Morgunblaðið - 05.12.2014, Page 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Bókaðu snemma
til að tryggja
þér pláss
DANMÖ
RK
2 fullor
ðnir
með fól
ksbíl
Netverð
, frá kr.
74.500á mann
FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl
Netverð, frá kr.34.500á mann
Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með
Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að
tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka
snemma og tryggja sér besta fáanlega verð.
Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu
okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma
5708600 og 4721111.
Krafan um að loka
SV-NA flugbrautinni
næstu vikurnar vek-
ur litla hrifningu hjá
forstjóra Icelandair
Group, forseta Flug-
málafélags Íslands og
þeim sem að þessu
máli hafa komið. Eft-
ir að hafa skrifað
undir marklaust sam-
komulag við fyrrver-
andi borgarstjóra og
formann borgarráðs í Hörpu 25.
október 2013 fullyrti innanrík-
isráðherra að það væri tryggt að
SV-NA flugbrautin yrði í notkun
til ársins 2022 til að tryggja ör-
yggi sjúkraflugsins. Ég spyr:
Hvers vegna hleypur ráðherra
samgöngumála í fjölmiðla með
fjarstæðukenndar yfirlýsingar um
að til standi að opna í Keflavík
nýja öryggisbraut sem eigi að
koma í stað SV-NA brautarinnar í
Vatnsmýri? Ekki er verjandi að
sjúkraflugvél á leiðinni til Reykja-
víkur lendi frekar með fárveikan
mann 50 km frá sjúkrahúsum höf-
uðborgarinnar sem hefur skyldum
að gegna gagnvart öllum lands-
mönnum. Í þessari fjarlægð frá
Reykjavík á öryggisbraut fyrir
sjúkraflugið ekki heima. Of mikil
umferðarteppa á Reykjanesbraut,
í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ
og Kópavog réttlætir ekki að nú-
verandi borgarstjóri, formaður
borgarráðs og innanríkisráðherra
geti leikið sér með fleiri mannslíf
þegar sjúkraflugvél lendir í
Vatnsmýri að meðaltali á 15-18
klst. fresti allt árið. Þannig vilja
andstæðingar Reykjavík-
urflugvallar tefja sjúkraflutn-
ingana frá landsbyggðinni til
Reykjavíkur um einn klukkutíma
þegar mínútur skilja milli lífs og
dauða. Þá geta andstæðingar
sjúkraflugsins tekið gleði sína
þegar þessi tóma vitleysa kostar
alltof mörg mannslíf, nú telja þeir
fárveikan mann á landsbyggðinni
réttdræpan. Varað er við því að
lokun flugbrautarinnar næstu ára-
mót muni strax auka hættuna á
flugslysum sem andstæðingum
Reykjavíkurflugvallar er alveg
sama um. Því svarar borg-
arstjórnarmeirihlutinn með upp-
hrópunum til að afskræma allar
staðreyndir sem tengjast farþega-
og sjúkrafluginu eins og allir
landsmenn þekkja. Í stað þess að
kynna sér þörfina á fram-
kvæmdum við mislæg gatnamót á
Reykjavíkursvæðinu, Sundabraut-
og ný hliðargöng undir Hvalfjörð
réttlætir innanríkisráðhera tilefn-
islausa árás á sjúkraflugið sem
nýskipaður borgarstjóri og forseti
borgarstjórnar hafa barist fyrir.
Hafi andstæðingar Reykjavík-
urflugvallar skömm fyrir þessa
framkomu. Sjálf gekk Hanna
Birna þvert á samkomulag borg-
ar, ríkis og Icelandair
Group um að leiða
flugvallarmálið til
lykta. Nú reynir borg-
arstjóri allt til að
koma núverandi flug-
velli úr Vatnsmýri
með því að þrengja að
öllum flugbrautunum
smátt og smátt og
hafa að engu vilja
73% Reykvíkinga sem
segjast líka þurfa að
nota þessa lífæð líkt
og aðrir landsmenn.
Hingað til hafa Dagur B. og ný-
skipaður formaður borgarráðs
beitt öllum brögðum til að koma í
veg fyrir að Reykjavíkurflugvöllur
standist kröfur sem Alþjóðaflug-
málastofnunin og íslenskar reglu-
gerðir gera til flugvalla hér
heima. Lokun NA-SV braut-
arinnar myndi valda því að örygg-
ismál flugvallarins verði næstu
áratugina í miklum ólestri sem
flugmenn farþega- og sjúkraflugs-
ins láta aldrei bjóða sér. Eina
leiðin til að lífæð allra lands-
manna í Vatnsmýri geti hvílt í
friði er að Alþingi samþykki hið
snarasta tillögu Höskuldar Þór-
hallssonar, þingmanns Norðaust-
urkjördæmis, um að skipulags-
valdið yfir Reykjavíkurflugvelli
verði flutt frá borginni til íslenska
ríkisins án samráðs við innanrík-
isráðherra, Dag B. Eggertsson og
nýja borgarstjórnarmeirihlutann.
