Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Andríki vék á dögunum að fjár-lagaumræðu og forgangs-
röðun og benti á að ríkið hefði gríð-
arlegar tekjur enda borguðu
landsmenn háa skatta: „Tekjuleysi
ríkisins hindrar það ekki í að sinna
einhverjum mjög mikilvægum verk-
efnum vel. Það væri til dæmis hægt
að leggja gríðarlegt fé til viðbótar í
heilbrigðismál, án þess að auka
skatta eða taka ný lán.
En til þess þyrfti raunverulegan
niðurskurð annars staðar.“
Svo sagði Andriki: „Það er afarmikilvægt að menn ræði raun-
verulega forgangsröðun hjá ríkinu.
Eitt forgangsmálið gæti til dæmis
verið bætt heilbrigðisþjónusta, með
nýjum tækjum, bættum húsakosti
og betur launuðu starfsfólki. En ef
menn vilja slíkt í alvöru, þá eiga
þeir einfaldlega að tala fyrir því að
aðrir málaflokkar, sem ekki eiga að
vera í forgangi, hverfi af ríkisspen-
anum.
Ríkið hefur þanist út með ótrú-legum hraða. Nýir og nýir sér-
fræðingar hafa orðið til, sérfróðir í
nýjum og nýjum vandamálum. Sam-
fellt finnast ný verkefni sem verður
að styrkja af opinberu fé, og allir
eiga víst að hagnast á því í framtíð-
inni. Stjórnarþingmenn vilja meira
að segja auka framlög til Rík-
isútvarpsins, en svo virðist sem
starfsmenn þess geti ekki haldið
rekstrinum úti nema fá um fjóra
milljarða á ári frá skattgreiðendum,
auk verulegra auglýsingatekna.“
Það er rétt hjá Andríki að til eru„nægir peningar í ríkissjóði til
að sinna allnokkrum málaflokkum
mjög vel. En það eru ekki og verða
ekki til peningar til að sinna ótal-
mörgum þrýstihópum á sama tíma.“
Digur sjóður, en
ekki ótæmandi
STAKSTEINAR
Sigtryggur Sigurðs-
son málarameistari
lést á Landspít-
alanum síðastliðinn
þriðjudag, 68 ára að
aldri. Hann var um
langt árabil sigur-
sælasti glímukappi
landsins og var meðal
annars þrisvar glímu-
kóngur Íslands.
Sigtryggur var
fæddur 1. mars 1946
og ólst upp í Reykja-
vík, sonur hjónanna
Sigurðar Sigtryggs-
sonar bifreiðarstjóra
og Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju.
Sigtryggur lærði málaraiðn og
starfaði sem málarameistari með
eigið fyrirtæki.
Hann hóf ungur að iðka íslenska
glímu. Gekk fyrst í Ungmenna-
félag Reykjavíkur og síðan í KR
og keppti alla tíð undir merkjum
KR. Sigtryggur var um langt ára-
bil sigursælasti glímumaður lands-
ins. Hann vann meðal
annars Grettisbeltið
og var glímukóngur
Íslands 1968, 1970 og
1971 og sigraði sjö
sinnum í Skjald-
arglímu Ármanns. Þá
tók hann þátt í fjölda
glímumóta og glímu-
sýningum, hérlendis
og erlendis.
Hann starfaði mik-
ið að félagsmálum
glímunnar, var í
stjórn Glímusam-
bands Íslands í rúm
20 ár og formaður
1979-1985. Sigtryggur var gerður
að heiðursfélaga Glímusambands
Íslands á 40 ára afmæli sambands-
ins 2005.
Sigtryggur var ástríðufullur
bridsspilari og var um tíma í
landsliði Íslands og tefldi einnig
skák við góða félaga.
Sigtryggur var ókvæntur og
barnlaus.
Andlát
Sigtryggur Sigurðsson
Veður víða um heim 4.12., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -6 skafrenningur
Þórshöfn 6 súld
Ósló 8 skýjað
Kaupmannahöfn 3 alskýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 0 léttskýjað
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 1 þoka
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 alskýjað
London 3 súld
París 3 alskýjað
Amsterdam 1 þoka
Hamborg 1 skúrir
Berlín 3 heiðskírt
Vín 6 alskýjað
Moskva -3 þoka
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 10 skýjað
Barcelona 10 súld
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -12 léttskýjað
Montreal -6 léttskýjað
New York 5 heiðskírt
Chicago 1 léttskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:57 15:41
ÍSAFJÖRÐUR 11:35 15:13
SIGLUFJÖRÐUR 11:19 14:54
DJÚPIVOGUR 10:34 15:03
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Hnepptar
peysur
Str. S-XXL | Kr. 5.990
Litir: rautt, svart, drapp
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
sunnudaginn 7. desember kl. 16
og mánudaginn 8. desember kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Louisa
M
atthíasdóttir
Louisa
M
atthíasdóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka
gömlu meistaranna.
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Forsýning alla helgina í Gallerí Fold
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–15,
mánudag kl. 10–17 (einungis þau verk sem boðin eru upp á mánudag)
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Hæstiréttur hefur dæmt Guðmund
Tryggva Ásbergsson í árs fangelsi,
þar af níu mánuði skilorðsbundið,
fyrir tilraun til fjárkúgunar. Guð-
mundur reyndi að hafa hundrað
milljónir króna af hjónum á Ísafirði
á árinu 2012. Honum var gert að
greiða þeim 400 þúsund krónur í
miskabætur og 862.077 krónur í
málskostnað.
Ríkissaksóknari ákærði Guð-
mund hinn 3. október 2013 fyrir til-
raun til fjárkúgunar, með því að
hafa í október og nóvember á árinu
2012, bréflega og með símasam-
skiptum reynt að hafa fé af hjónum,
samtals 100 milljónir, með hótunum
um að beita manninn eða nána
vandamenn hans líkamlegu ofbeldi.
Í héraðsdómi var Guðmundur
dæmdur til að greiða 800.000 krónur
í miskabætur til hjónanna, en sú
upphæð var lækkuð um helming í
Hæstarétti, því engin gögn höfðu
verið lögð fram til þess að sýna fram
á miska annars hjónanna.
Mjög alvarlegar hótanir
Guðmundur, sem er fæddur árið
1978, hefur samkvæmt sakavottorði
ekki sætt refsingu áður. Við ákvörð-
un refsingar var litið til þess að Guð-
mundur setti fram mjög alvarlegar
hótanir. Hann bæði hótaði því að
hann mundi notfæra sér fjölskyldu
mannsins til að knýja fram greiðslu
og hótaði honum með þeim orðum að
ef hann talaði við lögreglu eða aðra
sem mundu leita þeirra gæti hann
lofað því að hann mundi sjá eftir því
alla tíð eða ekki vera til staðar til að
sjá eftir því.
Reyndi að kúga út
100 milljónir króna
Dæmdur til árs fangelsisvistar