Morgunblaðið - 05.12.2014, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
Snjór Mörgum brá á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun, þegar þeir sáu nýfallinn snjóinn, en flestir létu hann ekki á sig fá heldur bjuggu sig eftir aðstæðum og héldu sína leið.
Golli
Fjarskipti eru stór hluti af
okkar daglega lífi. Fyrir um 40
árum var gert myndarlegt átak í
að leggja aðra kynslóð talsíma
um land allt. Í mínum uppvexti
kallaður „sjálfvirki síminn“ til að-
greiningar frá gamla sveita-
símanum. Breytingar frá þeim
tíma eru ótrúlegar.
Þá kom farsímabyltingin og í
dag má kalla farsíma okkar litlar
tölvur og í raun er orðið farnet
meira lýsandi um möguleika
þeirrar tækni. Á sama tíma hefur
orðið ótrúleg bylting í notkun á
rafrænum samskiptum yfir netið.
Samskipti, nám, viðskipti, örygg-
ismál, heilbrigðisþjónusta, fjöl-
miðlun og afþreying eru meira og
meira háð öflugu netsambandi.
Öflug fjarskipti eru stórt efna-
hagsmál, atvinnumál og ekki síst
byggðamál. Á margan hátt eru
öflug fjarskipti um land allt
mesta byggðamál okkar um þessar mundir.
Við stöndum enn á tímamótum
Við þurfum að hrinda af stað miklu átaki í að
byggja upp framtíðar fjarskiptatækni. Í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er skýr
sýn á gildi öflugra fjarskipta. Því verki hefur
ríkisstjórnin þegar hrundið af stað.
Fyrsti áfangi þess er að innanríkisráðherra
hefur látið greina regluverk fjarskiptamark-
aðarins og möguleika opinberra aðila til að
stuðla að hraðri uppbyggingu grunnkerfis
fjarskipta. Með grunnkerfi fjarskipta er átt við
þann hluta þess er flytur fjarskiptamerkið.
Óháð endabúnaði og sölu á fjarskiptavörum.
Greining á regluverkinu liggur
nú fyrir og er hafin kynning á því.
Annar áfangi er unninn af
starfshópi, sem innanrík-
isráðherra skipaði sl. vor. Hlut-
verk hans er að fara yfir um-
hverfi alþjónustu og að vinna að
tillögum um leiðir til að hrinda af
stað framkvæmdum á sviði fjar-
skipta. Í starfshópnum, sem und-
irritaður leiðir er einnig Páll Jó-
hann Pálsson, alþingsimaður,
ásamt fulltrúum frá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga, Samtökum
atvinnulífsins, ráðuneyti byggða-
mála og innaríkisráðuneytinu.
Í starfi okkar hefur margt
áhugavert komið fram – ekki að-
eins að eftirspurn og væntingar
til hraðrar uppbyggingar á há-
hraðatengingum eru gríðarlegar
– og með markvissri vinnu má
gera einstaka hluti á Íslandi. Það
er nauðsynlegt að nálgast fjar-
skiptamál með nýrri hugsun.
Skýrt afmörkuð og einföld upp-
bygging með hámarksnýtingu fjármuna og
fjárfestinga í huga. Því miður er offjárfesting
hluti af veruleika fjarskiptamarkaðarins – líkt
og hent hefur á höfuðborgarsvæðinu. En eftir
situr landsbyggðin með fjarskiptakerfi sem
þarfnast verulegra endurbóta.
Ljósleiðari og frekari útbreiðsla hans er
þungamiðja í bættum fjarskiptum. Ljósleiðari
er forsenda betra farnetskerfis og möguleika
til að nýta betur kopartengingar í þéttbýli.
Starfshópurinn er að láta kostnaðargreina
sviðsmyndir um kraftmikla uppbyggingu.
Hafa ber í huga að ríkið leggur ekki ljósleiðara
sjálft, heldur er hlutverk þess að stuðla að slík-
um framkvæmdum með endurskoðun á laga-
umhverfi, beinum stuðningi og öðrum aðgerð-
um. Ríkið hefur líka það hlutverk að stuðla að
því að hér verði samkeppnismarkaður með
fjarskiptavörur og íbúar hafi um fjölbreytta
þjónustu að velja. Það er síðan hlutverk fjar-
skiptafyrirtækja að eiga og reka búnað sem
þarf til að virkja grunnkerfið og selja neyt-
endum þjónustu.
Þriðji áfangi er síðan væntanleg þingsálykt-
unartillaga að fjarskiptaáætlun sem verður
lögð fyrir Alþingi á nýju ári. Þar verður frekari
stefnumörkun stjórnvalda mótuð og mark-
miðið er að afkastamikið og öflugt fjarskipta-
grunnkerfi verði að veruleika á næstu árum. Í
fjárlagafrumvarpi fyrir 2015 er tillaga um fjár-
veitingu til að hefja sókn til betri fjarskipta
strax á næsta ári.
Það er framkvæmdakraftur í stefnu stjórn-
arflokkanna í þessu mikla framfaramáli. Há-
hraðatengingar – öflugar og afkastamiklar –
eru mikilvægar fyrir alla íbúa landsins sem og
gesti okkar. Kannski eitthvert besta markaðs-
tæki okkar til lengri tíma. Ferðamaður sem
tekur mynd af okkar fallega landi og getur
samstundis varpað á netið er mikil landkynn-
ing. Að ógleymdum þeim miklu tækifærum
sem íbúum landsins munu opnast, að geta sótt
eða veitt margvíslega þjónustu um allan heim,
á áður óþekktum hraða. Það opnar dyr sem
eru ekki fyrir hendi í dag og fjölda nýrra tæki-
færa.
Eftir Harald Benediktsson
» Það er fram-
kvæmda-
kraftur í stefnu
stjórnarflokk-
anna í þessu
mikla framfara-
máli
Haraldur Benediktsson
Höfundur er alþingismaður og formaður
starfshóps um fjarskipti.
Á hraða ljóssins – stærsta byggðamálið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjarskipti „Á margan hátt eru öflug fjarskipti um land allt mesta byggðamál okkar um … “