsóknar og mun hann fá það hlutverk að leiða breytingar sem kunna að verða á starfsemi sjóðsins við breytta skipan hús- næðismála. Þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs forstjóra mun stað- gengill forstjóra, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gegna störfum forstjóra og mun fráfarandi for- stjóri verða henni til ráðgjafar. - jhh Staðgengillinn tekur við: Forstjóri ÍLS hættir störfum DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir karlmanni sem fundinn var sekur í Héraðsdómi Norðurlands eystra um líkams- árásir og þjófnað á hendur fyrr- verandi sambýliskonu sinni í októ- ber í fyrra. Var hann dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða konunni 800 þúsund krónur. Maðurinn var ákærður fyrir fimm líkamsárásir gegn kon- unni, stórfelldar ærumeiðingar í hennar garð og þjófnað með því að hafa í tvígang millifært í heim- ildarleysi peninga á sinn reikning í gegnum heimabanka hennar. Dómurinn taldi sannað að mað- urinn hefði gerst sekur um lík- amsárásirnar gegn konunni, sem hann hafði verið sýknaður af í héraðsdómi. Var hann meðal ann- ars dæmdur fyrir að hafa slegið konuna, tekið hana hálstaki og sett hné í kvið hennar þegar hún var gengin rúma 21 viku með barn sitt og ákærða. - sks, vh Hæstiréttur þyngdi dóm yfir manni sem var ákærður fyrir fimm líkamsárásir: Veittist ítrekað að óléttri konu ÞYNGDUR Dómur yfir manninum var þyngdur í Hæstarétti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NÍGERÍA Hermálayfirvöld í Nígeríu segjast hafa frelsað fleiri fanga úr herbúðum Boko Haram síðastliðinn miðvikudag. Talsmaður hersins segir að níu herbúðir samtakanna hafi verið eyðilagðar í áhlaupi hersins og 160 manns voru frelsaðir úr haldi á miðvikudaginn. Úr hópi borgara lét ein kona lífið og átta særðust í aðgerðunum. Einn stjórnarhermað- ur lést í átökunum og nokkrir úr liði Boko Haram. Fyrr í vikunni frelsaði herinn 300 konur og börn úr haldi samtakanna en engin kvennanna var úr hópi skólastúlknanna sem samtökin námu á brott í apríl í fyrra. Alls hafa 13 herbúðir verið eyðilagðar vikunni. Þúsundir manna hafa látið lífið eftir að hersveitir Boko Haram hófu skærur sínar í norðausturhluta Nígeríu árið 2009. Markmið hreyfingarinnar er að stofna íslamskt ríki í Nígeríu. Á undanförnum mán- uðum hefur nígeríski herinn ásamt herafla nágrannaþjóða tekið aftur mikið landflæmi sem samtökin höfðu áður sölsað undir sig. - srs Nígeríski herinn hefur eyðilagt þrettán herbúðir samtakanna Boko Haram: Frelsuðu fleiri fanga úr haldi FAGNAÐ Stjórnarhermenn fagna því að hafa eyðilagt herbúðir fyrr í mánuðinum. AFP/NICHOLE SOBECKI STJÓRNMÁL Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis um fjarskiptaupplýsingar alþing- ismanna. Þar spyr hún hvernig varðveislu gagna sem snúa að símreikningum alþingismanna sé háttað, hvaða starfsmenn Alþingis hafi aðgang að símreikningum eða fjarskipta- upplýsingum alþingismanna, hvort símreikningar innihaldi upplýs- ingar um hvaða númer hafi verið hringt í, hve lengi símtöl standi og hvaða númer hafi verið send sms- skilaboð í. Einnig spyr hún hve lengi þessi gögn séu varðveitt hjá þinginu og hvernig þeim sé eytt. - vh Fyrirspurn um fjarskiptagögn: Spyr um síma- upplýsingar FRAMKVÆMDIR Ásgeir Kolbeins- son verður í forsvari fyrir nýja eigendur sem gert hafa leigusamn- ing um rekstur Nasa við Austur- völl. Skipulagsbreytingar á húsinu verða kynntar á blaðamannafundi í lok maí. Þar segir að hugsanlegt sé að einhverjir viðburðir verði á Nasa í maí, áður en framkvæmdir á húsinu hefjast. Breytingar á húsinu verði marg- víslegar og notkunarmöguleikar þess hámarkaðir. Nasa var lokað í júní 2012. - sks Húsið fer í notkun aftur: Nasa opnað á ný við Austurvöll SIGURÐUR ERLINGSSON öllu. Við kynntumst því á fundum í gamla daga þegar Lífeyrissjóð- ur verslunarmanna sagðist styðja mann sem er í púra samkeppni í útflutningi á sjávarafurðum við HB Granda.“ Hann segist munu beita sér fyrir því að SA flytji álíka tillögur í fleiri lífeyrissjóðum og mun end- urflytja tillöguna að ári hjá Gildi ef með þarf. En hefur hann stuðn- ing innan SA? „Flestir sem ég tala við eru inni á þessari línu, það þorir bara eng- inn að segja frá því.“ kolbeinn@frettabladid.is SPURNING DAGSINS Nú stærriog safameiri *Þú velur Coca-Cola, Coca-Cola light eða Coca-Cola zero 1499 tvennankr. Heill grillaður kjúklingur og 2 lítrar af Coca-Cola* – fyrst og fre mst ódýr! 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 9 -E A 0 C 1 6 3 9 -E 8 D 0 1 6 3 9 -E 7 9 4 1 6 3 9 -E 6 5 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.