Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
VIÐTAL
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ólöf Nordal tók við lyklavöldum í
innanríkisráðuneytinu í gær. Hún
var kjörin varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins á aukalandsfundi hinn 26.
júní 2010. Ólöf var alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi 2007-2009 og þingmað-
ur Reykjavíkurkjördæmis suður
2009-2013, þegar hún ákvað að
hætta í pólitík. Nú er hún snúin aft-
ur, orðin ráðherra án þess að vera
þingmaður og nýbúin að sigrast á ill-
vígum veikindum. Morgunblaðið
ræddi í gær við Ólöfu í innanrík-
isráðuneytinu, rétt eftir að hún tók
við lyklunum úr hendi Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur.
Flugvöllurinn verði í Reykjavík
– Ólöf, þú ert að taka við stóru og
þýðingarmiklu ráðuneyti. Forveri
þinn í innanríkisráðuneytinu, Hanna
Birna Kristjánsdóttir, vildi Reykja-
víkurflugvöll burt. Hverjar verða
áherslur þínar í sambandi við flug-
völlinn?
„Ég er fylgismaður þess að flug-
völlurinn sé í Reykjavík og hef verið
það alla tíð. Ég held að það þurfi
ekki að hafa fleiri orð um það. “
– Áttu von á því að þú munir verða
með breyttar áherslur í sambandi
við málefni hælisleitenda? Hvaða
breytingar sérðu fyrir þér þar?
„Nú er þetta þannig að ég tók
ákvörðun um það að setjast í emb-
ætti innanríkisráðherra í gærkveldi.
Það var í gærkveldi sem formaður
Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Bene-
diktsson, spurði mig endanlega að
því hvort ég væri reiðubúin að taka
þetta verkefni að mér. Ég verð að
segja það alveg eins og er að ég tel
það ekki skynsamlegt af mér að út-
tala mig mikið um þau málefni sem
falla undir þetta stóra ráðuneyti í
einhverjum smáatriðum. Ég vil
byrja á því að setja mig inn í helstu
málefni sem eru á könnu ráðuneyt-
isins og kynnast fólkinu í ráðuneyt-
inu. Þegar ég er búin að því verð ég
reiðubúin til þess að fjalla um ein-
staka þætti og málaflokka.“
Millidómsstig gagnlegt
– Eins og þú veist hefur talsverð
umræða verið hér um nauðsyn þess
að hér verði komið á millidómsstigi.
Hvaða skoðun hefur þú á þeim hug-
myndum?
„Það er reyndar nokkuð sem mik-
ið hefur verið rætt á vettvangi lög-
fræðinnar áratugum saman. Það mál
er komið á nokkurn rekspöl hér í
ráðuneytinu og ég er mjög áhuga-
söm að sjá hvernig því vindur fram
og á hvaða stigi það er núna.
Ég held að millidómsstig geti á
margan hátt verið mjög gagnlegt og
geti aukið skilvirkni og afköst dóm-
stólanna, þannig að þetta sérstaka
málefni finnst mér afar áhugavert.“
– Mikil sameining hefur orðið hjá
lögregluembættum á Íslandi og lög-
reglustjóraembættum hefur við
sameininguna stórfækkað. Sérðu
fyrir þér frekari sameiningar og
hagræðingu, eða er slíku starfi lok-
ið?
„Mér sýnist að við séum komin á
einhvern endapunkt í því samein-
ingar- og hagræðingarstarfi, þannig
að það þurfi ekki að huga að slíkum
breytingum, a.m.k. ekki í bili. Sú
sameining lögreglustjóra- og sýslu-
mannaembætta hefur líka átt sér
langan aðdraganda og mér sýnist að
undirbúningur þeirra breytinga hafi
verið með svo ágætum hætti, að ró
og friður hafi skapast um þær sam-
einingar, sem skiptir gríðarlega
miklu máli fyrir embætti lög-
reglustjóra og sýslumanna í land-
inu.“
Verður að tryggja öryggið
– Þú hefur væntanlega fylgst með
umræðunni um vopnakaup/
vopnagjöf lögreglunnar og Land-
helgisgæslunnar. Hverjar eru þínar
áherslur hvað varðar vopnavæðingu
lögreglu og Landhelgisgæslu?
