Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
t.d. verður svítan í turninum opnuð í
næstu viku.
Bókanirnar fara rólega af stað á
þessum fyrstu dögum desember-
mánaðar. Hótelið er orðið vel fullt yf-
ir jólin og nánast fullbókað yfir ára-
mótin. Á Hótel Borg er kominn bið-
listi fyrir gistingu yfir áramótin.
Ljóst er að mikil eftirspurn er eftir
hótelgistingu hér á landi yfir áramót-
in.
„Það ríkir mikil eftirvænting fyrir
hótelinu, bæði hjá ferðaþjónustuað-
ilum og öðrum. Við höfum fengið
mikil og góð viðbrögð hjá fólki en það
er t.d. sérlega ánægt með lýsinguna
sem er utan á húsinu. Það hefur lítið
verið gert fyrir húsið síðustu ár,“
segir Ólafur.
Í gær var verið að prufukeyra mat-
seðil veitingastaðarins, Apótek res-
taurant. Hann verður væntanlega
opnaður í dag. Fyrstu gestir hótels-
ins borðuðu því morgunmatinn á
Hótel Borg.
„Við sjáum fram á að geta tekið á
móti stærri hópum þegar Hótel Borg
hefur stækkað næsta sumar,“ segir
Ólafur. Tæplega 150 herbergi verða
samanlagt á hótelunum tveimur.
Stöðugildin við hótelið eru 15 tals-
ins, að frátöldum þeim á veit-
ingastaðnum, og eru þau orðin full-
mönnuð. thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Gangur Rýmið er vel nýtt á hótelinu
og samspil litanna er smekklegt.
Guðlaug Kristjánsdóttir hefur ákveðið að hætta sem
formaður Bandalags háskólamanna. Hún leiddi lista
Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði í síðustu bæj-
arstjórnarkosningum og er forseti bæjarstjórnar. Í
tilkynningu sem hún sendi frá sér í gær segir að í
samráði við stjórn BHM hafi verið ákveðið að láta
reyna á möguleika þess að gegna þessum tveimur
hlutverkum samhliða. Það fyrirkomulag þyki henni
fullreynt og hafi hún ákveðið að hætta sem formað-
ur BHM, en því starfi hún gegnt í hálft sjöunda ár.
vidar@mbl.is
Guðlaug hættir sem formaður BHM
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Fuglavernd stóð síðasta laugardag
fyrir ráðstefnu um stöðu og vernd ís-
lenskra mófuglastofna og þá ábyrgð
sem Íslendingar bera á þeim í al-
þjóðlegu samhengi. Ráðstefnan bar
yfirskriftina Eiga mófuglar undir
högg að sækja? Staða stofna, bú-
svæðavernd og alþjóðlegar skyldur.
Flutt voru erindi sem byggjast á ný-
legum eða nýjum rannsóknum í
fuglafræðum.
Á ráðstefnunni var samþykkt
ályktun um vöktun og vernd mó-
fuglastofna. Í henni segir m.a.: „Mó-
fuglar verpa um allt land í fjöl-
breyttum búsvæðum á opnu landi.
Sérstök áskorun er að vernda fugla-
stofna sem verpa svo dreift því
verndarsvæði geta aðeins náð yfir
lítinn hluta stofnanna. Brýnt er að
efla og koma á fót verndarsvæðum á
lykilstöðum. Einnig er nauðsynlegt
að taka tillit til mófugla við skipulag
landnotkunar svo þeir geti þrifist
samhliða nýtingu. Örlög mófugla-
stofna á 21. öld munu endurspegla
árangur Íslendinga við að samræma
nýtingu og vernd landsins.“
Vilja verndarsvæði
mófugla á lykilstöðum
Morgunblaðið/Ómar
Vorboði Heiðlóa dregur björg í bú.