Allt tal um að NA-SV brautin sé
of lítið notuð er siðblint, mann-
skemmandi, fjarstæðukennt, vill-
andi og í hróplegri mótsögn við
góða blaðamennsku. Það nota
andstæðingar flugvallarins þegar
hennar er þörf. Til eru mörg
dæmi um að hinar flugbrautirnar
geti ekki alltaf tekið við mikilli
flugumferð vegna veðurs. Þá leys-
ir það engan vanda að opna aðra
sambærilega braut á Keflavík-
urflugvelli. Fækkun flugbrauta á
Reykjavíkurflugvelli sem hefur
þveröfug áhrif stefnir öryggi
sjúkraflugvélar með fárveikan
mann innanborðs í óþarfa hættu
örfáum mínútum fyrir áætlaðan
lendingartíma. Í vondum veðrum
tryggir NA-SV brautin öryggi
sjúkraflugsins betur en Reykja-
nesbrautin sem er veikur hlekkur
og getur kostað fárveikan mann
lífið. Láttu sjúkraflugið í friði,
Dagur B. Fyrri greinar mínar í
Mbl. standa andstæðingum
Reykjavíkurflugvallar til ævar-
andi skammar.
Árás innanríkisráð-
herra á sjúkraflugið
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Í vondum veðrum
tryggir NA-SV
brautin öryggi sjúkra-
flugsins betur en
Reykjanesbrautin.
Höfundur er farandverkamaður.
Þessi nýja bók er
endurprentun greina
ÞÞ í ýmsum tímarit-
um, og hefur hann
bætt þær verulega,
einkum með tilvitn-
unum í fyrri umfjöllun.
Enn sem fyrr er hann
þó „eklektískur“, svo
ég leyfi mér að sletta
grísku við grísku-
manninn. En með því
á ég við að hann velur
úr heimildum – og þá ekki eftir því
hve mikið eða lítið þær varði við-
fangsefni hans, heldur virðist þar
ráða persónuleg afstaða hans til
heimildarmannna.
Þorsteinn telur bók mína, Seið-
blátt hafið, 1992, í heimildaskrá, en
vitnar lítt til hennar. Þar er þó
fjallað um sömu skáld og í fram-
setningu hans. Eins og ég benti
Þorsteini á fyrir mörgum árum leið-
ir slíkt háttalag til þess að eigna sér
verk annarra. En hitt skal við-
urkennt, að hann hefur lög að mæla
(bls. 101-128) um að kvæði Halldórs
Laxness, Unglingurinn í skóginum,
ber einkum svip af nýrómantík. Og
góð er greinargerð hans (einkum
bls. 129-158) fyrir hráefni annarra
kvæða Halldórs frá 3. áratugnum.
En sitt er hvað hráefni og afurð, og
ég stend við að það að tengja sund-
urlausustu atriði er einmitt meg-
ineinkenni súrrealisma. Ég sendi
Skírni stutta lofgrein um frumgerð
þessarar greinar Þorsteins, en fékk
ekkert svar, og ekki birtist grein
mín. Þannig var ritstjórn Halldórs
Guðmundssonar. Fráleitt tel ég hjá
Þorsteini (bls. 93-4) að vitna til
ljóðasafnsins Menschheitsdämmer-
ung (1919) sem fulltrúa expressjón-
isma. Það ljóðasafn er þrungið
mærð, og hafa löngu birst betri
söfn expressjónískrar ljóðagerðar
(einkum Gedichte des Expression-
ismus, Reclam 1966).
Árið 2005 birti ég langa grein í
Andvara, Uppsprettur Tímans og
vatnsins. Ég sendi Þorsteini grein-
ina sérprentaða og fékk svar í bréfi
frá honum dagsettu 24. september
2005 þar sem hann
segir m. a.:
„Þakka þér kærlega
fyrir Uppspretturnar.
