Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Fyrstu gestir Apótek hótels gistu þar
síðustu nótt. Nýja hótelið er til húsa í
gamla Reykjavíkur apótekinu við
Austurstræti 16 en húsið hefur tekið
gagngerum endurbótum.
„Það eru fjögur herbergi bókuð í
nótt. Við munum taka vel á móti
fyrstu gestunum, með blómum og
kampavíni,“ segir Ólafur Ágúst Þor-
geirsson, hótelstjóri Apótek hótels og
Hótel Borgar. KEA-hótelkeðjan rek-
ur bæði hótelin en þau verða rekin
sitt í hvoru lagi og verða í samkeppni
við hvort annað.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band í gær voru fyrstu gestirnir
væntanlegir seinna um daginn. Þeir
höfðu bókað eina svítu og svokölluð
delux herbergi. 45 herbergi eru á
hótelinu. Hótelið er nánast alveg
tilbúið en á næstu dögum verður
gengið frá ýmislegu smávægilegu,Hergbergi Gamalt og nýtt mætist í allri hönnun hótelsins og eru herbergin búin öllum helstu nútímaþægindum.
Kampavín og
blóm fyrir
fyrstu gestina
Apótek hótel opnað eftir glæsilegar
endurbætur 45 herbergi á hótelinu
Móttaka Gestir koma
fyrst inn í bjart rými.
Apótek hótel
Á mótum Austur-
strætis og
Pósthússtrætis.
Hjarta
frá 4700
Kramhús
frá 4500
Óróar
3200
Fallega jólavaran frá
H.C.Andersen
fæst í Gullbúðinni
Grenitré
frá 5900
Kertastjaki
frá 5900
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Embætti aðalstöðvar lögreglustjóra á
Vesturlandi verður í Borgarnesi og
lögreglustöðin á Höfn í Hornafirði
mun tilheyra lögregluumdæminu á
Austurlandi í stað Suðurlands eins og
beiðni hafði komið fram um. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í nýrri
reglugerð um breytingu lögregluum-
dæma sem til stendur að birta í
Stjórnartíðindum.
Verða umdæmin níu í stað 16 áður.
Eftir að drög reglugerðarinnar lágu
fyrir kom fram áskorun frá Akra-
nesbæ um að halda aðalstöð lögreglu-
stjóra í bænum. Ekki var orðið við
því. Úlfar Lúðvíksson verður lög-
reglustjóri yfir lögregluumdæminu á
Vesturlandi. Ekki er gert ráð fyrir
því að starfsfólki muni fækka á lög-
reglustöðinni á Akranesi þar sem
m.a. hefur verið starfrækt öflug rann-
sóknardeild. Einu breytingarnar eru
þær að Halla Bergþóra Björnsdóttir
sem starfað hefur sem lögreglustjóri
þar verður lögreglustjóri á Akureyri.
Til umræðu hafði komið að láta lög-
reglustöðina á Höfn í Hornafirði til-
heyra lögregluumdæminu á Suður-
landi að beiðni stöðvarinnar. Í
tilkynningu frá innanríkisráðuneyt-
inu kemur fram að Hornafjörður telj-
ist til umdæmis lögreglustjórans á
Austurlandi „þar til úttekt á rekstr-
arforsendum lögreglunnar á Austur-
landi hefur farið fram“.
Hægt að samnýta fólk betur
Eins kom til umræðu að staðsetja
aðalstöð lögreglustjóra á Vestfjörð-
um á Patreksfirði en niðurstaðan
varð sú að það verður á Ísafirði eins
og verið hefur. Reglugerðin mun taka
í gildi um næstu áramót. „Ég tel að
þessar breytingar muni efla löggæsl-
una því það verður hægt að samnýta
fólk betur,“ segir Halla Bergþóra
Björnsdóttir, formaður lögreglu-
stjórafélagsins.
Borgarnes valið
umfram Akranes
Reglugerð um lögregluumdæmi birt
Breytingar Reglugerð um lögreglu-
umdæmi lögreglustjóra var birt.