Morgunblaðið - 05.12.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Tvíburarnir Surtla og Sighvatur eru
nýjustu jólavættir Reykvíkinga og
munu ærslast á austurvegg Safna-
hússins gegnt Þjóðleikhúsinu næstu
vikurnar. Surtla og Sighvatur bæt-
ast í hóp jólavætta sem hafast við á
húsveggjum víða um miðborgina og
eru nú orðnar þrettán talsins.
Fjöldi fólks var samankominn í
Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær-
morgun þegar hulunni var svipt af
nýjustu jólavættunum. Tvíburum á
öllum aldri var sérstaklega boðið að
vera við afhjúpunina ásamt leik-
skólabörnum frá Lindarborg og
Njálsborg. Jólavætturin Leiðinda-
skjóða mætti óvænt og truflaði dag-
skrá en bætti svo fyrir það með því
að syngja með krökkunum. Síðan
fór allur hópurinn út í myrkið og
fylgdist með þegar tvíburarnir birt-
ust á veggnum.
Surtla og Sighvatur eru tvíburar
og yngstu börn Grýlu. Þau eru auga-
steinar jólasveinanna sem æfa sig
allt árið í að gleðja þau og gefa þeim
í skóinn.
Leitin að jólavættunum er fjöl-
skylduleikur sem snýst um að finna
fimm vættir og skrifa svar sem
stendur á skilti hjá þeim á svarseðil
sem er svo skilað í Upplýsinga-
miðstöð ferðamanna í Aðalstræti 2
eða í pósti fyrir 19. desember nk.
Gunnar Karlsson myndlistar-
maður á heiðurinn af útliti jólavætt-
anna en þær byggjast á hugmynd
Hafsteins Júlíussonar um að tengja
íslenska sagnahefð við Jólaborgina
Reykjavík.
Tvíburar
á vegg
Safnahúss
Fylgst með Börnin voru spennt þegar tvíburarnir birtust á veggnum.Á veggnum Nýjustu jólavættirnar eru tvíburarnir Surtla og Sighvatur.
Jólavættir
Reykvíkinga
Ítrekað hefur verið brotist inn í
sjálfsala bílaþvottastöðvarinnar
Löðurs í Vatnagörðum að undan-
förnu. Sjálfsalarnir eru spenntir
upp og mynt sem þar er stolið.
„Þegar við reyndum að gera
sjálfsalana þjófheldari þá var geng-
ið það harkalega að þeim að þeir
voru hreinlega eyðilagðir,“ segir
Páll Mar Magnússon, framkvæmda-
stjóri Löðurs, í samtali við mbl.is.
„Þjófarnir hafa ekki komist
burtu með mikil verðmæti þar sem
sjálfsalarnir eru tæmdir daglega en
skemmdirnar eru talsvert meiri.
Við sjáum okkur ekki annað fært
en að hætta að taka á móti hundrað
króna mynt og einungis verður tek-
ið á móti kortum í sjálfsafgreiðsl-
unni í Vatnagörðum,“ segir Páll.
Ítrekað brotist inn
í sjálfsala Löðurs
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
20% afsláttur
af öllum vörum
alla helgina
föstudag, laugardag og sunnudag
Landsins mesta
úrval af úrum
Þú færð jólagjöfina
hjá okkur
• Demantslokkar
• Demantshringar
• Demantssnúrur
• Demantshálsmen
• Silfurvörur
• Gullvörur
•Trúlofunarhringar
• Fossel skartgripir
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti prests í Nes-
prestakalli, Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra frá 1. febrúar 2015.
Umsóknarfrestur er til 7. janúar nk.
Skipað verður í embættið til fimm
ára. Fráfarandi prestur er sr. Sig-
urður Árni Þórðarson, sem verður
sóknarprestur við Hallgrímskirkju.
Í Nesprestakalli er ein sókn, Nes-
sókn, með tæplega ellefu þúsund
íbúa og eina kirkju, Neskirkju í
Reykjavík.
Sóknarprestur Nessóknar er sr.
Örn Bárður Jónsson.
Embætti
prests í Nes-
sókn auglýst
Neskirkja í Reykjavík.