Ég er búinn að lesa
þær allvel yfir en á þó
eftir að skoða þær
miklu betur. Ætli þú
sért ekki þarna með
einhverja ítarlegustu
rannsókn sem gerð
hefur verið á mynd-
máli Tov?“
Nú gæti einhver
haldið að ég legði full-
mikið upp úr kurteislegum þakk-
arorðum, en fyrr má nú vera kurt-
eisin, vægari orð hefði mátt hafa.
En nú bregður svo við að Þorsteinn
vitnar hvergi í þessa grein mína í
þessu nýja riti sínu! Ég get ekki að
mér gert að setja það í samband við
að við Þorsteinn höfum árum sam-
an átt í ritdeilum um einmitt efni
þessarar bókar! Og mér finnst að
hann hefði átt að hugsa um verk
sitt frekar en um mig. Því það hefði
verið full ástæða fyrir hann að tak-
ast á við þá niðurstöðu greinar
minnar að ljóðmál Tímans og vatns-
ins mótist af ljóðabálki sænska
skáldsins Erik Lindegren, Mannen
utan väg, sem birtist fyrst 1940 og
vakti mikla athygli á næstu árum.
Þetta benti danskur þýðandi Steins,
Poul P.M. Pedersen, á fyrir hálfri
öld. Að Þorsteinn leiðir þetta hjá
sér bitnar fyrst og fremst á verki
hans sjálfs, það hefði orðið ólíkt
betra hefði hann tekist á við helstu
fyrri túlkanir verksins, samsinnt
því sem hann var sammála, en fært
rök gegn hinu.
Þorsteinn slær úr og í, kemur
víða við, en stefnufestu finnst mér
vanta. T.d. nefnir hann skyndilega
breytingu á ljóðstíl Steins upp úr
1940 og spyr hvað valdi. Helst virð-
ast þar koma til greina einhver per-
sónuleg áföll, t. d. í ástamálum (bls.
34-5). En mestu skipta í lífi skálda
kynni við nýtt skáldskaparlag og
átök skáldsins við þau. Og því
ályktaði ég í tilvitnaðri Andvara-
grein:
Frumgerð Tímans og vatnsins
1948 er býsna skipuleg, þar skiptast
á reglulegar tersínur, ástaljóð og
ljóð með óreglulegri brag, sem lýsa
framandlegu umhverfi mælanda.
Þessi skipan verður óreglulegri við
helmingsaukningu 1956, en meg-
insvipurinn helst, mælandi staddur í
framandlegu, óskiljanlegu umhverfi,
nálgast viðmælanda í ástasambandi.
Það sem gerir Tímann og vatnið
sérstætt verk í íslenskri ljóðagerð
er einkum myndmálið. Annars veg-
ar er einstök litadýrð, einkum í ljóð-
um ortum fyrir Svíþjóðardvöl Steins
seinni hluta ársins 1945. En eftir
hana kemur til annað höfuðeinkenni
bálksins, óræðar líkingar og samlík-
ingar. Hér hefur komið fram, að þar
er um arfleifð frá súrrealismanum
að ræða. Sú aðferð mótaðist um og
upp úr 1920 í Frakklandi. Þessi að-
ferð er sérlega róttækur módern-
ismi, að tengja sundurleitustu atriði
saman í líkingu, þar sem þess þó
skyldi gætt að þau ættu eitthvað
markvert sameiginlegt, og hreyf-
ingin frá kennilið til myndliðar
stefndi að einhverju mikilvægu í
hugrenningatengslum. Fjöl-
breytnin er mikil innan þessa
ramma. En þar sem áður, í t.d. blæ-
leitni (sýmbólisma), náttúrufyr-
irbæri voru gerð nákomnari les-
endum með persónugervingu þeirra
og líkingum við hluti í nánasta um-
hverfi fólks, þá ríkir nú yfirleitt
gagnstæð stefna, að nota líkingar til
að gera kunnuglega hluti ankanna-
lega, framandi. Þetta færist í
aukana frá fyrri gerð Tímans og
vatnsins til seinni gerðar, jafnframt
því sem ástaljóðasvipurinn rénar.
Greinar mínar má finna á vefslóð
minni, http://oernolafs.blogspot.com
Umræddar greinar mínar eru þar
einkum undir ártalinu 2006.
Fjögur skáld Þorsteins
Þorsteinssonar
Eftir Örn Ólafsson » Þorsteinn velur úr
heimildum að geð-
þótta, en ekki eftir þvi
hve mikið þær varða
viðfangsefni hans.
Örn Ólafsson
Höfundur er bókmenntafræðingur í
Kaupmannahöfn.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.