„Ég hef nú bara verið að lesa
fréttir af þessum málum, rétt eins og
aðrir. Ég veit að það er greinargerð í
smíðum hjá Ríkislögreglustjóra um
vopnin og vopnaþörfina og tel að það
sé best fyrir mig að lesa hana, þegar
hún kemur fram og kynna mér það
sem þar kemur fram. En við verðum
auðvitað alltaf að hafa ákveðið ör-
yggisstig í landinu og það hlýtur allt-
af að verða útgangspunkturinn, þeg-
ar ákvörðun er tekin. Að öðru leyti
tel ég mig ekki hafa forsendur til að
úttala mig meira um þessi mál á
þessu stigi en ég á von á að það skýr-
ist frekar á næstunni, þegar ég fer
að tala við þá sem mest vitið hafa í
þessum efnum.“
Mögnuð lífsreynsla
– Þú hefur nýlokið lyfjameðferð
vegna illkynja krabbameinsæxlis
sem þú greindist með í sumar. Hafði
sú barátta áhrif á að þú ákvaðst að
segja já við Bjarna Benediktsson,
þegar hann óskaði eftir því að þú
tækir að þér innanríkisráðuneytið?
„Já, veistu það, Agnes. Þessi
reynsla er nú eiginlega ein sú magn-
aðasta sem ég hef gengið í gegnum í
lífinu og hefur haft og mun eflaust
hafa áhrif á mig. Ég hef reyndar
alltaf haft mikinn áhuga á því að tak-
ast á við nýjar áskoranir og það hef-
ur engin grundvallarbreyting orðið á
því, en það að hafa farið í gegnum
lyfjameðferðina og að það skuli hafa
gengið svona vel, það dró ekki úr
mér, síður en svo. Hitt er svo annað
mál að ég hefði aldrei látið mér detta
í hug að segja já nema vegna þess að
ég treysti mér til þess að taka þetta
verkefni að mér. Til þess er þetta
verkefni allt of mikilvægt fyrir land
og þjóð. Þetta hugleiddi ég frá öllum
hliðum á þeim stutta tíma sem ég
hafði til umhugsunar.“
Búin að púsla í mörg ár
– Hafðir þú engar áhyggjur af því
að þú hefðir ekki nægt þrek í starf-
ið?
„Ég hefði, eins og ég sagði, aldrei
fallist á að gera þetta, ef ég héldi
ekki að ég réði við verkefnið.“
– Eiginmaður þinn, Tómas Már
Sigurðsson, einn af æðstu stjórn-
endum Alcoa, er væntanlega á þön-
um um allan heim, starfs síns vegna.
Þið eigið fjögur börn, fædd á ár-
unum 1991 til 2004. Hvernig í ósköp-
unum ætlið þið að púsla þessu öllu
saman, eftir að þú ert orðin innan-
ríkisráðherra?
„Við erum búin að vera að púsla í
mörg ár og höfum mikla reynslu á
því sviði. Það var þannig þegar Tóm-
as tók við starfinu í Genf í Sviss
2013, að við ákváðum að hætta að
púsla í bili og að ég fylgdi honum til
Sviss, því ég taldi að það væri skyn-
samlegt að gera það á þeim tíma.
Síðan er það nú þannig, Agnes, að í
millitíðinni var hann fluttur upp í
fyrirtækinu í hærri stöðu og þurfti
vegna nýja starfsins að flytja til New
York. Ég fór hingað heim með börn-
in okkar. Við Tómas mátum það svo,
eftir að hafa rætt málin fram og til
baka, að skynsamlegast væri að ég
og börnin værum hér. Starf Tóm-
asar er með þeim hætti að hann er
meira og minna fjarverandi og mér
leist alls ekki á það að vera meira og
minna ein í New York með börnin og
hann á eilífum ferðalögum um heim-
inn. Ég var farin að hugsa þetta
mjög alvarlega, áður en ég greindist
með krabbameinið í sumar og mér
fannst miðað við alla mína starfs-
orku og áhuga minn á því að leggja
gott af mörkum, að hálfgerð einvera
í New York, væri ekki það sem heill-
aði mig. Við púsluðum því aftur sam-
an lífi okkar á þann veg að ég er hér
ein heima með börnin og hann kem-
ur þegar hann getur og sinnir fjöl-
skyldunni. Það gerir hann mjög vel,
því hann er alveg einstakur fjöl-
skyldumaður.“
– Með þessari ákvörðun þinni,
snúin aftur í pólitíkina, eftir eins og
hálfs árs hlé. Er ekki borðleggjandi
að þú skellir þér aftur í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að
tveimur og hálfu ári liðnu?
„Það er ekkert borðleggjandi í
þeim efnum. Það sem ég ákvað núna
var að taka við þessu viðamikla emb-
ætti innanríkisráðherra og ég get
ekki ímyndað mér að ég hafi tíma til
að hugsa um nokkuð annað. Allt
annað er seinni tíma músík, sem ég
hugsa ekkert um núna.“
Ólöf Nordal, nýr innanríkisráðherra,
vill alltaf takast á við nýjar áskoranir
Hefur alltaf verið fylgismaður þess að Reykjavíkurflugvöllur sé í Reykjavík og er það enn
Morgunblaðið/Golli
Innanríkisráðherra Ólöf segir það hafa verið magnaða lífsreynslu að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð.
Ólöf Nordal fæddist 3. desember
1966. Hún var kjörin varaformaður
Sjálfstæðisflokksins á aukalands-
fundi flokksins í júní 2010. Hún
var kjörin á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Norðaust-
urkjördæmi í alþingiskosningunum
2007 en gaf kost á sér í Reykjavík
í kosningunum 2009. Hún sat á Al-
þingi sem leiðtogi flokksins í
Reykjavík suður frá 2009 til 2013,
en þá hætti hún í stjórnmálum og
fluttist með manni sínum og börn-
um til Genfar í Sviss.
Eiginmaður Ólafar er Tómas Már
Sigurðsson, einn æðsti stjórnandi
Alcoa með aðsetur í New York, og
eiga þau fjögur börn, fædd á árun-
um 1991 til 2004.
Ólöf varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1986, hún
lauk lögfræðiprófi við Háskóla Ís-
lands 1994 og fékk málflutnings-
réttindi fyrir héraðsdómi árið
1999. Árið 2002 útskrifaðist hún
með MBA-próf frá Háskólanum í
Reykjavík.
Ólöf starfaði í lögfræðideild
Landsbanka Íslands, hún var deild-
arstjóri í samgönguráðuneytinu og
lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi
Íslands.
Ólöf var stundakennari í lög-
fræði við Háskólann á Bifröst og
vann að stofnun lagadeildar við
skólann. Hún var deildarstjóri
lagadeildar við Háskólann á Bif-
röst og yfirmaður heildsölu-
viðskipta hjá Landsvirkjun. Ólöf
var framkvæmdastjóri sölusviðs
hjá RARIK og framkvæmdastjóri
Orkusölunnar 2005-2006.
Ólöf hefur verið formaður
bankaráðs Seðlabankans und-
anfarið ár, en hún tók sér frí frá
því starfi í sumar, eftir að hún
greindist með illkynja krabbamein-
sæxli. Hún hefur nú lokið lyfja-
meðferð sem að hennar sögn gekk
mjög vel og hefur hún nú verið út-
skrifuð úr meðferðinni.
Með víðtæka og fjölbreytta reynslu í farteskinu
ÓLÖF NORDAL INNANRÍKISRÁÐHERRA
Morgunblaðið/Golli
Móttökur Ragnhildur Hjaltadóttir ráðu-
neytisstjóri tók hlýlega á móti Ólöfu.