Morgunblaðið - 05.12.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hormónaraskandi efni, sem m.a.
finnast í ýmsum heimilisvörum, auka
mjög á kostnað Evrópuríkja vegna
heilbrigðismála. Háar fjárhæðir
myndu sparast yrði dregið úr notkun
efnanna, samkvæmt nýrri skýrslu
frá Norrænu ráðherranefndinni.
Þar kemur fram að árlegur kostn-
aður Evrópuríkja vegna minni
starfsgetu og aukins kostnaðar við
heilbrigðisþjónustu vegna kvilla sem
efnin valda nemi að minnsta kosti 4,5
milljörðum danskra króna (94 millj-
örðum íslenskra króna), samkvæmt
frétt Umhverfisstofnunar.
Kostnaðurinn vegna áhrifa
hormónatruflandi efna er líklega
mun meiri því í skýrslunni er ein-
göngu litið til áhrifa efnanna á
krabbamein í eistum, hve mjög þau
draga úr sæðisgæðum hjá körlum og
tvo fæðingargalla í kynfærum svein-
barna. Annar þeirra lýsir sér þannig
að þvagrásaropið er ekki á eðlilegum
stað og hinn í því að annað eða bæði
eistu hafi ekki gengið niður þegar
sveinbarnið fæddist.
Umhverfisráðherrar Norðurlanda
hafa krafist viðbragða framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins vegna
málsins.
Alvarleg áhrif efnanna
Efnin geta haft margvísleg áhrif á
hormónakerfi líkamans. Þau eru allt
frá fæðingargöllum og efnaskipta-
vandamálum til krabbameina. Efnin
hafa oftast áhrif á þroska fóstra í
móðurkviði, allt frá getnaði til fæð-
ingar. Þau hafa áhrif á kynþroska og
geta kallað fram kvenleg einkenni
hjá sveinbörnum og einkenni hjá
stúlkubörnum sem alla jafna ein-
kenna karlkynið. Efnin eru sérstak-
lega hættuleg fyrir verðandi mæður
því tiltekinn styrkur efnanna hefur
ekki sömu áhrif á fóstur og mæður.
Grunur leikur á að hormónatrufl-
andi efni hafi enn víðtækari neikvæð
áhrif á mannslíkamann og villt dýr.
Talið er að rekja megi til þeirra
minni frjósemi, aukna tíðni krabba-
meina sem rekja má til hormóna-
starfsemi, hegðunarbreytingar,
efnaskiptakvilla sem valda offitu og
sykursýki og bælingu ónæmiskerf-
isins. Ekki einungis veldur þetta
vanlíðan fólks og dýra sem fyrir því
verða heldur miklum kostnaði við
meðhöndlun þessara sjúkdóma. Sá
kostnaður lendir að stórum hluta á
samfélaginu.
Í niðurlagsorðum skýrslunnar
kemur fram að séu öll áhrif horm-
ónaraskandi efna tekin með í reikn-
inginn, þar með talin áhrif á dýralíf
og aukna tíðni hormónatengdra
krabbameina á borð við mein í
blöðruhálskirtli og brjóstum, sé sam-
félagslegi kostnaðurinn sem þessi
efni valdi miklu hærri.
Í skýrslunni segir m.a. að horm-
ónatruflandi efni sé að finna í mjög
lágum styrk í algengum heimilisvör-
um. Þau eru t.d. í nánast öllum plast-
vörum. Þeirra á meðal eru efni sem
eru skammstöfuð sem PCB, BPA,
PBDE og fjöldi svonefndra falata.
Þau er líka að finna í vörum sem eru
auglýstar sem BPA-lausar.
Efni í plasti geta
raskað hormónum
Ný norræn skýrsla um gríðarmikinn kostnað sem hlýst
af áhrifum hormónaraskandi efna á heilbrigði fólks
AFP
Vandamál Plastsorp skapar vanda í náttúrunni og nú er ljóst að efni í sumu
plasti geta valdið ýmsum heilsufarsvanda hjá mönnum og dýrum.
Hormónaraskandi efni
» Skýrslan Kostnaður að-
gerðaleysis (The Cost of Inac-
tion) inniheldur félagshag-
fræðilega greiningu á kostnaði
sem hlýst af áhrifum horm-
ónaraskandi efna á heilbrigði
karla.
» Efnin heita t.d. polychlor-
inated biphenyls (PCB),
bisfenol A (BPA, polybrom-
inated diphenyl ethers (PBDE)
auk fjölda falata. Þau finnast í
vörum sem sagðar eru án BPA.
„Jól á götunni, þannig byrjaði Götu-
smiðjan á sínum tíma. Við byggjum
því á fortíð en horfum til framtíðar,“
segir Mummi, forstöðumaður Götu-
smiðjunnar sem verður opnuð í dag
með landsátakinu Jól á götunni. Um
er að ræða söfnun til að koma upp
þjónustumiðstöð, neyðarskýli og
rekstri útideildar sem hefur það að
markmiði að hjálpa ungmennum frá
fíkniefna- og afbrotatengdum lífsstíl.
„Allt þetta ferli er að byrja og
grunnurinn að Götusmiðjunni er að
fara af stað. Það er fullt af fagfólki í
kringum okkur og við bjóðum fjöl-
skyldum og unglingum stuðning.
Það er styttra ferli til okkar í hjálp-
ina. Það er ekki eins mikil skrif-
finnska á bak við okkur. Við opnum
líka gjaldfrjálst neyðarnúmer í dag,
800-1133, sem öll símafélögin hýsa.
Þessi sími verður mannaður af fag-
fólki allan sólarhringinn allt árið um
kring. Þjónustan er hugsuð fyrir
ungmenni í vanda. Mummi segist
hrærður yfir viðtökunum sem hann
hefur fengið að undanförnu. „Þau
hafa verið ótrúleg. Stundum hefur
maður verið í svokölluðu ástar/
haturssambandi við samfélagið sitt
en ég er ástarmegin núna.“
Vonleysið ríkir á götunni
Einn liður í söfnuninni er val-
greiðsla í heimabanka einstaklinga
og fyrirtækja. Einnig hefur verið
stofnað til söfnunarnúmersins 908-
1133 sem gjaldfærir 1.500 krónur af
símareikningnum. Í dag fer svo af
stað sala á verndarenglum, í minn-
ingu þeirra sem lotið hafa í lægra
haldi í baráttunni við vímuefnin enda
segir Mummi að ástandið í þjóð-
félaginu núna minni hann á ástandið
fyrir 20 árum.
„Þó að ég sé búinn að fara heilan
hring með Götusmiðjunni þá finnst
mér samfélagið líka búið að fara
heilan hring. Það er búið að loka svo
mörgum úrræðum. Á götunni ríkir
enn ákveðið úrræðaleysi og vonleysi,
því förum við aftur af stað núna til að
mæta því,“ segir Mummi.
benedikt@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Góður bíll Mummi, Elísabet Gísladóttir og Sigrún Eva Rúnarsdóttir inni í
bíl sem Götusmiðjan fékk gefins frá útgerðarmönnum á Suðurnesjum.
Jólin eru einnig
haldin á götunni
Götusmiðjan opnuð á ný í dag
Markmiðið að hjálpa ungmennum
www.volkswagen.is
Volkswagen atvinnubílar
Einstakt
tækifæri
Nú í desember gefst einstakt tækifæri til að
kaupa sýningar- og reynsluakstursbíla
hjá VW atvinnubílum á góðum kjörum.
Kynntu þér málið hjá
sölufulltrúum okkar
á Laugavegi 174.
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn ÍsafirðiTakmarkað magn